Fréttatíminn - 21.02.2014, Page 23
Fyrir eftirlætis
manneskjuna í þínu lífi
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
1
2-
02
46
Glæný og ljúffeng konudagsostakaka
bíður þín í næstu verslun
Myndasögur
Jónas segir að nýir flokkar séu
alltaf að bætast við og nefnir
sérstaklega myndasögur,
vínýl-plötur, hljómflutnings-
tæki og filmumyndavélar.
„Teiknimyndabækur, Svalur
og Valur og þetta allt eru mjög
vinsælar. Ég lenti á konu sem
var að fara að fleygja þessu
fyrir jól og hún fékk fleiri þús-
undir fyrir bunkann. Ég hef
ekki undan að skaffa þetta. Ég
nennti ekki að bera plöturnar
út úr búslóðunum en nú er
þetta eftirsóttast.“
Sverðfiskasverð
Jónas hefur rekist á nokkuð af
sverðum í íslenskum dánarbú-
um þar á meðal þetta. „Þetta
sverð er frá Chile og er gert
úr tönnum sverðfiska sem
synda við strendur Suður-
Ameríku. Þessir sverðfiskar
eru hraðskreiðustu fiskar í
heimi og synda á allt að 120
kílómetra hraða.“
Skjaldbökuskel
Jónas rak upp stór augu þegar
hann fann þessa skjaldbökuskel
frá Brasilíu í dánarbúi.
Vélmenni
Þetta vélmenni frá 1960 gengur
og blikkar ljósum og vekur mikla
athygli búðargesta.
Herskyrtan úr
Kóreustríð-
inu
„Ég
fann tvær
svona skyrtur
í dánarbúi
fyrir 20 árum.
Önnur fór upp
á Árbæjar-
safn og hin er
hér í búðinni
en ég tími ekki að selja hana og
er með hana hér bara til þess að
skemmta fólki. Þetta er skyrta af
eina Íslendingnum sem barðist í
Kóreustríðinu, svo vitað sé. Hún er
merkt Ray Björnsson en hann hét
að vísu Reynir Björnsson.“
300 ára bjórflaska
„Þessi bjórflaska fannst í skútu
sem sökk í Ísafjarðardjúpi.
Hún er í það minnsta 300 ára
en það sést á því að hún er
það sem kallað er þriggja laga
flaska. Í þá daga
var ekki hægt að
steypa flöskur í
heilu. Glasið var
steypt og svo
hvor hliðin uppi.
Flaskan fannst
fyrir nokkrum
árum, svona
300 ára gömul
samkvæmt því
hvenær flöskur
urðu svo
heilar.“
viðtal 23 Helgin 21.-23. febrúar 2014