Fréttatíminn - 28.02.2014, Qupperneq 72
Í takt við tÍmann ingibjörg FrÍða Helgadóttir
Staðalbúnaður
Ég geng eiginlega alltaf í kjólum, þægilegum og léttum kjólum og slám
yfir ef það er kalt. Ég hef mjög gaman af að kaupa af og til eina vel hann-
aða og -saumaða íslenska flík sem ég veit að ég get notað þegar ég kem
fram. Þessar flíkur hef ég keypt í Andreu og KronKron og bara hér og
þar. Ég er annars ekki mikið fatafrík, ekki þannig. Og ég er alls engin
skókona. Ef ég get staðið í þeim og teygt mig á sviðinu þá er það bara
fínt.
Hugbúnaður
Mér finnst ofboðslega gaman að fara á tónleika. Sérstaklega
þegar einhver sem ég þekki er að spila. Ég fer til dæmis
oft á Kex því þar eru oft tónleikar á þriðjudögum. Ég
er ekki svona djammari en við krakkarnir förum
stundum eftir skóla á Happy hour, til dæmis á
Kalda. Þar er góður, ódýr bjór og við getum
spjallað í rólegheitunum. Ef ég fer út í háværa
tónlist og þarf að öskra yfir borðið er hætt við
að ég missi röddina. Ég kýs frekar rólegra
umhverfi, helst með „læv“ músík og góðum
bjór. Ég næ ekki að fylgja einhverju tímaplani
varðandi sjónvarpsþætti, ég verð að stjórna því
sjálf hvenær ég horfi. Eini þátturinn sem ég og kær-
astinn minn horfum á núna er Hannibal.
Vélbúnaður
Ég á Macbook Air, litla tölvu sem ég kalla Ljónu af því stýri-
kerfið heitir Lion. Ég er bara með draslsíma en mér finnst gaman
að kaupa mér græjur sem tengjast tónlistinni. Ég á góðan söngmagnara,
míkrafóna og svo er ég alltaf með Yamaha-diktafón í töskunni.
Meginmarkmið samkeppninnar eru:
· Að fá fram heildstæðar tillögur um
samkeppnissvæðið
· Að fá fram tillögur sem undirstriki
sérstöðu svæðisins og efli það sem
menningarkjarna í borginni
· Að skapa virkt og aðlaðandi svæði með
góðum tengingum, bæði innbyrðis og við
nærliggjandi svæði
· Að fá fram frjóar en um leið raunhæfar
hugmyndir um framtíðarnýtingu og
skipulag Háskólasvæðisins
· Að samgöngur og uppbygging á svæðinu
verði samtvinnuð, þar sem lögð sé áhersla á
almenningssamgöngur, göngu- og hjólaleiðir
Reykjavíkurborg og Háskóli Íslands í samstarfi við
Arkitektafélag Íslands efna til hugmyndasamkeppni
um heildarskipulag fyrir Háskólasvæðið sem
afmarkast af Suðurgötu, Hjarðarhaga, Dunhaga
og Birkimel til vesturs, Hringbraut til norðurs,
Njarðargötu til austurs, þar með talið svæði Flug-
garða en af holti fyrir sunnan stúdentagarða við
Eggertsgötu til suðurs. Þátttakendur geta skilað inn
heildarhugmyndum sínum að framtíðarskipulagi eða
lagt hugmyndir inn í umræðuna.
Keppnislýsing er aðgengileg þátttakendum á vef-
síð unni, www.hugmyndasamkeppni.is og heima-
síðu Arki tektafélags Íslands, www.ai.is frá og með
21. febrúar 2014. Samkeppnisgögn verða ein-
ungis aðgengileg þeim sem skrá sig til þátttöku.
Háskóli Íslands
Hugmynda
samkeppni
um skipulag
Háskóla
svæðisins
hugmyndasamkeppni.is
Ingibjörg Fríða er ein af
efnilegri djasssöngkonum lands-
ins og söng á flottum tónleikum
í Hörpu um síðustu helgi. Hún
vonast til að gefa út plötu með nýju
efni í framtíðinni. Ljósmynd/Hari
Aukabúnaður
Mér finnst mjög gott að fá matarmiklar súpur á
veturna en annars borða ég mikið af mexí-
kóskum mat, sérstaklega ef það er ferskt
grænmeti með. Ég er reyndar þekkt sem
gellan með grænmetið hvert sem ég fer. Ég
er búin að venja mig á að vera alltaf með
nestisbox með grænmeti í til að borða yfir
daginn. Það er mjög hentugt því ég veit
ekki alltaf hvenær ég fæ pásur. Maður
er ekki fullkominn að öllu leyti en ég
er mjög ánægð með þetta. Kærastinn
minn er ævintýragjarnari en ég og hefur
dregið mig í nokkur spennandi ferðalög
að undanförnu. Við fórum í bakpoka-
ferðalag um Serbíu, Bosníu og Svart-
fjallaland og í sumar fórum við aðeins
minni hring um Þýskaland, Pólland og
Ungverjaland. Þetta var alveg æðis-
legt. Í sumar langar mig að ferðast
hér heima, heimsækja ættingja
úti á landi og fara í húsið okkar í
Stykkishólmi.
Þekkt sem gellan
með grænmetið
Ingibjörg Fríða Helgadóttir er 22 ára söngkona sem
útskrifast í vor úr tónlistarskóla FÍH og er að auki í
námi í skapandi tónlistarmiðlun við Listaháskólann.
Ingibjörg hefur troðið upp með ballbandi við ýmis
tækifæri síðustu ár og um síðustu helgi söng hún
á frábærum tónleikum í Hörpu með mörgum af
fremstu djössurum þjóðarinnar.
appaFengur
Google Earth
Google Earth er
síður en svo nýtt
af nálinni en þar
sem reglulega
eru gerðar upp-
færslur á appinu
má sannarlega
minna á það.
Appið byggir á
hugbúnaði sem
nýtir myndir úr
gervihnöttum
og kortaupp-
lýsingum til að
sýna heiminn
í þrívíddarum-
hverfi. Notendur
geta nýtt appið
bæði til fróð-
leiks og skemmt-
unar og ferðast
um allan heim á
meðan þeir sitja
heima í sófa með
snjallsímann eða
spjaldtölvuna.
Hægt er að þysja
inn og út til að
skoða götur og byggingar í
mismunandi hátti upplausn.
Þannig er mögulegt að skoða
sögufrægar byggingar hinum
megin á hnettinum, merk
kennileiti eða einfaldlega bara
götuna þína heima á litla Ís-
landi. Þegar kemur að Google
Earth eru möguleikarnir ein-
faldlega óendanlegir og því
er til lítils að reyna að útskýra
appið með orðum, best er að
fikta sig áfram og sjá, töfraver-
öld opnast.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
72 dægurmál Helgin 28. febrúar - 2. mars 2014