Fréttatíminn - 21.02.2014, Side 58
Stefán Karl Stefánsson skýtur upp kollinum í ýmsum gervum í söngleiknum Spamalot.
Þjóðleikhúsið Frumsýnir spamalot
Veisla fyrir Monty
Python-aðdáendur
Söngleikurinn Spamalot er byggður á kvikmyndinni Monty Python
and the Holy Grail. Spamalot hefur notið mikilla vinsælda á Broad-
way, West End og víðar. Þjóðleikhúsið frumsýnir söngleikinn á
föstudagskvöld í íslenskri þýðingu Braga Valdimars Skúlasonar og
leikstjórn Hilmis Snæs Guðnasonar. Persónugallerí sýningarinnar
er fjölskrúðugt og Stefán Karl Stefánsson lætur sig ekki muna um
að bregða sér í átta kvikinda líki í sýningunni.
e ric Idle vann söngleik-inn Spamalot upp úr kvikmyndinni Monty Python and the Holy
Grail en myndina gerði hann
ásamt félögum sínum í Monty
Python-hópnum 1975. Spamalot
hefur notið mikilla vinsælda á
Broadway, West End og víðar um
lönd. Þá hefur sýningin hlotið
Tony verðlaunin og Drama Desk
verðlaunin sem besti söngleikur
ársins 2005.
Monty Python and the Holy
Grail hverfðist um leit Arthúrs
konungs og riddara hringborðs-
ins að hinu helga grali. Í Spamalot
rennur sagnaheimur miðaldanna
saman við veröld Broadwaysöng-
leikjanna þar sem riddarar bresta
í söng og beljur fljúga.
Ýmsir furðufuglar verða á vegi
riddaranna á ferðalaginu og þar
koma leikararnir Eggert Þorleifs-
son og Stefán Karl Stefánsson
mikið við sögu. „Við leikum kar-
aktera sem verða á vegi riddar-
anna og reyna að villa um fyrir
Aukasýning á óperu
Aukasýningu hefur verið bætt við á
Ragnheiði, nýja óperu eftir Gunnar
Þórðarson og Friðrik Erlingsson.
Ragnheiður verður frumsýnd í Eldborg
þann 1. mars næstkomandi. Hátt í
fjögur þúsund miðar eru þegar seldir á
óperuna. Aukasýningin verður laugar-
daginn 22. mars. Fyrri sýningarnar eru
1., 8., og 15. mars. Miðasala fer fram á
Harpa.is.
Alls taka hátt í eitt hundrað listamenn
þátt í uppfærslunni undir leikstjórn
Stefáns Baldurssonar og skartar
sýningin mörgum af okkar fremstu
söngvurum í aðalhlutverkum. Þóra
Einarsdóttir syngur titilhlutverkið,
hlutverk Ragnheiðar Brynjólfsdóttir
og Viðar Gunnarsson syngur hlutverk
Skálholtsbiskups, föður hennar. Hinn
ungi tenór Elmar Gilbertsson syngur
hlutverk Daða Halldórssonar.
Rammahús frá BYKO til sölu, stærð 41,1 fm2.
Til sýnis við BYKO Breidd, Skemmuvegi 2.
Upplýsingar í timbursölu BYKO og á fagsolusvid@byko.is
w
w
w
.e
xp
o.
is
/
E
XP
O
au
gl
ýs
in
ga
st
of
a
SÝNINGARHÚS
TIL SÖLU
58 menning Helgin 21.-23. febrúar 2014