Fréttatíminn - 28.02.2014, Qupperneq 60
Helgin 28. febrúar - 2. mars 201460 tíska
Ævintýranleg
vetrarlína
Þó svo að við séum með
hugann við vor- og sumar-
tískuna um þessar mundir er
alltaf gaman að skyggnast
inn í það sem koma skal í
tískunni. Stærstu tísku-
hús heims eru farin að
kynna haust- og vetrarlínu
sína. Í vikunni fór fram
tískuvikan í Mílanó. Þar sveif
ævintýraljómi yfir vötnum.
Litirnir voru haustlegir,
þungir og dempaðir og efnin
náttúruleg. Þá vitum við
hverju við eigum að klæðast
í haust.
Eftirtalin Apótek og heilsubudin.is selja Proactiv® Solution
AkureyrArApótek, Kaupangi - LyfjAver, Suðurlandsbraut 22
LyfjAborg, Borgartúni 28 - gArðsApótek, Sogavegi 108
urðArApótek, Grafarholti - ÁrbæjArApótek, Hraunbæ 115
Apótek gArðAbæjAr, Litlatúni 3 - reykjAvíkurApótek,
Seljavegi 2, Apótek HAfnArfjArðAr, Tjarnarvöllum 11
Heildsölubirgðir, Konkord ehf. S. 568 9999, heilsubudin@heilsubudin.is
Í proactiv® solution eru efni sem hreinsa húð þína
og eyða bólum. Með daglegri notkun koma efnin í
veg fyrir að nýjar bólur myndist. Við lofum því!
Aðalbjörg ásamt dætrum sínum, tengdasyni og barnabarni.
Íslensk jurtakrem
Fjölskyldan tínir
saman jurtirnar
Aðalbjörg Þorsteinsdóttir ætlaði alltaf að verða hárgreiðslukona en segir örlögin hafa ráðið því
að hún byrjaði að týna jurtir og í framhaldinu stofnað fyrirtækið Villimey. Villimey sérhæfir sig í
jurtasmyrslum og drykkjum unnum úr afurðum vestfirskrar náttúru.
a ðalbjörg er alin upp á Tálknafirði og hafði frá blautu barnsbeini áhuga á jurtunum í hlíðunum sem
umlykja bæinn. Þegar hún fann ekkert
almennilegt krem við vöðvabólgu fór
hún að prófa sig áfram og afraksturinn
var fyrsta krem Villimeyjar, Vöðva og
liða Galdur. Kremin gerði hún í upphafi
fyrir sig sjálfa og fjölskylduna, en setti
svo vörurnar á markað 2005. Villimey
selur vörur sínar um allt land og er að
þreifa fyrir sér á erlendum mörkuðum,
en Aðalbjörg segir mikla aukningu hafa
orðið í sölu kremanna með auknum ferða-
mannastraumi. „Það er svo breið virkni í
vörunum, þær nýtast í svo margt. En upp-
hafið að þessu var auðvitað að hjálpa fólki
og bjóða upp á krem sem eru algjörlega
án skaðlegra aukaefna.“ Fyrirtækið er á
Tálknafirði og verður áfram þar. „Þetta
er bara eins og með fiskinn, því fyrr sem
hann kemst í vinnslu, því betur sem farið
er með hann, því betri afurð er hann. Það
er best að vinna sem fyrst úr jurtunum
um leið og þær hafa verið tíndar. Oft
myndast hiti í jurtum sem komast ekki
nægilega fljótt í vinnslu/þurrkun og þá
verður efnabreyting og jurtirnar skemm-
ast,“ segir Aðalbjörg.
Villimey er fjölskyldufyrirtæki og á
sumrin fer fjölskyldan á flakk í jurta-
tínslu. „Dæturnar og tengdasonur tína
með mér og hjálpa til við framleiðsluna.
Við förum margar ferðir í fjöllin og fylgj-
umst með þeim vaxa til að vita hvenær
er besti tíminn fyrir hverja jurt fyrir sig.
Hér fyrir vestan erum við a.m.k. 2 vikum
seinni að vori að fá þær en fyrir sunnan.
Þær hafa styttri vaxtartíma hér og eru
þess vegna mjög kraftmiklar. Náttúruvís-
indastofnun hefur rannsakað þungmálma
í fléttum og mosa um allt land síðan 1990
og hafa komist að því að sunnanverðir
Vestfirðir koma best út á landinu hvað
varðar minnsta loftmengun. Ég var mjög
glöð að heyra það.“
Aðalbjörg fór snemma að hafa áhuga á
virkni jurta. „Ég fór að prófa mig áfram
með jurtirnar hérna í firðinum, stundum
þurfum við að fara langt uppí fjall eftir
þeim. Uppskriftirnar koma frá sjálfri mér,
þær hef ég þróað áfram í mörg ár. Ég er
með helling af uppskriftum í kollinum
sem bíða eftir því að komast út. Það er svo
skrítið hvernig lífið er, á hvaða leið maður
ratar. Ég ætlaði að verða hárgreiðslukona
sem unglingur en þegar ég lít til baka þá
sé ég að þetta átti greinilega að gerast, að
þessi leið hafi verið mín örlög.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Þetta er
bara eins og
með fiskinn,
því fyrr sem
hann kemst
í vinnslu,
því betur
sem farið er
með hann,
því betri
afurð er
hann.
Opnunartími: Virka daga kl. 11-18 Laugard. kl. 11-16
Laugavegi 178 ( Bolholtsmegin ) l S. 555 1516 l Kíktu á síðuna okkar
Ferming framundan !
Kjóll á 12.900 kr.
Stærð 36 - 46.
Laugavegi 178
Sími 551-3366
www.misty.is
OPIÐ:
Mán. - fös. 10 - 18,
Laugardaga 10 - 14
FRÁBÆR
ÍÞRÓTTAHALDARI
virkilega gott aðhald
Teg Active,
fæst með og án
spanga í stærðum
32-40
D,DD,E,F,FF,G
skálum á kr. 9.750,-
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Flott föt fyrir flottar konur
Nýjar vörur í hverri viku
stærðir 38-58
Verslunin Belladonna
ArmAni missoni
GAbbAnA