Fréttatíminn - 28.02.2014, Blaðsíða 23
hlýtur að kalla á endurskoðun á
því kerfi sem við erum með. Svo er
börnum bent á að fara í verknám ef
þeim hentar ekki bóknám, en svo
kemur upp úr dúrnum að verknám
hér á landi byggist reyndar fyrst og
fremst á bóknámi!“ segir hún.
Fékk alltaf fiðring í magann
Jóhanna Vigdís sagði nýverið skilið
við góða vinkonu, Mary Poppins,
sem hún hefur gætt lífi í heilt ár.
Sýningin sló öll met og segir Jó-
hanna Vigdís aðspurð að það sé ljúf-
sárt að skilja við hana. „Hún er gjör-
samlega það skemmtilegasta sem ég
hef gert fyrr og síðar, en það er líka
dásamlegt að geta aftur eytt meiri
tíma með fjölskyldunni,“ segir hún.
„Ég fór meira að segja á skíði í Blá-
fjöll með fjölskyldunni fyrstu fríhelg-
ina og get núna mætt í afmælisboð,“
segir hún og hlær. Sýndar voru fimm
sýningar á viku að meðaltali, sam-
tals 138 sýningar. Hún segist aldrei
hafa orðið leið á Mary Poppins. „Ég
segi alveg satt og rétt frá að ég fékk
fiðring í magann fyrir hverja einustu
sýningu ég hlakkaði svo til. Þó svo
að ég hafi þurft að vakna hálf níu alla
laugardags- og sunnudagsmorgna
nánast í heilt ár til að vera mætt
hingað klukkan hálf ellefu fyrir
sýningu klukkan eitt,“ segir hún og
hlær. „Það var samt gaman,“ bætir
hún við. „Þetta var það skemmtileg-
asta sem ég hef gert – en jafnframt
það erfiðasta,“ segir hún.
Alls komu rúmlega 73 þúsund
gestir á sýninguna þannig að ætla
má að tæplega fjórði hver Íslend-
ingur hafi séð Jóhönnu í hlutverki
Mary Poppins. Spurð hvort börn
séu farin að heilsa henni úti á götu
segir hún að þau þekki oft röddina.
„Krakkar eru svo naskir. En það
er voða gaman. Börn eru nátt-
úrulega svo skemmtilegir áhorf-
endur. Kannski bara með svolitla
einhverfueiginleika því þau eru
ekkert í því að þykjast,“ segir hún
og hlær.
Tók ekki hlutverkið með heim
Jóhanna Vigdís segist hafa verið
hrifin af Mary Poppins sem uppal-
anda. „Hún er mjög skemmtileg,
frábær karakter að fá að leika.
Hún er svo „meðidda“ og svo
sannfærð um hvað hún er „með-
idda“. Hún er ekkert að monta sig
af því enda er það bara staðreynd.
Hún er ágætis uppalandi, leyfir
fólki að reka sig á og læra af mis-
tökunum, kannski nokkuð sem
maður ætti sjálfur að tileinka sér
í uppeldinu, að leyfa börnunum að
vera duglegri að finna út úr hlut-
unum sjálf.“
Hún segist þó ekkert hafa
tekið hlutverkið með sér heim á
kvöldin. „Reyndar báðu strákarn-
ir mínir, sem eru 6 og 8 ára, mig
oft um að smella fingrunum eins
og Mary Poppins gerði þegar hún
var að svæfa börnin. Hún smellti
fingrum og börnin sofnuðu sam-
stundis. Strákarnir mínir báðu
mig oft að gera þetta og ég smellti
fingrum og þá sögðu þeir: „Sko!
Það gerist ekkert“ og skelli-
hlógu,“ segir hún hlæjandi.
Hringdu í síma 440 9010 eða sendu póst á sala@advania.is
og fáðu upplýsingar um þessa frábæru vél.
Velkomin í verslanir okkar:
advania.is
Viltu losna
við aukakílóin?
Guðrúnartún 10, Reykjavík
Opið mán. til fös. frá 8 til 18
Lau. frá 12 til 16
Tryggvabraut 10, Akureyri
Opið mán. til fös. frá 8 til 17
2,1cm
Ótrúlega ne og 33%
þynnri en forveri sinn.
13 klst.
Ra
laðan endist í allt að 13
tíma. Fer m.a. eir stillingum.
16 GB
Sérlega öflug og hraðvirk,
allt að 16GB vinnsluminni.
1,6 kg
Fislé og fáguð, vegur
ekki nema 1600 grömm.
Dell Latitude E7440 – Lé og öflug fartölva fyrir kröfuharða.
In
te
l, m
er
ki
In
te
l, I
nt
el
C
or
e
og
C
or
e
in
si
de
e
ru
v
ör
um
er
ki
In
te
l C
or
po
ra
ti
on
í
B
an
da
rí
kj
un
um
o
g/
eð
a
öð
ru
m
lö
nd
um
.
Þessari vél fylgir „Dell Branded Services“
sem tryggir betri og fljótari þjónustu.
Þjónustuábyrgð Dell (DBS)
Nýtir sömu tengikví og
spennubreyta og áður.
Hámarks árfesting
Asperger heilkenni er gagntæk
truflun á þroska og flokkast með
einhverfu. Höfuðeinkenni Asperger
er skortur á hæfni til gagnkvæmra
félagslegra samskipta. Fólk sem
greint hefur verið með Asperger
kallar sig oft aspa.
Aspana virðist skorta það sem kalla
mætti félagslegt innsæi. Þeir eiga
erfitt með að skilja samskipti sem
ekki felast í orðum heldur svip-
brigðum, augnaráði, bendingum og
líkamsstöðu. Það vefst einnig fyrir
þeim að setja sig í spor annarra
og að gefa öðrum hlutdeild í eigin
tilfinningum. Þeim gengur illa að
eignast vini og sérstaða þeirra
getur m.a. valdið því að þeir verði
frekar en aðrir fyrir stríðni, einelti
og öðru neikvæðu viðmóti.
Annað megineinkenni er sér-
kennileg áhugamál og áráttukennd
hegðun. Algengast er að fá
yfirþyrmandi þráhyggjukenndan
áhuga á þröngt afmörkuðu sviði.
Áhugamálin eru oft óvenjuleg og
illa til þess fallin að deila þeim með
öðrum. Áhugamálið getur breyst
á nokkurra mánaða eða ára fresti,
en eðli þess er hið sama og það
verður gjarnan yfirdrifið. Dæmi um
áhugamál eru risaeðlur, strætis-
vagnaáætlanir og flugvélategundir.
Oft er um að ræða þörf fyrir að
strjúka vissa fleti með höndum og
fótum eða að notaðar eru síendur-
teknar hreyfingar s.s. að hreyfa
stöðugt höfuð, ræskja sig eða láta
braka í hnúum.
Önnur einkenni sem eru oft til
staðar eru tilbreytingalaus og
oft klifandi talandi, sérkennilegt
málfar og erfiðleikar með að skilja
óhlutbundið og myndrænt mál og
misskilja ýmis orðatiltæki og taka
þau bókstaflega. Líkamstjáningu
er oft ábótavant og hreyfingar oft
klunnalegar.
Sjá nánari lýsingu á doktor.is
Einkenni Asperger
Hún er gjörsamlega það skemmti-
legasta sem ég hef gert fyrr og síðar,
en það er líka dásamlegt að geta aftur
eytt meiri tíma með fjölskyldunni.
viðtal 23 Helgin 28. febrúar - 2. mars 2014