Fréttablaðið - 09.10.2004, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 09.10.2004, Blaðsíða 39
LAUGARDAGUR 9. október 2004 FRÉTTABLAÐIÐ 27 VISINDAVEFUR HÁSKÓLA ÍSLANDS Drasl i herberginu Hvenær er orðið svo mikið drasl í herbergi að maður sé í rauninni að taka tii þegar maður sparkar í einhverja hluti? SVAR: Þessi spurning er ekki öll þar sem hún er séð, heldur má heim- færa hana upp á merkilegar og erf- iðar ráðgátur í mannlegri hugsun. Undir býr í raun og veru önnur spuming, hvort við getum flokkað eða metið ástandið í herberginu og þannig sagt til um að eitt ástand feli í sér meiri „reglu“ eða „reiðu“ en annað. Samkvæmt því mundu þessi orð fela í sér einhverja innri merk- ingu óháða mannlegri hugsun. Þetta er hins vegar engan veginn ljóst þegar grannt er skoðað. Austurríski heimspekingurinn Ludwig Wittgen- stein (1889-1951) hefur gert þennan vanda frægan í bókinni Rann- sóknir í heimspeki (Philosophical Investigations) og hann gengur undir nafninu „þverstæða Wittgen- steins“. Um heimspeki Wittgen- steins og þverstæðu hans má lesa í inngangi Þorsteins Gylfasonar að Bláu bókinni (Hið íslenzka bók- menntafélag, Reykjavík 1998). una“ eftir á. Hér eru til dæmis nokkrar reglur sem gætu komið að gagni þegar maður er beðinn um að „taka til“, það er að segja að koma reglu á hlutina: Alít sem ég veit ekki hvað ég á að gera við á að vera undir rúmi. Allt sem ég hef fengið í afmælis- gjöf eða er gult eða er bolti á að vera á gólfinu. Allt sem er annað hvort óhrein föt eða línuskautar eða skólataska eða gamlar bækur á að vera annað hvort uppi í rúmi, undir borði eða bakvið hurð. Miðað við einhverja af þessum reglum kann allt að vera í röð og reglu í herbergi þótt fljótt á litið mætti álykta að tiltektar væri þörf. Vandinn við að svara upphaflegu spurningunni er því þessi: Hvaða ástand sem er í herbergi getur fallið undir hugtakið „allt í röð og reglu“ vegna þess að alltaf má láta sér detta í hug reglu sem fellur að ástandinu, jafnvel þótt allt sé á tjá og tundri. Það er ekki fyrirfram gefið hvaða reglur ber að miða við þegar meta á hvort tiltekið ástand er „meira drasl" en eitthvert annað ástand. Meira drasl en samt minna Setjum svo að allt sé á rúi og stúi í herberginu mínu. Þegar ég kem inn sparka ég skítugum grænum sokk sem liggur við dyrnar upp á borð. Að öðru leyti er allt eins. Að vísu hafði ég hugsað mér að sparka sokknum LUDWIG WITTGENSTEIN (1889-1951) Getur eitt ástand falið I sér meiri „reglu" eða „reiðu" en annað? Það er vandinn sem „þverstæða Wittgensteins" snýst um. ofan í óhreinatauskörfu sem er við hliðina á borðinu, en sparkið geigaði. Hér virðist nú eðlilegt að segja sem svo: „Það er meira drasl í herberginu eftir að sokkurinn lendir á borðinu, vegna þess að skítugir sokkar eiga ekki að vera uppi á borðum. Minna drasl þýðir meiri regla.” En er þessi hugmynd um röð og reglu vel skilgreind? - Glöggur at- hugandi tekur eftir því að nú eru all- ir grænir hlutir í herberginu í a.m.k. 30 cm hæð frá gólfi. Þar með er kom- in meiri röð á hlutina í herberginu og þar með minna drasl, hvað þessa reglu varðar, eftir að sokkurinn er kominn upp á borð heldur en þegar hann lá á gólfinu. Hér höfum við þá tvö öndverð sjónarmið: (1) Það er meira drasl í herberg- inu vegna þess að maður á ekki að geyma skítuga sokka uppi á borði. (2) Það er minna drasl í herberg- inu vegna þess að allir grænu hlut- irnir í herberginu eru í a.m.k. 30 cm hæð frá gólfi. Reglur búnar til eftir á Hvort sjónarmiðið er rétt? Við þessari spurningu er ekkert einhlítt svar. Hvernig sem hlutir í herbergi eru færðir til er í raun alltaf hægt að búa til reglu eftir á þannig að dótið í herberginu hafi færst nær reglunni, hvort sem „allt var í drasli" áður í herberginu eða ekki. Reglan kann að vísu að vera nokkuð langsótt og fjarri því sem foreldrar hafa í huga þegar þeir biðja börnin sín um að taka til í herberginu sínu. Aðferðin í heild er hins vegar líkari því þegar stjórnmálamenn réttlæta umdeildar ákvarðanir með því að búa til „regl- Regla í óreiðunni Til nánari skýringar skulum við athuga einfaldara dæmi og líta á eftirfarandi talnarunu: 1, 2, 3, 4, 5 Hér er regla á hlutunum. Nú getum við spurt hvort hægt sé að rugla talnaröðinni svo að sérhver til- færsla á tölustöfum frá ruglaða ástandinu komi meiri reglu á röðina. Prófum eftirfarandi: 3,1,4,2, 5 Er hægt að hugsa sér meiri óreiðu? Einhver kynni að benda á að talan 5 er enn á sínum stað, þ.e. öftust. Það er regla út af fyrir sig. Með því að víxla tölunum 4 og 5 mætti þá koma meiri óreiðu á röðina: 3,1, 5, 2, 4 Nú er engin tala á sínum stað. En gáum þá að því að oddatölurnar 1, 3, og 5 eru allar á undan sléttu tölunum 2 og 4. Þýðir það ekki að í raun er heilmikil regla á tölunum? Ef við víxlum tölunum 2 og 3 má brjóta þessa reglu, en þá verða oddatöl- urnar allar í miðjunni. Það er önnur regla. Hvað ef við víxlum tölunum 2 og 5? Runan verður þá svona: 3,1, 2, 5, 4 Þá eru oddatölumar ekki lengur í samfelldri röð, en hins vegar em töl- urnar 1 og 2 í innbyrðis réttri röð. Er það ekki regla útaf fyrir sig? Vandinn hér er sá sami og með draslið í herberginu: Við höfum enga skilgreiningu á því hvað hugtakið „mesta drasl" eða „minnsta regla" þýðir í þessum tilvikum. Hvaða ástand sem er fellur að einhverri til- tekinni reglu og brýtur aðrar. Líkindi og óreiða Að lokum er skylt að geta þess að í líkindafræði og eðlisfræði er hægt að gera málum af þessu tagi önnur og betri skil í ákveðnum til- vikum. Þá þarf hins vegar að byrja á því að skilgreina hvernig eða hversu nákvæmlega eigi að lýsa ástandi kerfis, til dæmis hvort það skipti máli að það sé þessi eða hinn græni sokkurinn sem er uppi á borðinu. Ef þessi skilgreining er hæfilega nákvæm getur það síðan leitt til þess að ástöndin séu mis- jafnlega líkleg. í eðlisfræði er svo skilgreind svokölluð óreiða (entropy) sem er þeim mun meiri sem ástandið er líklegra. Og þær aðstæður geta skapast, þegar þess- um aðferðum er beitt, að við getum til dæmis „hrært í“ upphaflega ástandinu án þess að breyta líkind- um eða óreiðu, og við getum þá tal- að um að kerfið sé í líkindafræði- legu jafnvægi. „En þessar pælingar breyta engu um meginvandann hér á undan því að hann miðast við að ástand kerfisins sé algerlega þekkt. Ólafur Páll Jónsson, doktor í heimspeki og Þorsteinn Vilhjálms- son, prófessor í vísindasögu og eðlis- fræði við Hí. Smáralind Glæsileg ítölsk leðursófasett Vorum að fá sendingu af gegnheilum boi ðstofu- húsgögnum bæði í Eik og Wengi á ótrúlegu verði. IVerðfrá aðeins 179.000,- stgr. Moriel Bilbao, 3ja sæta svefnsófi í áklæði Verð 179.000. stqi, tlrval af svefnsófuni bæði í leðri og áklæði Moriel IS 31, 3ja saria sóli og tveir stólar Verð 339.000,- styr. Mikið úrval af sólaselinni og liorhsófum... Qpið mán-iös 1048, lau 1148 gæöa liúsgögn Bæjarhrauni 12, Hf.simi 5654234 MTTVERF* »1 vanHF' ---- SMS 1.1 IKUR 11. HverVinnuh 5 CNDU SMS SKCYTIO r> r C V.\| A NÚMIiRID I <>00 OG l>Ú 0.1 I IR UNNII > VAN I 11 I.SINO A DVO VAN HELSINO I t'lKNlMYNDIN DVD N VI IS MYNDIR TÖLV.Ul I IKIR Ol:l . IjR) íT/il VAN HE1 sing l VI RSLANIR 1 l.OKTÖBER Afmælistilboð! 25% afsláttur af öllum peysum 30% afsláttur af öllum meðgöngufatnaði Tilboðin gilda fimmtudag til sunndags. UNITED COLORS OF BENETTON.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.