Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.02.2014, Blaðsíða 26

Fréttatíminn - 28.02.2014, Blaðsíða 26
KL Ú BB U R MA TREIÐSLU M EISTARA1 9 7 2 Sérvalda saltkjötið frá Kjarnafæði Heimsklassa hráefni SÉRVALIÐ SALTKJÖT FRÁ KJARNAFÆÐI SÉRVALIÐ FYRIR ÞIG því enn alltaf yfir honum þessi ógn og erfitt að spá fyrir um batahorfur til framtíðar,“ segir Stefanía en Sveinn náði sér mjög fljótt aftur á strik eftir aðgerðina og gekk á Esj- una aðeins hálfu ári síðar. „Mamma hans krafðist þess reyndar að félagar hans færu með honum til að passa upp á hann,“ segir hún. Nálægðin við dauðann breytir fólki og það breytti Sveini sannarlega. „Ég hugsa stundum um hvernig lífið væri í dag ef ég hefði ekki veikst og ég held að ég væri ekki að fá jafn mikið út úr lífinu. Ég hugsa að auðmýkt sé rétta orðið yfir það sem ég öðlaðist í veikindunum. Mér varð líka hugsað til orða Steve Jobs í Standford-ræðunni frægu þar sem hann sagði að dauðinn væri besti hvatinn til að endurskapa sig.“ Á meðan Sveinn lá á spítalanum hafði hann nægan tíma til að hugsa, of mikinn nánast, og fann hjá sér sterka þörf til að koma minn- ingum sínum og reynslusögum til barnanna sinna. „Ég var sextán ára þegar ég missti bróður minn í vinnuslysi og var meðvitaður um höggið sem það var fyrir fjöl- skylduna. Þegar ég lá á Landspítal- anum upplifði ég að ég hefði fengið auðvelda hlutverkið, ég réði engu um framhaldið en vissi hvað allir í fjölskyldunni minni ættu eftir að ganga í gegnum. Þarna átti ég líka nýfædda stelpu og 14 mánaða gamlan son og ég sá fyrir mér að þau myndu ekki eiga neinar minn- ingar um mig. Ég bað frænda minn um að taka af mér myndbönd með skilaboðum til barnanna minna en hann neitaði því, og sagði að ég myndi lifa þetta af. En þarna byrjaði ég að sjá fyrir mér þennan miðil þar sem fólk gæti tekið upp skilaboð, lesið þau inn eða sent inn mynd- bönd, og að þeim væri komið áleiðis þegar fólk félli frá,“ segir hann. Til stóð að Sveinn færi í örorkumat en hann vildi ekki fara í slíkt mat þar sem hann sá fyrir sér að hann gæti unnið að þessari hugmynd sinni. Hann fékk bílastæðakort fyrir fatl- aða sem gildir til ársloka 2014 en það geymir hann bara ofan í skúffu sem minjagrip. „Mér dettur ekki til hugar að nota kortið. Það eru aðrir sem þurfa á þessum bílastæðum að halda,“ segir hann. Hugmyndin um dauðann stuðaði marga „Eftir veikindi Sveins ákváðum við að við ætluðum bara að gera það sem okkur þætti skemmtilegt, Við eignuðumst því þriðja barnið þó við ættum fullt í fangi með hin tvö og fylgdum draumi Sveins,“ segir hún. Á háskólaárunum stofnaði Stefanía nýsköpunar- og frumkvöðlasetrið Innovit ásamt skólafélögum sínum og hafði hún því reynslu úr ný- sköpun. Sumarið 2012 tóku þau þátt í StartUp Reykjavík, verkefnið fór á flug og Arion banki keypti sig inn í fyrirtækið. „Það sem meira máli skipti var að við þátttökuna fengum við aðgang að 60 reynsluboltum úr atvinnulífinu, auk þess sem það gaf manni mikinn trúverðugleika út á við að hafa verið valin til að taka þátt í Startup Reykjavík. Við fengum til liðs við okkur forritara og hönnuð, en þurftum reyndar sannarlega að berjast fyrir því að samstarfsaðilar okkar myndu virða sýnina sem Sveinn hafði, byggða á eigin reynslu. Fólk hafði ýmsar hugmyndir um hvernig væri hægt að gera þetta eftirsóknarverðara fyrir fjárfesta en við lögðum alltaf áherslu á notandann að kerfinu. Hugmyndin um dauðann stuðaði marga en okkur tókst að lifa af,“ segir Stefanía. Verkefnið vakti athygli eftir þátt- tökuna í StartUp Reykjavík og í framhaldinu hafði fólk samband við þau og undanfarna mánuði hefur fólk með ólíkar sögur og ólíkan bakgrunn tekið þátt í að prufukeyra vefinn. „Þessi útgáfa sem nú fer í loftið er fyrsta útgáfan sem við erum sátt við en við vonumst til að sem flestir prófi hana þannig að við getum þróað þetta áfram,“ segir Stefanía. Pabbi Sveins hefur einnig prófað kerfið og sér Sveinn fyrir sér að kerfið geti lifað kynslóð fram af kynslóð. „Amma þín gæti sett inn efni fyrir dóttur þína, og þegar dótt- ir þín eignast börn geta þau horft á langömmu sína segja frá lífi sínu. Það væri líka hægt að nota þetta þannig að börnin hlusta á langa- langafa sinn lesa söguna um Rauð- hettu og úlfinn áður en þau sofna. Það eru engar hömlur á því hvað fer þarna inn og frásögn af sumarfríinu á Benidorm ´98 ekki síðri en aðrar.“ Notendur velja hvaða ástvinir fá hvaða skilaboð, og er þannig hægt að skrifa fallegt ástarbréf til maka síns sem hann fær eftir að þú fellur frá en búa til önnur skilaboð fyrir vinina og enn önnur fyrir börnin. „Okkar vinir sem í fyrstu héldu að þeir myndu aldrei nota svona eru farnir að tala um að þá langi að prófa,“ segir Stefanía. „Við vinkon- urnar höfum líka komist að því að það er margt sem við erum ekki til- búnar til að segja börnunum okkar en væri gott fyrir þau að vita þegar við erum farnar. Svo kannski verða börnin þrítug og maður enn á lífi og getur þá sagt söguna sjálfur.“ Opið hús um helgina Undanfarið ár hafa Sveinn og Stef- anía aðeins unnið að þessu verkefni og hafa því þurft að forgangsraða. „Við tæmdum auðvitað frystinn, borðuðum gráfíkjurnar sem voru aftast í skápnum og frestuðum því að gefa hvort öðru jóla- og afmælis- gjafir. Við slepptum því líka að kaupa hurð á eitt barnaherbergið og settum peningana frekar í tóm- stundir fyrir börnin. Íbúðin sem við búum í leigjum við af foreldrum Stefaníu og þeir eru mjög sann- gjarnir leigusalar,“ segir hann. Fjöldi aðila hefur í stutt þau opin- berlega, Hjartaheill, Krabbameins- félag Íslands, MS félagið; Arion banki styrkti verkefnið enn frekar sem og Rannís. „Hver sem er getur skráð sig ókeypis til að prófa kerfið en þeir sem velja Ævi Premium eru auð- kenndir í gegnum heimabanka á öruggan hátt þannig að enginn vafi leiki á um hvern er að ræða. Kerfið er síðan tengt við Þjóðskrá þannig að þegar notandi fellur frá kemur kerfið skilaboðunum á sinn stað. Notandi þarf því aldrei að láta neinn vita. Skilaboðin berast mánuði eftir andlát, en eftir samtöl við sjúkra- húspresta og djákna komumst við að því að það væri ákjósanlegur tími.“ Þau eru þegar komin á skrið með verkefnið í Bandaríkjunum og prófanir þar hefjast í mars á vegum Dignity Healh í Sacramento. Um helgina verður Ævi með opið hús í SÍBS-húsinu Síðumúla, laugardag og sunnudag milli klukkan 10 og 16, þar sem hægt er að prófa kerfið, spjalla við starfsfólk og hitta þá sem hafa prufukeyrt kerfið. „Börnin okkar eru búin að vera með okkur í þessu allan tímann og vita fullkomlega hvað við höfum verið að gera. Um daginn spurði ég son okkar hvað hann ætlaði að verða þegar hann yrði stór og hann sagðist ætla að stofna fyrirtæki, fyrirtæki sem býr til skutlur. Hvað sem verður hefur okkur allavega tekist að vera börnunum góðar fyrirmyndir,“ segir Sveinn. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Klara Margrét kom í heiminn þegar pabbi hennar, Sveinn, var sem veikastur en þá var Kristján bróðir hennar 14 mánaða. Seinna bættist Karlotta Lind í hópinn. 26 viðtal Helgin 28. febrúar - 2. mars 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.