Fréttatíminn - 28.02.2014, Side 52
52 fjölskyldan Helgin 28. febrúar - 2. mars 2014
Mismunandi meðhöndlun á stúlkum og drengjum
B leikt og blátt; þessir tveir litir birtast nýjum þegnum samfélagsins fyrst á fæð-ingardeildinni og eru síðan óaðskiljanlegir fylgifiskar barna fram eftir aldri. Stúlkur eru klæddar í bleikt og drengir skilvíslega í blátt svo að ekkert fari
milli mála um kynferði barnsins frá fyrsta augnabliki.
Þessi knýjandi þörf á kynjagreiningu er engin tilviljun eða gamall og skemmtilegur
siður þótt við látum stundum sem svo sé. Samfélagið notar þessa liti til að hefja og
viðhalda mismunandi meðhöndlun á stúlkum og drengjum þótt svo að við höfum ekki
hugmynd um það. Svo inngróin eru ólík viðbrögð við kynjunum að við höfum ekki
einu sinni hugmynd um hegðun okkar þegar við mætum bláklæddu eða bleikklæddu
barni.
Skemmtileg úttekt í norska sjónvarpinu frá í haust sýnir fréttakonu í setustofu
fæðingardeildarinnar og ýmist er blátt eða bleikt barn í fangi hennar. Liturinn
réði öllu, nákvæmlega öllu, um viðbrögð þeirra sem komu og kíktu á litla krílið.
„Svooo sæt og ljúf og yyyyndisleg,“ var kvakað þegar krílið var í bleiku og „svooo
stór og kröftugur og sterklegir andlitsdrættir,“ þegar sama kríli var komið í blátt.
Og aðspurðir um framtíðarhorfur barnanna, var bleiku fötunum spáð hjúkrun
og kennslu en bláu fötunum var spáð lögreglustarfi og öðrum slíkum karlmann-
legum störfum.
Vér Íslendingar erum trúlega ansi líkir frændum okkar í Noregi. Við kaupum
kynbundin leikföng án þess að hika í verslunum sem flokka stelpu- og strákadót
í bláar og bleikar deildir. Nú munum við kaupa öskudagsgalla á mannskapinn og
þar gildir hið sama; bleikt fyrir prinsessurnar sem geta vart hreyft sig í fínheit-
unum og bláa og svarta hetjubúninga piltanna sem fljúga um heimilið og leikskól-
ann þessa vikuna. Með þessu styrkjum við enn gömlu hugmyndirnar um sætu og
prúðu stúlkurnar sem bíða eftir umbun fyrir útlitið og hlutverkið og um drengina
sem framkvæma og gera það sem þeim dettur í hug enda bíður heimurinn eftir
björgun þeirra.
Nú segir fólk sem svo að áhugi barnanna stýri förinni og það er rétt, þau eru
löngu búin að læra hvernig stúlkur og drengir leika sér og haga sér og þar er
bleika og bláa línan allsráðandi. Þau örfáu börn sem hafa ekki tileinkað sér „réttu“
línuna, fá gjarnan harkaleg viðbrögð úr umhverfinu en sem betur fer, eru þó undan-
tekningar frá hinum kynbundnu fordómum. Mér er sérlega minnisstæður öskudagur
fyrir mörgum árum þegar einn drengurinn mætti í prinsessubúningi þar sem foreldr-
arnir gáfu honum hið fullkomna frelsi. Leikskólakennarinn hans rak sig þó á eigin
fordóma þegar drengur leitaði til hennar í öllum hávaðanum og látunum í vinum hans,
kúrekunum og ofurhetjunum. Hann spurði sem sé einfaldlega: „Veistu hvað prins-
essan gerir þegar kúrekarnir ætla að skjóta hana?“ Kennarinn þurfti að bíta í tunguna
til að svara ekki að hún láti auðvitað bjarga sér heldur spurði á móti hvað hún gerði.
„Nú, hún beygir auðvitað,“ sagði hann rífandi kátur og hljóp aftur inn í leikinn með
vinunum.
En rétt í lokin. Getum við séð fyrir okkur að leggja í lágmarksbreytingar? Geta ung-
börn verið klædd í fatnað í öllum regnbogans litum? Mætti auka framleiðslu og kaup á
leikföngum sem ekki eru kynjabundin og gefa í staðinn tónlist, bækur án kynjaniður-
læginar, föndurefni eða ferðalag? Hvernig væri að auka kaup á fatnaði sem felur ekki
í sér kynjaímyndir af verstu gerð? Við breytum ekki heiminum á einum degi en ein-
hvers staðar verðum við, hver og eitt að byrja.
Þessi knýjandi þörf á kynjagreiningu er engin tilviljun
eða gamall og skemmtilegur siður þótt við látum
stundum sem svo sé.
Bleikt og blátt
Margrét
Pála
Ólafsdóttir
ritstjórn@
frettatiminn.is
heimur Barna
Liturinn réði
öllu, nákvæm-
lega öllu,
um viðbrögð
þeirra sem
komu og kíktu
á litla krílið.
Verið velkomin!
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is
Opið virka daga kl. 10-18
laugard. 11-16
Torino
HORNSÓFAR
Í MIKLU ÚRVALI
Sjónvarpsskápur Salsa
að verðmæti 59.900 kr.
fylgir með hverjum hornsófa
Sófinn þinn útfærður eftir þínum óskum
• Stærð - engin takmörk
• Áklæði - yfir 3000 tegundir
Basel
Havana Roma
Rín
ENDALAUSIR MÖGULEIKAR Í STÆRÐUM OG ÚTFÆRSLUM
*tilboð gildir á meðan birgðir endast
Leiðtogar á neyðarstund
Rauði krossinn býður til fyrirlesturs
um mikilvægi leiðtogastjórnunar
á neyðartímum fimmtudaginn
6. mars, kl. 8.30 - 9.30 í húsi Rauða
krossins að Efstaleiti 9
Fyrirlesari: Gísli Ólafsson,
höfundur bókarinnar
“The Crisis Leader”
Skráning á www.raudikrossinn.is
Rauði krossinn | hringmerki
Dagana 6.-.8. mars verður haldin
framhaldsskólakynning í Kórnum
í Kópavogi. Foreldrar og forráða-
menn eru hvattir til að nýta þetta
tækifæri og mæta með börnum sín-
um til að kynna sér fjölbreytt náms-
framboð, allt á einum stað.
Þetta er í fyrsta sinn sem fram-
haldsskólar kynna sig saman á
einum stað en þar verða allir fram-
haldsskólar af höfuðborgarsvæð-
inu, nokkrir af landsbyggðinni auk
annarra fræðsluaðila á þessu skóla-
stigi. Á sama tíma mun fara fram
Íslandsmót iðn-og verkgreina þar
sem nemendur í verknámi keppa
í rúmlega 20 greinum. Elín Thor-
arensen er í forsvari fyrir kynn-
inguna. Hún segir þátt foreldra í
vali barna sinna á námi stóran og
mikilvægt sé að þeir reyni að virða
áhugasvið barna sinna. Hátt hlutfall
brottfalls í framhaldsskólum segir
hún að stórum hluta til komið vegna
rangs námsvals. Þar geti aðkoma
foreldra spilað stórt hlutverk. „For-
eldrar þekkja oft aðeins þann heim
sem tengist þeirra eigin reynslu og
því þarf að efla upplýsingaflæði til
foreldra og nemenda. Hluti af þess-
ari kynningu er að útbúa fræðslu-
og námsefni um náms- og starfsval.
Við vonumst til að foreldrar mæti
hingað með börnunum sínum og að
víðsýni foreldra aukist,“ segir Elín.
Umræðan snúist oft um skólana og
að komast í vinsælasta skólann en í
rauninni ætti hún ætti að snúast um
sjálft námið. -hh
Kórinn FramhaldssKólaKynning
Fjölbreytt námsframboð kynnt