SSFblaðið - 01.12.2013, Page 31
31
v i ð s k i p t i o g E f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g E f n a h a g s m á l
s t j ó r n m á l
s t j ó r n m á l
b a n k a m á l
v i ð s k i p t i o g E f n a h a g s m á l
flokksráð sjálfstæðisflokksins og miðstjórn
framsóknarflokksins voru kÖlluð til funda. Tilefni fundanna
var að bera undir flokksstofnanirnar stjórnarsáttmála flokkanna.
Báðir flokkarnir samþykktu stjórnarsáttmálann á fundum sínum
einróma.
stjórnarsáttmáli framsóknarflokks og sjálfstæðisflokks
var kynntur almEnningi á blaðamannafundi sEm haldinn var í
héraðskólanum á laugarvatni. Fyrir fundinn hafði Sigmundur
Davíð kynnt forseta Íslands innihald stjórnarsáttmálans á fundi.
Síðar þennan dag var tilkynnt um ráðherraskipan nýrrar ríkisstjórnar
Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks. Ákveðið var að Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson skyldi taka við embætti forsætisráðherra og
Bjarni Benediktsson yrði fjármála – og efnahagsráðherra. Aðrir í
ríkisstjórn voru frá Framsóknarflokki þau Gunnar Bragi Sveinsson
sem var skipaður utanríkisráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson
varð sjávarútvegs-, landbúnaðar- og umhverfisráðherra og Eygló
Harðardóttir félagsmálaráðherra. Fyrir Sjálfstæðisflokkinn tók
Hanna Birna Kristjánsdóttir við innanríkisráðuneytinu, Illugi
Gunnarsson varð mennta- og menningarmálaráðherra, Ragnheiður
Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra og Kristján Þór
Júlíusson heilbrigðisráðherra.
tvEir ríkisráðsfundir voru haldnir á bEssastÖðum. Annarsvegar
var það síðasti ríkisráðsfundur ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur
og Steingríms J. Sigfússonar og hinsvegar fyrsti ríkisráðsfundur
ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Bjarna
Benediktssonar.
ný ríkisstjórn tók formlEga við.
ný ríkisstjórn íslands ákvað á
fyrsta ríkisstjórnarfundi sínum að
skipa ráðhErranEfnd um úrlausnir
í skuldamálum hEimilanna.
Í ráðherranefndinni sátu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
forsætisráðherra, Eygló Harðardóttir, félagsmálaráðherra, Bjarni
Benediktsson, fjármálaráðherra og Hanna Birna Kristjánsdóttir,
innanríkisráðherra.
Í stefnuyfirlýsingu ríkistjórnarinnar var kveðið á um að taka skyldi
á skuldavanda íslenskra heimila með markvissum aðgerðum.
sfr og vr kynntu niðurstÖður viðhorfskÖnnunar um Fyrirtæki
ársins og Stofnun ársins á Hilton Reykjavík. Stofnanir ársins voru
þrjár, en verðlaunað var fyrir ákveðna stærðarflokka. Sérstakur
saksóknari var sigurvegari þriðja árið í röð í flokki stórra stofnana
með fleiri en 50 starfsmenn. Landmælingar var stofnun ársins
í flokki meðalstórra stofnana þar sem starfsmenn eru 20-49
talsins og í flokki stofnana þar sem starfsmenn eru færri en 20
var Sýslumaðurinn á Siglufirði stofnun ársins.
Í hópi fyrirtækja var Johan Rönning valið Fyrirtæki ársins,
annað árið í röð, í hópi stærri fyrirtækja þar sem starfsmenn eru
að lágmarki fimmtíu. Miracle var fyrirtæki ársins í hópi fyrirtækja
með 20 – 49 starfsmenn og Vinnuföt í hópi fyrirtækja þar sem
starfsmenn eru færri en tuttugu.
róbErt wEssman, forstjóri alvogEn, kynnti tillÖgur um lausn
á snjóhEngjuvandamálinu. Tillögurnar fólu í sér að sett yrði ákvæði
í íslenska löggjöf um að náist ekki nauðasamningar fyrir næstu
áramót þá beri slitastjórnum bankanna að setja þá í þrot. Þá sagði
Róbert að skerpa þyrfti á gjaldþrotalöggjöf þannig aað einungis sé
heimilt að greiða út úr íslenskum þrotabúum í íslenskri mynt og
afnema þurfi undanþágur sem heimili vaxtagreiðslur til erlendra
eigenda krónueigna í erlendri mynt. Tillögurnar miða að því að
lágmarka skaðann sem getur hlotist af því þegar erlendir kröfuhafar
hyggjast leysa út íslenskar krónueignir.
forsEti finnlands, sauli niinistÖ, kom til íslands í opinbEra
hEimsókn. Í heimsókn sinni sem varði í tvo daga fundaði hann
ásamt eiginkonu sinni m.a. með forsetahjónunum á Bessastöðum,
Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra og fór í
skoðunarferðir.
gunnar bragi svEinsson, nýr utanríkisráðhErra, tilkynnti
að allri vinnu í utanríkisráðunEytinu vEgna aðildaviðræðna
við Esb hEfði vErið hætt. Hann tilkynnti að hann hyggðist
funda með Stefan Fühle, stækkunarstjóra ESB, eftir tvær vikur og
tilkynna formlega ákvörðun Íslands um að gera hlé á viðræðum.
Efnahags og framfarastofnunin, oEcd, birti Efnahagsspá sína.
Á Íslandi var spáð hægfara hagvexti og 2,5 % hagvexti árið 2014. Í
efnahagsspánni er gert ráð fyrir því að af fyrirhuguðum áætlunum
í fjárfestingum við uppbyggingu orkufreks iðnaðar verði. Í spánni
var jafnframt gert ráð fyrir að verðbólga færi minnkandi ásamt
skuldum ríkisins sem hlutfall af þjóðarframleiðslu.
stEinunn guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar glitnis,
sagði í þættinum Spegillinn á Rás 1að slitastjórn Glitnis væri tilbúin
til viðræðna við stjórnvöld um uppgjör þrotabúsins. Hún sagði
frumvarp að nauðasamningi tilbúið af hálfu bankans.
íslandsbanki birti árshlutauppgjÖr fyrsta ársfjórðungs. Í
tilkynningu frá bankanum kom fram að afkoma bankans eftir
skatta hafi verið jákvæð um 4,6 ma. kr. á fyrsta ársfjórðungi 2013,
samanborið við 5,6 ma. kr. á sama tímabili 2012. Í tilkynningunni
sagði að arðsemi eigin fjár eftir skatta hafi lækkað í 12,2% sem
skýrist að „mestu af hærra eigin fé, sem hefur hækkað um 18% á
milli ára, eða frá 129 ma. kr. í 152. ma. kr.“