Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.02.2014, Blaðsíða 8

Fréttatíminn - 28.02.2014, Blaðsíða 8
7.190 Skráð atvinnuleySi í janúar 2014 Vinnumála­ stofnun. atvinnulauSir í janúar 2014 Vinnumála­ stofnun í TÖLUM Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 bokun@baendaferdir.is Síðumúla 2, 108 Reykjavík Sp ör e hf . Komdu á útivistarkynningu mánudaginn, 3. mars kl. 20.00 hjá Bændaferðum í Síðumúla 2, 2. hæð. Allir hjartanlega velkomnir! Gönguferðir · Hjólaferðir · Hjólað um perlur Tíról · Trítlað við Zell am See · Trítlað í fjallasölum Alpanna · Gönguferð umhverfis Mont Blanc · Þriggja landa Alpaganga · Þjóðgarðar Klettafjallanna · Trítlað í Sölden Niðurföll og ofnar í baðherbergið EVIDRAIN Mikið úrval – margar stærðir COMPACT VERA 30cm 8.790,- Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Reykjavík Reykjanesbæ PROLINE 60 cm 23.990,- VITA handklæðaofn 50x80 cm kúptur, króm 14.290 Kynbundinn munur á heildar- launum hjá Kópavogsbæ er 3,25% körlum í vil, samkvæmt viðamikilli rannsókna sem gerð hefur verið fyrir bæinn. Enginn kynbundinn launamunur er á dagvinnulaunum. Dregið hefur úr kynbundnum launamun hjá bænum frá árinu 2003 en þá var hann 4,7%, að því er fram kemur í tilkynningu Kópa- vogsbæjar. „Sé tekið mið af stærstu sveitar- félögum landsins,“ segir enn fremur, „er Kópavogsbær með minnstan kynbundinn launamun. Munurinn er til dæmis 5,8% í  KópavogUr FasTráðnir sTarFsMenn Dregið hefur úr kynbundnum launamun Reykjavík, 6,1% í Hafnarfirði og 3,9% á Akureyri. Í útreikningum Kópavogsbæjar var ekki mögulegt að taka tillit til mennt- unar og starfsaldurs, líkt og iðulega er gert í rannsóknum sem þessum. Miklar líkur eru á því að óútskýrður launamunur kynjanna hjá bænum mældist enn minni ef þær breytur væru teknar með.“ Könnunin náði til allra fastráðinna starfsmanna bæjarins sem voru í að minnsta kosti 40% stöðugildi. Alls voru það 1.752 starfsmenn eða 80% allra þeirra sem starfa hjá bænum. Bæjarstjórn, bæjar- stjóri, nefndafólk og tímavinnufólk var þó undanskilið. -jh kynbundinn munur á heildarlaunum hjá kópavogsbæ er 3,25% körlum í vil. v erkefnið „Gefum tæki-færi“ auðveldar ráðning-arferli atvinnulausra og sýnir samfélagsábyrgð. Hildur Friðriksdóttir, félagsfræðingur hjá ráðgjafafyrirtækinu ProAc- tive, segir verkefni þeirra tengd samfélagsábyrgð hafa leitt þau til Festu-miðstöðvar um sam- félagsábyrgð. „Upphaflegt markmið ProAc- tive var, og er enn, að aðstoða vinnustaði með forvarnir til að minnka líkur á langri fjarveru vegna veikinda. Í tölum frá Evrópu kemur fram að streita og fjölskylduaðstæður eru helstu orsakir fjarvista fólks þannig að okkur finnst brýnt að vinnustað- ir taki meðal annars á þessum málefnum. Það er hægt að spara ótrúlega upphæðir í fyrirtækjum og innan heilbrigðiskerfisins bara með því að taka markvisst og af þekk- ingu á fjarvistarmálum og veik- indafjarveru. Við lítum á þetta sem samfélagslegt verkefni og höfðum því samband við Festu- miðstöð um samfélagsábyrgð. Þá kom í ljós að Vinnumálastofn- un hafði líka verið í sambandi við þau vegna hugmynda um að taka fólk af atvinnuleysisbótum í samstarfi við fyrirtæki innan vébanda Festu. Það er vel þekkt erlendis að stór fyrirtæki hafi opin pláss fyrir atvinnulaust fólk til reynslu.“ Fyrirtækin ISS, Ölgerðin og Mjöll Frigg eru meðal þeirra sem hafa ákveðið að sýna sam- félagslega ábyrgð með því að ráða til sín starfsfólk og fá þau styrk frá Vinnumálastofnun á meðan reynslutíma stendur. Fyrirtækin þurfa fyrst að fá samþykki frá Vinnumálastofnun og gera svo í framhaldinu sam- starfssamning. „Við hjá ProAc- tive förum inn í fyrirtækin, skoðum vinnuaðstæður og hvaða störf eru í boði. Vinnu- málastofnun útvegar fólk sem hentar í störfin og við tökum við- töl við það. Starfsmaðurinn fær síðan stuðning frá starfsmanni og okkur á meðan reynslutíma stendur,“ segir Hildur. Mark- mið verkefnisins er að ráða fólk til reynslu með það fyrir augum að til langvarandi ráðningar komi. Hildur segir það skipta mjög miklu máli að finna rétta fólkið ef ráðningin á að takast vel. „Í þessu verkefni nýtum við okkur kerfi sem er mikið notað á Norðurlöndunum en það er „starfsvinur“. Þetta er félags- legur vinur á vinnustað sem hægt er að leita til með hver- skyns efasemdir. Fólk sem hefur verið lengi frá vinnu er oft með lítið sjálfstraust og finnst það stundum geta minna en það raunverulega getur. Þetta virkar mjög vel og fólk nær miklu fyrr öryggi í starfi, sem eykur líkur á langtímaráðningu." Nú eru sex starfsmenn í vinnu hjá fyrirtækjunum þremur og vonast er til að fleiri fyrirtæki sýni verkefninu áhuga. „Starfs- maðurinn okkar hefur reynst frábærlega og var mjög fljótur að komast inn í þau störf sem ætlast var til. Við myndum hiklaust ráðleggja öðrum að fara þessa leið,“ segir Richard Krist- insson, framkvæmdastjóri hjá Mjöll Frigg. Ölgerðin hefur ekki áður tekið þátt í verkefnum með Vinnumálastofnun en stjórn- endur hjá Mjöll Frigg og ISS segja reynsluna vera betri nú en áður. „Utanumhald, leiðsögn og eftirfylgni er mun betri en áður þegar við tókum þátt í svipuðum verkefnum,“ segir Hólmfríður G. Einarsdóttir, gæðastjóri ISS. Og Richard bætir við að stuðningur- inn við stjórnendur geri ráðn- ingarferilinn mun auðveldari og aukinn skilningur sé hjá öðru starfsfólki gagnvart nýja starfs- manninum. Í byrjun var lögð áhersla á að finna störf sem krefjast ekki mikillar sérhæfingar en fram- undan verður einnig horft til fólks með sérfræðimenntun. „Fólk á það til að hugsa um atvinnulausa sem ófaglært fólk og útlendinga en það er alls- konar fólk atvinnulaust, fólk með sérfræðiþekkingu og mikla menntun líka,“ segir Hildur. Vinnumálastofnun hefur um langt skeið haldið utan um starfsþjálfunarsamninga sem miða að því virkja atvinnu- lausa. Nýjungin sem felst í verkefninu „Gefum tækifæri“ er sú að Vinnumálastofnun myndar samstarf við fyrirtæki sem vilja sýna samfélgsábyrgð í gegnum Festu, og fær að- stoð við sjálft ráðningarferlið í gegnum ProActive. „Venjulega hafa okkar ráðgjafar séð um allt ferlið en nú er svo komið að álagið hér er svo mikið að við ákváðum að kaupa þessa þjónustu af ProActive,“ segir Guðlaug Pétursdóttir, deildar- stjóri ráðgjafasviðs hjá Vinnu- málastofnun. Hún segir verk- efnið ekki komið langt á veg en upphafið lofi góðu. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is  aTvinnULeysi nýTT saMsTarFsverKeFni sýnir saMFéLagsábyrgð Tækifæri fyrir atvinnulausa „Gefum tækifæri“ er samstarfsverkefni vinnumálastofnunar, Festu-miðstöðvar um samfélags- ábyrgð og ráðgjafafyrirtækisins Proactive. verkefnið hófst síðastliðið haust og miðar að því að fyrirtæki ráði til sín starfsfólk sem hefur verið lengi á atvinnuleysisskrá og er að missa bótarétt. Hildur Friðriksdóttir, félags- fræðingur hjá ráðgjafafyrirtækinu Proactive 4,5% aukninG atvinnuleySiS frá desember 2013 Vinnumála­ stofnun. 0,3% 8 fréttir Helgin 28. febrúar - 2. mars 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.