Fréttatíminn - 21.02.2014, Side 27
úttekt 27 Helgin 21.-23. febrúar 2014
Rósamúffa
með súkkulaði
Sætabolla
með passion-rjóma og kókos
Bailey’ s terta
Holtagarðar & Smáralind & Kringlan & Garðabær & Hringbraut
Verið hjartanlega velkomin.
Konudagur að hætti Jóa Fel
Fullt af kökum og kruðeríi til að gleðja elskuna sína.
Steinbökuð
morgunverðarbrauðKaka ársins
Pekanpæ
Rósaterta
Sörur
Broskallar
Jón Jónsson
Hafnfirðingurinn Jón Ragnar Jóns-
son hefur spilað knattspyrnu með
hinu vaska FH-liði en hefur þó
mun meira látið á sér bera í tónlist-
inni þar sem hann er í stórsókn.
Hann hefur farið hamförum á
íslenskum vinsældalistum með
lögum sínum og landaði samningi
við Epic Records eftir að hafa
heillað L.A. Reid sem þar
ræður ríkjum.
Jón hefur tekið
velgengninni með
sinni stóísku ró
og á örugglega
eftir að fljúga hátt
með byrinn frá
Reid undir báðum
vængjum.
Hemmi Gunn
Hermann Gunnarsson var öfl-
ugur bæði í hand- og fótbolta.
Mikil hetja í liði Vals og öfl-
ugur landsliðsmaður. Hann
og Rúni Júl náðu saman, bæði
í boltanum og tónlistinni, eða
eins og Hemmi orðaði það:
„Við Rúnar vorum andstæð-
ingar inni á vellinum en sam-
herjar á skemmtistöðum.“
Þessir boltakappar sungu
meðal annars saman inn á
barnaplötur en Hemmi kom
víða við í tónlistinni, var í Sum-
argleðinni og þeir eru ófáir
sígildu slagararnir sem hann
söng á sinn einstaka hátt.
Rúni Júl
Rúnar Júlíusson, sjálfur
herra Rokk, gekk til
liðs við Hljóma átján ára
gamall. Sveitin varð sú
langvinsælasta á landinu
á bítlatímanum og Rúni
fór hamförum á sviðinu.
Þegar tónlsitarferill hans
hófst var knattspyrnuferill
hans í blóma. Hann spilaði
með Keflavíkurliðinu
og var í fyrsta Íslands-
meistaraliði Keflavíkur
árið 1964 þá aðeins 19
ára gamall. Hann skor-
aði jöfnunarmarkið fyrir
Keflavík gegn KR í loka-
leiknum fyrir framan 5000
áhorfendur í Njarðvík og
tryggði liðinu Íslands-
meistaratitilinn með því
marki.
Þá lék hann með lands-
liðinu og var óumdeildur
mestur töffari á Íslandi, í
vinsælustu hljómsveitinni,
kvæntur Maríu Baldurs-
dóttur, fegurðardrottn-
ingu Íslands – og í lands-
liðinu.
Ferill Rúnars í tónlist-
inni var enn glæsilegri.
Hann var í Hljómum þar
til hann stofnaði Trúbrot
og var síðar í Lónlí blú
bojs. Hann stofnaði Áhöfn-
ina á Halastjörnunni með
Gylfa Ægissyni 1980 og
GCD ásamt Bubba Mort-
hens 1991.