SSFblaðið - 01.12.2013, Qupperneq 42
42
a n n a ð
v i ð s k i p t i o g E f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g E f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g E f n a h a g s m á l
s t j ó r n m á l
s t j ó r n m á l
v i ð s k i p t i o g E f n a h a g s m á l
03
t
b
l.
//
1
7
á
rg
. /
/ d
es
em
b
er
2
01
3
a n n a ð
kjarasamningar ssf við samtÖk atvinnulífsins runnu út á
miðnætti. unnið Er að gErð nýrra kjarasamninga.
dEsEmbEr
póst- og fjarskiptastofnun hóf rannsókn á því hvErnig
hafi vErið staðið að gEymslu gagna sEm stolið var í nEtárás
á hEimasíðu vodafonE. Framkvæmd var netárás á heimasíðu
Vodafone og viðkvæmum persónuupplýsingum og samtölum lekið.
dEsEmbEruppbót kEmur til grEiðslu fyrir félagsmEnn ssf.
Miðað við fullt starf árið 2013 nemur uppbótin kr. 59.200,- og
skal greiða hana eigi síðar en 15. desember. Allir félagsmenn á
fyrirframgreiddum launum fá desemberuppbótina greidda með
launum 1. desember 2013.
Embætti talsmanns nEytEnda var lagt niður þEgar frumvarp
innanríkisráðhErra var samþykkt. Verkefni talsmanns neytenda
voru færð yfir til Neytendastofu.
fullt hús var á samstÖðufundi í háskólabíói um ríkisútvarpið.
Á fundinum var niðurskurði og fjöldauppsögnum stofnunarinnar
mótmælt.
kjarasamningsviðræðum alþýðusambands íslands og samtaka
atvinnulífsins var slitið. Ástæðan var ágreiningur um launalið
væntanlegs samnings, einkum hvað varðar hækkun lægstu launa
samkvæmt fréttum RÚV.
pEningastEfnunEfnd sEðlabanka íslands ákvað að halda
stýrivÖxtum bankans óbrEyttum.
alþjóðagjaldEyrissjóðurinn varaði við skuldaniður-
fEllingartillÖgum ríkisstjórnarinnar. Sjóðurinn segir tillögurnar
koma til með að auka verðbólgu og kunni að leiða til hækkunar
á skuldum hins opinbera.
sakborningar í al-thani málinu svokallaða hlutu þunga
fangElsisdóma í héraðsdómi rEykjavíkur. Dóminum hefur
verið áfrýjað til Hæstaréttar og er talið að hann muni hafa mikið
fordæmisgildi verði hann staðfestur í Hæstarétti.
Önnur umræða um fjárlÖg fór fram á alþingi. Ríkisstjórnar-
flokkarnir höfðu gert talsverðar breytingar frá fyrstu umræðu sem
miða að því að auka fé til heilbrigðismála um 4 milljarða króna.
sjávarútvEgsráðhErra gaf út lEyfi til vEiða á 229 hrEfnum á
landgrunnssvæðinu og 154 langrEyðum á næsta ári.
tilkynnt var að bjÖrn blÖndal, tónlistarmaður og aðstoðar-
maður borgarstjóra, myndi lEiða lista bjartrar framtíðar
fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2014.
18% íslEndinga tElja sig hafa komið vErr út úr krEppunni
En aðrir, „þau upplifa óréttlæti og eru reiðari“ þetta kom fram
í rannsókn sem Jón Gunnar Bernburg prófessor við Félags- og
mannvísindadeild HÍ gerði ásamt samstarfsfélögum.
ríkissáttasEmjari boðaði samtÖk atvinnulífsins og þau samtÖk
sEm standa í kjaraviðræðum við sa til fundar.
páll magnússon, útvarpsstjóri, tilkynnti að hann hEfði
ákvEðið að láta af stÖrfum sEm útvarpsstjóri ríkisútvarpsins
frá og mEð þEssum dEgi.
gylfi arnbjÖrnsson, forsEti así, sEgir kjaradEilu
vErkalýðshrEyfingar og atvinnurEkEnda komna í hnút.
þriðja tÖlublað ssf- blaðsins 2013
lítur dagsins ljós.