SSFblaðið - 01.12.2013, Blaðsíða 21
21
á að eldveggir séu ekki nægilega öryggir þegar búnaður er tengdur
að heiman eða á ferðalagi. Öryggismál eru því mikil áskorun fyrir
tölvudeildir þegar kemur að BYOD-væðingunni.
byod í fjármálum
Í fjármálageiranum eru að eiga sér stað breytingar frá hefðbundnum
lausnum til nýrra leiða við nýtingu tækni og upplýsinga við
verðmætasköpun.
Fjármálageirinn er þekkingariðnaður. Þegar aðgangur að þekkingu
er mikilvægur eykst þörfin á að hafa upplýsingar aðgengilegar á
sem auðveldastan hátt á fartölvum, farsímum og öðrum rafrænum
búnaði. Gott aðgengi að uppfærðum upplýsingum er mikilvægt
til að geta fylgst með þróun á mörkuðum. Tækni, þekking og
mannauður er helsta samkeppnisforskot fyrirtækja og skapar
verðmæti í fjármálageiranum. Í þekkingarmiðuðum og skilvirkum
iðnaði verða farsímar og önnur farandtæki stöðugt mikilvægari til
að viðhalda samkeppnishæfni og ná árangri.
kostir og gallar
BYOD eykur aðgengi, skilvirkni og hreyfanleika. Í samkeppnismiðuðu
vinnuumhverfi eru það kostir fyrir starfsmenn að geta tekið með
sinn eigin búnað svo auðveldara sé að ná í þá og þeir geti fyrr sinnt
verkefnum sem þarfnast úrlausnar. Við getum svarað tölvupóstum
á ferðinni, á fundum, á ferðalögum og í frístundum. Bilið á milli
vinnu og einkalífs þurrkast út og við getum auðveldar ráðstafað tíma
okkar eftir eigin hentugleika. Við bjóðumst því til að vinna fjótleg
vinnutengd verkefni í frítíma okkar gegn því að hafa möguleika á
að eiga samskipti við fjölskyldu og vini á vinnutíma. Mörgum þykir
sveigjanleikinn við BYOD stór kostur.
BYOD er einnig notendavænt. Við lærum smám saman að sníða
tölvubúnaðinn eftir eigin óskum og þörfum. Þetta gerir tölvubúnað
okkar persónubundnari – við þekkjum hann vel og hann er einfaldur
í notkun. Þá er það einnig kostur að BYOD gerir það auðveldara
að nýta þekkingu hvers og eins starfsmanns betur. Með sérsniðnum
einkabúnaði eiga starfsmenn auðveldar með að öðlast nýja þekkingu
og nýta hana á skilvirkan hátt í störfum sínum.
Það eru einnig þrír kostir við BYOD sem atvinnurekendur njóta
góðs af. Fyrst og fremst stuðlar BYOD að aukinni skilvirkni og
gæðum í starfi en að auki stendur starfsmaðurinn straum af kostnaði
við tækjakaup. BYOD hefur einnig ókösti í för með sér, eða öllu
heldur áhættur. Við höfum þegar farið yfir öryggisáhættur og þörf
fyrir mannfreka tölvuaðstoð en einnig getur öryggisafritun og vistun
gagna verið vandkvæðum bundin.
strEita og falin vinna
Fyrir starfsmenn geta kostir BYOD fljótt snúist upp í andhverfu
sína. Aukið aðgengi þurrkar út mörkin á milli vinnu og einkalífs.
Auðveldara aðgengi getur haft í för með sér mikið vinnuálag, streitu
og falda vinnu. Starfsmönnum með aðgang að vinnunetfangi í
einkatölvubúnaði geta fundist þeir skyldugir til að skoða, lesa og svara
tölvupóstum í frítíma sínum, ásamt því að inna af hendi þá vinnu
sem þeim kann að fylgja. Það er ástæða til að ætla að starfsmenn
í fjármálageiranum finni fyrir mikilli pressu og samkeppni við
samstarfsmenn vegna tíðra uppsagna uppá síðakastið. Það getur leitt
til þess að starfsmenn taki að sér fleiri verkefni, vinni á skilvirkan
hátt og sinni falinni vinnu, til að eiga síður hættu á að verða sagt upp
ef til uppsagna kemur innan fyrirtækisins. BYOD getur því leitt til
streitu og falinnar vinnu. Þetta getur leitt til slæms vinnuumhverfis
sem einkennist af óeðlilega miklu vinnuálagi, samkeppni milli
starfsmanna og ótta. Þegar verst lætur geta starfsmenn kulnað í starfi,
orðið veikir eða sagt upp störfum. BYOD gæti þannig orðið einn af
fleiri samvirkandi þáttum sem hafa í för með sér slæmar afleiðingar
fyrir bæði starfsmenn og viðkomandi fyrirtæki.
byod Er komið til að vEra
Á heildina litið fylgja BYOD margir kostir, bæði fyrir fyrirtæki
og starfsmenn þeirra. Það er ástæða til að ætla að BYOD verði
enn algengara á komandi árum, sérstaklega meðal fyrirtækja
í þekkingariðnaði. Tækniþróunin mun færa okkur nýjan
öryggishugbúnað til að takast á við vandamál tengd öryggi í
BYOD lausnum. Í tillögum Gartner er mælt með því að notast við
sérstakt stjórnkerfi til að stýra notkun farandtækja(e. Mobile Device
Management – MDM). Samkvæmt Gartner ætti aðeins að veita
starfsmönnum aðgang að gögnum fyrirtækisins, á eigin tölvubúnaði,
ef þeir samþykkja að settur sé upp hugbúnaður sem veitir tölvudeild
fyrirtækisins fjaraðgang. Þannig er hægt að setja upp nauðsynlegan
öryggisbúnað og uppfæra hann eftir þörfum án þess að viðkomandi
starfsmaður þurfi að afhenda búnaðinn.
Það er þó ekki víst að öll fyrirtæki muni nýta BYOD því líklegt er
að mörg fyrirtæki kjósi að láta starfsmönnum í té þá farsíma, fartölvur,
spjaldtölvur eða annan búnað, sem vinsælastur er hverju sinni, til
notkunar á vinnustaðnum. Þannig er öryggi búnaðarins betur tryggt
og að sama skapi minnkar álag á tölvudeildir. Það er hins vegar ljóst
að fyrirtæki sem bjóða uppá BYOD eða nýjasta tölvubúnað hverju
sinni munu laða að sér hæft starfsfólk. Í þekkingariðnaði skapa
tækni, þekking og mannauður augljóst samkeppnisforskot og sker
úr um það hver skarar fram úr.
Þessi grein er þýðing á grein sem birtist í Finans Fokus sem norska
samband starfsmanna fjármálafyrirtækja gefur út. Greinin kom út í
1. tbl. Finans Fokus, 2. febrúar 2013. Hólmar Örn Finnson þýddi.
Við bjóðumst því til að vinna fjótleg vinnutengd
verkefni í frítíma okkar gegn því að hafa möguleika á
að eiga samskipti við fjölskyldu og vini á vinnutíma.
Mörgum þykir sveigjanleikinn við BYOD stór kostur.
Aukið aðgengi þurrkar út mörkin á milli vinnu og
einkalífs. Auðveldara aðgengi getur haft í för með sér
mikið vinnuálag, streitu og falda vinnu.
Með sérsniðnum einkabúnaði eiga starfsmenn
auðveldar með að öðlast nýja þekkingu og nýta hana
á skilvirkan hátt í störfum sínum.