Fréttatíminn - 28.02.2014, Síða 34
www.odalsostar.is
Cheddar er framleiddur á Sauðarkróki og kinkar
kumpánlega kolli til bróður síns sem nefndur
er eftir samnefndum bæ í Somerset, Englandi.
Vinsældir Cheddars-osts eru slíkar að í dag er
hann mest seldi ostur í heimi. Óðals Cheddar er
þéttur, kornóttur, eilítið þurr í munni en mildur,
með votti af beikon- og kryddjurtabragði og
ferskri, eilítið sýrðri, ávaxtasætu í lokin. Cheddar
er skemmtilegur í matargerðina, sérstaklega í
baksturinn og á ostabakkann með kjötmeti.
ÍSLENSKUR CHEDDAR
LAGLEGUR
Þ að er að koma mars og það þýðir bara eitt. Yfirvaraskegg! En söfnunarátakinu Mott-umars er þó nokkur vandi á höndum. Yfir-
skeggið er nefnilega alls ekki jafn hallærislegt og
margir vilja af láta. Sé rétt að verki staðið er nefni-
lega fátt karlmannlegra en vel loðið granstæði.
Mottumars er gott málefni. Gert til að auka
vitund fyrir krabbameini á öllum „karlmannlegu
stöðunum“. Því er tilvalið að nýta mánuðinn til að
skarta loðinni eftri vör til styrktar góðu málefni.
Jafnvel bara svo hægt sé að ganga um í einn mánuð
óáreittur í samfélagi sem heldur, í einfaldleika
sínum, að yfirskegg sé hallærislegt. Því innst inni
þrá allir karlmenn að líta út eins og Burt Reynolds
frá sirka 1977.
Ávöxtunarkrafan
Nú! Það sem þarf til að safna yfirskeggi er hárvöxt-
ur. Ekki aðeins inni í nefinu heldur undir því líka.
Allur efrivararvöxtur er þó leyfilegur í mars. En
það er betra ef það sem þar vex næst ekki af með
góðu Boxy strokleðri.
Tímabilið sem það tekur að ná fram fallegum
vexti er það erfiðasta í lífi hverrar mottu. Við-
kvæmir ættu því að láta annan hárvöxt í andliti
fylgja með. Það er miklu einfaldara að láta sér vaxa
alskegg og snyrta svo kjamma og höku þangað til
fallegu yfirvarakonfekti er náð. Að ströggla með
hárbíur undir nefinu einu saman, jafnvel svo vikum
skiptir, er því miður ekki töff.
Það er þó ekki boðið upp á neinn pempíuskap í
Mottumars. Sem þýðir að ef andlitið er ekki hulið
umheiminum nú þegar er of seint að leggja í al-
skeggsaðferðina.
Þá þarf bara að harka af sér hýjunginn og
finna út hvaða tegund á að safna í. Þær eru jú
mýmargar. Allir vildu geta safnað í jafn fallegt
„pennslaskegg“ og Tom Selleck. Það er bara
ekki alltaf í boði og er um að gera að prófa sem
flestar týpur.
Umhyggjan
Svo þarf að halda sig á mottunni. Það þarf að snyrta
með litlum skærum, greiða með lítilli greiðu og
þeir hörðustu nota lítillega af vaxi. Eina skeggið
sem má líta frekar rytjulega út er úrsérvaxni rost-
ungurinn. Annars er það að láta sér vaxa yfirskegg
eins og að fá sér hund. Oft á tíðum erfiðisvinna og
eigandann langar að senda skeggið upp í sveit. En
þegar fyrstu og erfiðustu hjallarnir eru að baki
mun skeggið veita gleði og stuðning um ókomna
tíð.
Fyrir þá sem bara tekst ekki að safna í fallega
mottu hljóta bartar að koma aftur bráðum.
Haraldur Jónasson
hari@frettatiminn.is
Yfirskegg er æði
2 43 5
6
7
8
1
9
1. Burtarinn er alltaf nr. 1, það er
bara þannig.
2. Þess vegna verður Tom Selleck
alltaf nr. 2 þótt margir vilji nú meina
að hans granstæði og vöxtur séu
með þeim hætti að fáir leiki eftir.
3. Stalín sportaði svokallaðri
hjólastýrismottu og gerði það vel.
4. Súrrealistinn Dali lék sér með þá
uppsnúnu og fékk fyrir vikið skegg-
tegund nefnda eftir sér.
5. Jason Lee. Sá sem lék Earl í sam-
nefndum þáttum sá um að koma
mottunni inn í nýja árþúsundið.
6. Sam Elliot. Hann ásamt Kurt
Russel fyllir titilinn svalasti maður
í heimi og býður yfirleitt upp upp á
svokallaðan rostung.
7. Mýtubrjóturinn Jamie Hyneman
tekur rostunginn lengra í svokall-
aðan úrsérgenginn rostung.
8. Fúli pabbinn í þáttunum um
mótorhjólasmiðina býður upp á
skeifu. Útlit sem Hjörleifur Gutt-
ormson, fyrrum ráðherra, er hvað
þekktastur fyrir hérlendis.
9. Það vill enginn líta út eins og
Hitler.
34 karlmennska Helgin 28. febrúar - 2. mars 2013