Fréttatíminn - 28.02.2014, Side 14
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is
Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg
Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði
Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri:
Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jón-
asson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi
ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
Þ Þrír mánuðir eru til sveitarstjórnarkosninga, sem fram fara 31. maí. Að vanda horfa menn helst til Reykjavíkur, sveitarfélagsins sem ber höfuð og herðar yfir önnur í landinu. Línur hafa skýrst hvað varðar framboðslista í höfuðborginni. Sjálfstæðisflokkurinn hefur birt framboðs-
lista sinn. Björt framtíð hefur birt lista með nöfnum 16
efstu, prófkjör hefur farið fram hjá Samfylkingunni og val-
fundur hefur valið fólk í efstu sætin á lista Vinstri grænna.
Framsóknarflokkurinn hefur birt lista 7 efstu manna.
Þá hefur prófkjör farið fram hjá Pírötum.
Dögun mun bjóða fram. Óvíst er um önnur
framboð, nokkur hafa gefið undir fótinn
með slíkt.
Besti flokkurinn, undir forystu Jóns
Gnarr, vann stórsigur í síðustu borgar-
stjórnarkosningum. Flokkurinn fékk 6
borgarfulltrúa og eðli máls samkvæmt varð
Jón borgarstjóri í meirihlutasamstarfi við
Samfylkinguna. Staðan í íslensku samfélagi
var óvenjuleg árið 2010, þegar Jón Gnarr
kom, sá og sigraði. Staða landsmála hefur
áhrif í sveitarstjórnarkosningum. Kjósendur
í borginni sýndu að þeir vildu, svo skömmu eftir efnahags-
hrun, refsa gömlu flokkunum. Útkoma þeirra var slök.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 5 borgarfulltrúa í þessu gamla
höfuðvígi sínu, Samfylkingin 3 og VG 1. Framsóknar-
flokkurinn kom ekki að manni, né önnur smærri framboð.
Tvær misvísandi skoðanakannanir hafa verið birtar
undanfarna daga um fylgi flokkanna í Reykjavík. Gallup-
könnun sýnir jafna stöðu Sjálfstæðisflokksins og Bjartrar
framtíðar, báðir flokkar með um 28% fylgi – og fengju 5
borgarfulltrúa hvor. Samkvæmt þeirri könnun stendur
fylgi Sjálfstæðisflokksins í stað en Björt framtíð bætir við
sig þremur prósentustigum milli kannana. Samfylkingin
mældist með 18% fylgi – og 3 fulltrúa. Píratar og VG voru á
svipuðu róli með tæp 11 og tæp 10% og sitt hvorn fulltrú-
ann.
Könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands, sem
Morgunblaðið birti á miðvikudaginn, sýnir hins vegar
dalandi fylgi Bjartrar framtíðar, aukið fylgi Sjálfstæðis-
flokksins milli kannana og lítillega aukið fylgi Samfylk-
ingarinnar. Samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar
fengi Sjálfstæðisflokkurinn 28,4% og 5 borgarfulltrúa.
Samfylkingin 23,5% og 4 fulltrúa en Björt framtíð 21% fylgi
og 3 menn kjörna. Píratar fengju 11,7%, 2 borgarfulltrúa
og VG 11,1% og 1 mann.
Núverandi meirihluti héldi miðað við Gallup-könnunina
en félli samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar. Björt
framtíð tók í raun við kefli Besta flokksins eftir að Jón
Gnarr ákvað að hætta að loknu kjörtímabilinu. Miðað við
Gallup-könnunina virðist brotthvarf hans ekki hafa skipt
sköpum en annað er uppi á teningnum þegar litið er til
könnunar Félagsvísindastofnunar. Samkvæmt henni tapar
arftaki Besta flokksins helmingi borgarfulltrúanna. Flokk-
urinn missir forystustöðu sína, mælist minni en bæði Sjálf-
stæðisflokkurinn og Samfylkingin.
Sé litið til sögulegrar stöðu Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík hefur hann ekki náð vopnum sínum. Fylgið
er langt undir meðalfylgi og talsvert lakara en í sveitar-
félögunum í kringum hana. Kannanir sýna að meirihluta-
fylgi flokksins á Seltjarnarnesi og í Garðabæ er öruggt.
Flokkurinn hefur einnig meirihlutafylgi í Mosfellsbæ. Í
Kópavogi mælist fylgi flokksins yfir 41% og í Hafnarfirði
yfir 33%. Kosningabaráttan í borginni er ekki hafin og
margt getur breyst á næstu þremur mánuðum. Megin-
stefna flokkanna er þekkt – þótt óvissa sé enn um ákveðin
áhersluatriði. Meðal annars verður litið til afstöðu til þétt-
ingar byggðar og stöðu úthverfa, viðhorfa til flugvallarins,
leik- og grunnskólamála, samgöngumála og síðast en
ekki síst fjárhagsstöðu borgarinnar og hvernig álögum
á borgarbúa verður háttað. Persónulegi þátturinn skipar
síðan sinn sess, ekki síst frammistaða leiðtoganna.
Þegar kosningabaráttan kemst á lokastig, væntanlega
eftir páska, ættu línur að vera farnar að skýrast. Haldi
Björt framtíð og Samfylkingin meirihluta sínum má gera
því skóna að samstarfið haldi áfram, væntanlega undir for-
ystu þess er meira fylgi fær. Falli meirihlutinn er staðan
önnur og opnari – og færir Sjálfstæðisflokknum tækifæri.
Verði niðurstöður kosninganna í líkingu við könnun Fé-
lagsvísindastofnunar verður ekki hægt að mynda tveggja
flokka meirihluta án þátttöku sjálfstæðismanna.
Það stefnir í spennandi baráttu í borginni.
Að vanda er horft til höfuðborgarinnar í komandi sveitarstjórnarkosningum
Þrír mánuðir í kosningar
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Nýstárlegt og glæsilegt útlitið kemur á óvart, en þú verður fyrst verulega hissa þegar þú kemur inn í bílinn og finnur hversu rúmgóður hann er.
Fóta- og höfuðrýmið í þessum fyrsta hlaðbaki sinnar tegundar frá Škoda er nefnilega það mesta sem fyrirfinnst í þessum stærðarflokki bíla.
Skyggða sóllúgan, sem hægt er að fá sem aukabúnað, og stór afturrúðan auka svo enn frekar á frelsistilfinninguna. Þegar við þetta bætast
allar góðkunnu „Simply Clever“ lausnirnar frá Škoda er útkoman bíll sem á engan sinn líka. Sestu inn og njóttu þess að láta fara vel um þig.
Nýr ŠKODA Rapid Spaceback
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · www.skoda.is
5 stjörnur í árekstrar-
prófunum EuroNcap
Eyðsla frá 4,4 l/100 km CO2 frá 114 g/km
114g
4
,4
Nýr ŠKODA Rapid Spaceback kostar aðeins frá:
3.080.000,-
m.v. ŠKODA Rapid Spaceback 1.2TSI, 86 hestöfl, beinskiptur.
SIMPLY CLEVER
UPPLIFÐU RÝMI
Vikan sem Var
Ohhh, þessar
staðreyndir!
Ég er ekki full-
komnari en
þetta.
Elín Hirst,
þingmaður
Sjálfstæðis-
flokksins,
útskýrir
ástæður þess að
hún sagði Grænlendinga
ólma vilja losna úr ESB.
Eitthvað sem þeir gerðu
fyrir margt löngu.
Ohhh, þessi
Steingrímur!
Ég hef þó ekki logið að
þinginu eins og þú.
Gunnar Bragi Sveinsson
utanríkisráðherra lét
ræðu Steingríms J. fara
í taugarnar á sér og var
með frammíkall sem gæti
dregið dilk á eftir sér.
Ohhh, þessi
Gunnar Bragi!
Ég ætla að
hlusta á
þessi um-
mæli og
ráðfæra
mig við
góða menn,
en ég hef
ekki skap til þess að láta
þennan Gunnar Braga
Sveinsson halda upp-
teknum hætti og bera á
mig rangar ávirðingar.
Steingrímur J. Sigfússon
er orðinn þreyttur á
utanríkisráðherra og
íhugar að stefna honum
fyrir lygabrigsl.
Ohhh, þessi Bjarni!
Helvítis dóni.
Katrín
Júlíusdóttir
brást hin
versta við
þegar Bjarni
Benedikts-
son fjár-
málaráðherra
gaukaði að henni
dagskrá þingsins þar
sem hún stóð í ræðustóli
þingsins.
14 viðhorf Helgin 28. febrúar - 2. mars 2014