Fréttatíminn - 21.02.2014, Blaðsíða 26
26 úttekt Helgin 21.-23. febrúar 2014
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
40
51
7
25%
afsláttur af öllum snyrtivörum
20.–23. febrúar
Lyf & heilsa fagnar ykkur á konudaginn
með 25% afslætti á snyrtivörum
alla helgina.
www.lyfogheilsa.is
Glæsilegu konur!
Guðmundur
Reynir
KR-ingnum knáa Guð-
mundi Reyni Gunnars-
syni er margt til lista
lagt. Hann leikur með
Íslandsmeisturum KR í
knattspyrnu, útskrifaðist
í febrúar með meðal-
einkunina 9,55, hæstu
einkunn sem gefin hefur
verið í hagfræðideild
Háskóla Íslands. Hann
var fimmtán ára gamall
þegar hann lauk sjöunda
stigi í klassískum píanó-
leik og sendi frá sér sóló-
plötu 2010.
Fótboltafólk í
syngjandi sókn
Gréta Mjöll Samúelsdóttir gerði mikla lukku í Söngvakeppninni þar sem hún
flutti lagið Eftir eitt lag. Söngkonan á glæstan knattspyrnuferil að baki og
fyllir þannig vaskan flokk íslenskra söngvara sem hafa einnig sýnt mikla
fótafimi á sparkvellinum. Hinir fornfrægu kappar Hemmi Gunn og Rúni Júl
voru ákveðnir brautryðjendur í söngdeild knattspyrnufólks en enginn skortur
er á ungum stjörnum sem hitta í mark á báðum þessum sviðum.
Greta Mjöll Samúelsdóttir
Greta Mjöll lagði takkaskóna á hilluna í fyrra
eftir glæstan feril og kvaddi sportið á Fa-
cebook með þessum orðum: „ Ég
hef ákveðið að nú sé fótboltaferli
mínum lokið. Fótboltanum hef
ég mikið að þakka og hann
hefur gefið mér óskaplega
margt. Óteljandi dásamlegar
minningar, ferðalög útum allan
heim, menntun sem mun alltaf nýtast mér,
heilmikinn lærdóm á lífið og svo auðvitað besta af
öllu, vini fyrir lífstíð.“
Greta Mjöll spilaði alla sína tíð með Breiðabliki og
lét til sín taka í 129 leikjum í grænu treyjunni og skoraði
70 mörk. Þá á hún að baki 28 landsleiki þar sem hún
skoraði þrjú mörk.
Greta Mjöll myndar dúettinn SamSam ásamt systur
sinni, Hófí sem einnig hefur einnig getið sér gott orð í bolt-
anum. Greta Mjöll söng á sínum tíma lagið Ó María í Söng-
keppni framhaldsskólanna og hafnaði í öðru sæti.
Greta Mjöll keppti í Söngvakeppninni og komst áfram í úr-
slit með lagið Eftir eitt lag eftir Ástu Björgu Björgvinsdóttur
og Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur. „Greta er með mjög fallega og
sérstaka rödd sem við heyrðum einhvern veginn alltaf á meðan
við vorum að semja lagið,“ sagði Bergrún í samtali við Fréttatímann
fyrir keppnina.
Ingó
veðurguð
Ingólfur Þórarinsson,
betur þekktur sem
Ingó veðurguð, lék með
Selfossi við góðar orð-
stír en er kominn til
Hamars í Hveragerði.
Hann er þó sjálfsagt
þekktari sem söngv-
ari en knattspyrnu-
maður enda hefur
hann verið ein skær-
asta poppstjarna lands-
ins á síðustu árum. Allt
frá því hann sló í gegn
með laginu Bahama sum-
arið 2008.