Fréttatíminn - 28.02.2014, Blaðsíða 13
OPIÐ: VIRKA DAGA 11-19 FIMMTUDAGA 11-21 LAUGARDAGA 11-18 SUNNUDAGA 13-18 WWW.SMARALIND.IS FINNDU OKKUR Á
M atteo Renzi tók við forsætisráðherra-stólnum af forvera
sínum, Enrico Letta, en Letta
vék fyrir Renzi eftir aðeins 10
mánuði í embætti. Demókrata-
flokkurinn, sem er aðeins til
vinstri við miðjuna, vonast nú
til að Renzi muni takast að gera
það sem Letta tókst ekki, að
blása lífi í efnahag í molum.
Renzi er 39 ára og því yngsti
forsætisráðherra í sögu Ítalíu
og sá fyrsti til að skipa konur í
helming ráðherrasætanna.
Renzi var borgarstjóri Flór-
ens í fimm ár áður en hann
steig inn í landspólitíkina.
Hann er fæddur og uppalinn í
Flórens, lærður lögfræðingur,
er giftur og á þrjú börn. Hann
kynntist konu sinni, Agnese
Landini, í skátunum þegar
hann var 19 ára og hafa þau
verið saman siðan. Agnese er
andstæða hinnar stereotýpísku
ítölsku eiginkonu og hefur
vakið mikla athygli um alla
Suður-Evrópu fyrir að bera
ekki skart og vera ómáluð á
opinberum uppákomum. Það
hefur ekki síður vakið athygli
að hún ætlar ekki að hætta að
vinna sem kennari nú þegar
eiginmaðurinn sest í forsætis-
ráðherrastólinn og mun áfram
búa í Flórens með börnum
þeirra hjóna. Ítalskir fréttaskýr-
endur segja áherslu Renzi á að
endurreisa menntakerfið vera
að miklu leyti til komna vegna
áhrifa frá eiginkonunni en hún
hefur starfað sem kennari til
fjölda ára.
Hjónin voru nýgift þegar
Renzi fór að láta til sín taka í
pólitík og aðeins 24 ára varð
hann héraðsstjóri Flórenshér-
aðs, sá yngsti í sögu Ítalíu. Árið
2009 varð hann svo borgarstjóri
Flórens. Hann vakti töluverða
athygli sem borgarstjóri, fyrir
vaska framkomu og afskipti sín
af landspólitik. Árið 2011 vakti
hann reiði margra starfsbræðra
sinna þegar hann sagði alla
pólitíkusa á aldri við Berlus-
coni verða að segja af sér. Í
desember 2012 bauð Renzi sig
svo fram til að leiða flokkinn
í þingkosningum 2013 en lét í
minni pokann fyrir Pier Luigi
Bersani. Þegar Bersani lét
síðan af störfum í apríl 2013 tók
Enrico Letta við sem forsætis-
ráðherra, en Renzi var kjörinn
formaður flokksins. Síðan hef-
ur verið spenna innan flokksins
þangað til Letta sagði af sér nú í
febrúar eftir þrýsting frá Renzi
og flokknum.
Í fyrstu þingræðu sinni,
þann 22. febrúar síðastliðinn,
talaði Renzi af þeim sannfær-
ingarkrafti sem hann er orðinn
þekktur fyrir, án tilbúinnar
ræðu, sem hann er líka orðinn
þekkur fyrir. Hann talaði um
róttækar breytingar, um að
umturna gamaldags stjórnkerfi
Ítalíu, útrýma spillingu, endur-
bæta skatta og lagaumhverfi,
lagfæra kosningalöggjöfina og
breyta fyrirkomulagi þingsins
sem hann talaði til. Hann talaði
um að lækka skuldir ríksins,
„ekki vegna þess að Merkel
segi að við eigum að gera það,
heldur því við verðum að gera
það, fyrir börnin okkar.“ Í lok
ræðu sinnar talaði Renzi svo til
fólksins þegar hann sagði; „Við
þurfum drauma og hugrekki.
Við þurfum að vera hreykin
aftur, hætta að kvarta og kveina
og muna að það er gjöf að vera
Ítali.“
Í þessari ræðu lofar Renzi
endurreisn Ítalíu og hefur fyrir
það verið harðlega gagnrýndur
af mótherjum sínum. Þeir
segja hann vera popúlista sem
lofi gulli og grænum skógum
án nokkurrar innistæðu. Þær
töfralausnir sem hann lofi séu
í raun bara ekki í boði. Renzi
hefur auk þess verið líkt við
Mussolini og Berlusconi fyrir
að stíga hratt fram á pólitíska
sjónarsviðið, tala beint til fólks-
ins og komast áfram á sjarm-
anum. Honum hefur líka verið
líkt við Tony Blair fyrir að taka
skyndilega völdin af eldri for-
ystu flokksins og lofa að breyta
tímunum á róttækan hátt.
Reyndar hefur hann sjálfur sagt
að Tony Blair sé eitt af sínum
átrúnaðargoðum. Á prófilmynd
Renzi á fésbókinni gefur að
líta hressan Renzi, herralegan
og fínan i jakkafötum á hjóli
í sólinni, en að breyta miðbæ
Flórens í göngu- og hjólasvæði
er sennilega hans þekktasti
og þakklátasti gjörningur sem
borgarstjóri Flórensborgar.
Hann ferðast alltaf á hjóli eða
litlum bílum, er ungur, hress og
metnaðarfullur. Hress hjólreiða-
maður með stór kosningaloforð.
Í íslenskum raunveruleika er
kannski hægt að segja að hann
sé blanda af Gísla Marteini og
Sigmundi Davíð.
En sama hverjum hann líkist
þá er nokkuð ljóst að Matteo
Renzi bíður ekki auðvelt verk.
Bjartsýnisfólk segir Renzi vera
ferskan og nauðsynlegan and-
vara í afturhaldssamt og úrelt
kerfi. Hann sé svo drífandi og
fullur orku að hann hljóti að ná
að rífa Ítalíu upp úr kreppunni.
En það er örugglega auðveldara
að stjórna fallegri endurreisn-
arborg en að endurreisa heilt
land. Land sem er með þriðja
stærsta hagkerfi evrunnar,
en stendur einna verst að vígi
efnahagslega fyrir utan Spán
og Grikkland, og er aðeins er
spáð 0,7% hagvexti í ár. 55,6% at-
vinnufærra landsmanna eru án
vinnu og stúdentar eru almennt
mjög svartsýnir á framtíðar-
horfur sínar. Þar fyrir utan er
ítalska pólitíkin ekki þekkt fyrir
mikinn stöðugleika og hvorki
meira né minna en 50 ríkisstjórnir
hafa reynt að stýra landinu eftir
seinni heimsstyrjöldina. Við
skulum samt vona með Renzi að
brátt geti Ítalir hætt að kvarta
og kveina og farið að njóta þess
að vera Ítalir.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
fréttaskýring 13 Helgin 28. febrúar - 2. mars 2014