Fréttatíminn - 21.02.2014, Síða 40
40 skíðalæti Helgin 21.-23. febrúar 2014
skíðaþjálfun börnin byrji ung
HÁGÆÐA ULLARFATNAÐUR Á GÓÐU VERÐI
100% MERINO ULL
HÚN
Ullarbolur
st. S-XXL
3.999
Ullarleggings
st. S-XXL
4.999
HANN
Ullarbolur
st. S-XXL
4.999
Ullarleggings
st. S-XXL
5.999
þ að er best að skíða í miklu frosti og birtu. Þá er snjór-inn stífur og grefst ekki og
færið er miklu betra en annars,“
segir Sigurður Sveinn Nikulás-
son, sölustjóri hjá Öskju og þjálfari
hjá skíðadeild Breiðabliks. Sjálfur
byrjaði hann að æfa skíðaíþróttina
aðeins fimm ára gamall og segir
best að börn byrji ung. „Það er
mælt með því að börn byrji að æfa
fimm ára gömul en algengast er að
þau byrji á aldrinum fimm til tólf
ára og yfirleitt ekki eftir það.“ Sig-
urður æfði skíðaíþróttina til 19 ára
aldurs og hefur þjálfað í 19 ár.
Þegar Sigurður er að þjálfa
skíðar hann ekki en eftir æfingar
notar hann það sem eftir er dags-
ins til að leika sér og skíða með
fjölskyldunni. Börnin hans tvö, níu
og þrettán ára, byrjuðu bæði að
æfa skíði aðeins þriggja ára gömul
og fara á skíði um það bil hundrað
daga á ári.
Hann mælir með því að þegar
börn fara með foreldrum sínum
á skíðasvæði í fyrsta sinn fái þau
kennslu hjá skíðakennara. „Ef
foreldrarnir kunna ekki grunn-
inn kenna þeir börnum sínum oft
einhverja vitleysu sem erfitt er að
vinda ofan af. Í Bláfjöllum er boðið
upp á kennslu fyrir byrjendur sem
ég hvet fólk til að nýta sér.“
Fyrir þá sem eru þessa dagana
að dusta rykið af skíðunum og að
fara í fyrsta sinn í langan tíma á
skíði mælir Sigurður með því að
fólk hafi stíganda og skynsemi að
leiðarljósi. „Fólk verður að meta
þetta sjálft en það borgar sig að
fara ekki strax í brattar brekkur,
heldur að byrja í flatri barna-
brekku.“
Alltaf eru æfingar hjá skíðadeild
Breiðabliks þegar opið er í Blá-
fjöllum og fara börnin þá á æfingar
eftir skóla á virkum dögum og um
helgar. „Oft er opið tíu daga í röð
og þá æfum við alla dagana. Svo
lokar kannski í þrjá daga vegna
veðurs og þá hlöðum við batt-
eríin.“ Börn sem byrja að æfa hjá
skíðadeild Breiðabliks þurfa ekki
að hafa neina kunnáttu fyrir. „Þau
sem vilja prófa að æfa eina helgi
geta leigt sér skíði en annars er
nauðsynlegt að eiga skíði þegar
æft er að staðaldri.“
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Sigurður Sveinn Nikulásson er þjálfari hjá skíðadeild Breiðabliks og byrjaði að æfa
skíðaíþróttina aðeins fimm ára gamall. Þegar þjálfun er lokið um helgar nýtir hann
tímann í Bláfjöllum og skíðar með fjölskyldunni.
Best að skíða í miklu frosti og birtu
Sigurður að þjálfa börn á skíðaæf-
ingu. Hjá skíðadeild Breiðabliks
eru alltaf æfingar þegar opið er í
Bláfjöllum.
Sigurður Sveinn Nikulásson, skíðaþjálf-
ari hjá skíðadeild Breiðabliks, mælir
með því að börn sem eru að fara á skíði
í fyrsta sinn fái kennslu hjá skíðakenn-
ara.
Engin afsökun að eiga ekki skíði
Hægt er að leigja skíðabúnað hjá
leigum á skíðasvæðum vítt og breitt
um landið svo það að eiga ekki skíði
ætti ekki að vera hindrun. Í Reykjavík
er einnig hægt að leigja skíðabúnað
hjá Ferða- og útivistarversluninni
Everest. Þegar búnaður er leigður í
einn dag er hægt að sækja hann að
morgni skíðadags en ef fólk vill nýta
allan daginn á skíðum er hægt að sækja
búnaðinn seinni partinn daginn áður
og skila snemma þar næsta dag. Á
Akureyri eru skíði leigð út í Hlíðarfjalli
og hjá Skíðaþjónustunni við Fjölnisgötu
en þar er opið alla daga vikunnar. Bæði
hjá Everest og Skíðaþjónustunni lækkar
verðið fyrir hvern dag ef leigt er í meira
en einn dag.
Í skála Gönguskíðafélagsins Ullur í
Bláfjöllum er hægt að leigja göngu-
skíðabúnað og er opið um helgar frá
klukkan 10 til 17 þegar skíðasvæðið
er opið.
Ef foreldrarnir
kunna ekki grunn-
inn kenna þeir
börnum sínum
oft einhverja vit-
leysu sem erfitt
er að vinda ofan
af. Í Bláfjöllum
er boðið upp á
kennslu fyrir byrj-
endur sem ég hvet
fólk til að nýta sér.