Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Qupperneq 4

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Qupperneq 4
FORUSTUGREIN Atvinnulíf á tímamótum Sú alvarlega staða, sem við blasir í atvinnumálum þjóðarinnar, kallar á ný vinnubrögð og aukna sam- stöðu og samvinnu um nýja og skýrari atvinnu- stefnu. Á fulltrúaráðsfundi Sambands ísl. sveitarfélaga, sem haldinn var á Selfossi í marz sl., var lögð áherzla á nauðsyn samstarfs fulltrúa atvinnulífsins og sveit- arfélaganna, ekki sízt til að auka skilning á misjöfn- um aðstæðum sveitarfélaganna. Samtímis var hvatt til aukins samráðs ríkis, sveitarfélaga og fulltrúa at- vinnulífsins, þar sem tekið yrði til umfjöllunar at- vinnuástandið, þátttaka sveitarfélaga í atvinnurekstri og nýjar leiðir í atvinnumálum. Nú hefur ríkisstjórnin lagt grunn að nýjum sam- starfsgrundvelli þessara aðila með skipan nefndar fulltrúa þeirra um atvinnumál. Nefndin skal hafa það að leiðarljósi að treysta undirstöðu hagvaxtar og at- vinnuöryggis, eins og segir í yfirlýsingu ríkisstjórn- arinnar við gerð kjarasamninga. Nefndarskipanin er tímabær og um leið mikilvægur prófsteinn á vilja og getu fulltrúa ríkis, sveitarfélaga og atvinnulífsins að vinna að nýrri stefnumótun í at- vinnumálum og leggja fram tillögur um aðgerðir og nýsköpun í atvinnulífinu. Með þessari nefndarskip- an hefur ríkisstjórnin stigið þýðingarmikið skref til markvissari atvinnuuppbyggingar í byggðum lands- ins. Það hefur lengi verið vilji sveitarfélaganna, að slíku samstarfi yrði komið á og ályktun þess efnis fyrst samþykkt á fulltrúaráðsfundi sambandsins fyrir rúmu ári. Á fulltrúaráðsfundinum á Selfossi var undirstrikað, að stækkun og efling sveitarfélaganna leiddi jafn- framt til stærri og öflugri atvinnusvæða og að sú breyting gæfi sveitarstjómum, ríkisvaldinu og full- trúum atvinnulífsins aukna möguleika til að efla frumkvæði að nýrri atvinnuuppbyggingu á lands- byggðinni. Fulltrúaráðið vakti athygli á því, að fjölgun starfa næstu árin muni fyrst og fremst verða í þjónustugreinum, og því væri mikilvægt að skapa fleiri tækifæri lil menntunar og fjölgunar starfa lang- skólagengins fólks utan höfuðborgarsvæðisins. í því sambandi væri t. d. brýnt að koma á menntun kennara og fóstra utan Reykjavíkur. í tengslum við umræðuna um atvinnulífíð og sveitarfélögin er nauðsynlegt að geta hér þeirrar umfjöllunar, sem átt hefur sér stað um tilvist að- stöðugjaldsins. Hinn 14. jan. 1991 skipaði félags- málaráðherra nefnd til að endurskoða lög um tekju- stofna sveitarfélaga, „einkum með tilliti til nýrra hugmynda og tillagna um skattlagningu atvinnulífs- ins“, eins og orðað var í skipunarbréfi nefndarinnar. Var nefndinni m. a. falið „að gera tillögur um, hvort fella eigi niður aðstöðugjöld og hvaða breytingar þá þurfi að gera á öðrum tekjustofnum sveitarfélaga“. Nefndin lauk störfum í febrúar sl. í skýrslu nefndarinnar er ekki gerð ákveðin tillaga um að fella niður aðstöðugjald eða hvað eigi að koma í staðinn. Hins vegar er velt upp nokkrum valkostum í stað aðstöðugjaldsins. Án þess að fjalla um þetta mál ítarlega hér er samt rétt að benda á, að miðað við verga þjóðarfram- leiðslu er skattlagning fyrirtækja hér á landi aðeins um helmingur þess, sem gerist að meðaltali í helztu viðskiptalöndum okkar. Verði sú leið valin, sem ráðamenn hafa helzt talað um, að fella niður aðstöðugjaldið, hækka útsvörin, lækka á móti tekjuskatt einstaklinga, þ. e. í stað- greiðslu skatta, en hækka skattgreiðslu fyrirtækja með hækkun tryggingargjalds, mun skattbyrði einstakl- inga aukast. Á hinn bóginn gerist það, að skattbyrði útflutnings- og iðnaðarfyrirtækja eykst og einnig skattbyrði sveitarfélaganna. Ekki verður því séð í fljótu bragði, að þessi leið þjóni hagsmunum sveitar- félaganna og atvinnulífsins, né heldur ríkisins. 130
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.