Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Blaðsíða 25

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Blaðsíða 25
SKIPULAGS- OG BYGGINGARMÁL Ný byggingarreglugerS Ný byggingarreglugerö öölaöist gildi hinn 1. iúlí sl. og er nr. 177/1992. Umhverfisráöuneytið var stofnaö hinn 23. febrúar 1990, en bygg- ingar- og skipulagsmál voru form- lega flutt úr félagsmálaráöuneyti hinn 1. janúar 1991. Þannig fer umhverfisráðuneytið nú meö lög- gildingu hönnuöa samkvæmt byggingarlögum sem og úrskurði, telji einhver rétti sínum hallaö meö ályktun byggingarnefndar eöa sveitarstjórnar. I samræmi viö skipulagslög er þaö nú umhverfis- ráðherra, sem staðfestir skipulag í staö félagsmálaráðherra áöur. Umhverfisráöuneytiö flutti í apríl 1992 í Vonarstræti 4, eins og frá var skýrt í síðasta tölublaöi. Meö þennan málaflokk í ráöuneytinu fer Hrafn Hallgrímsson, arkitekt. í fyrrasumar hófst athugun á byggingarreglugeröinni hjá Skipu- lagi ríkisins vegna fyrirhugaðrar endurprentunar. Kom fljótt í Ijós, aö raunar þarf byggingarreglugeröin verulegrar endurskoöunar viö til þess aö gagnast betur hönnuöum, byggingareftirliti og byggingariðn- aöi. Frá því var þó horfið, meöal annars vegna undirbúnings nýrrar löggjafar um skipulags- og bygg- ingarmál, sem nú stendur yfir. Vegna ýmissa oröalagsbreytinga var talið rétt að endurprenta reglu- geröina í Stjórnartíöindum í heild sinni. Hefur hún nú verið birt aö nýju meö gildistöku frá 1. júlf 1992, eins og áöur segir. Helztu breytingar, sem geröar hafa verið frá fyrri reglugerð, eru eftirfarandi: - Leiðréttar hafa verið tilvitnanir í lög, reglugerðir og staöla, sem breytt hefur veriö frá síðustu útgáfu reglugeröarinnar, og geröar breyt- ingar, sem leiddu af flutningi málaflokksins frá félagsmálaráöu- neytinu til umhverfisráöuneytisins. - ítarlegar er kveðiö á um þau hönnunargögn, sem skila ber til byggingarfulltrúa, svo sem upp- drætti aö brunavörnum bygginga, um séruppdrætti aðalhönnuða í mælikvaröa 1:50 eöa stærri, sem háðir eru samþykki byggingarfull- trúa, og ákvæöi um útreikninga burðarþolshönnuða. Með breyt- ingunum er stefnt aö því, að tryggt sé, aö nauösynleg hönnunargögn liggi ávallt fyrir, áöur en bygging- arframkvæmdir hefjast. - Þá hafa verið gerðar ýmsar breytingar meö tilliti til reynslu undanfarinna ára. Má þar nefna meðal annars, aö nú er krafizt vottorða frá Rannsóknastofnun byggingariönaöarins um styrk- leika- og gæöakröfur allra verk- smiðjuframleiddra húsa og bygg- ingarhluta. Ákvæöi eru um fyrirkomulag almennra tjald- og hjólhýsasvæöa og um stöðuleyfi hjólhýsa svo og eftirlit. Þá eru sett ákvæði um öryggisráðstafanir viö sundlaugar, heita potta eöa úti- laugar. Einnig er breytt ákvæöum um stærö á lyftum til samræmis viö staöla. Til aö auðvelda eftirlit og tryggja gæöi vegna viðgerða og endurbóta eru sett sérstök ákvæði, er varöa klæðningu bygginga vegna steypuskemmda, og um steypu- og sprunguviðgerðir. Skipulag ríkisins hefur gefiö út í sérriti gildandi skipulagslög, byggingarlög, skipulagsreglugerö og hina nýju byggingarreglugerö ásamt greinargerö, þar sem nánar er greint frá þeim breytingum, sem geröar hafa veriö. Byggingarreglugerð þarf nánast aö vera í sífelldri endurskoöun, og Ijóst er, aö talsverðra endurbóta er þörf á þessari reglugerö. Nýtt frumvarp til skipulags- og bygg- ingarlaga var lagt fram á Alþingi f vor og er nú til umfjöllunar í um- hverfisnefnd þingsins, til umsagn- ar hjá stjórn sambandsins og hjá fleirum. Samhliöa nýjum bygging- arlögum er taliö nauösynlegt, aö gagngerendurskoöun reglugeröar fari fram. Ráðgert er því aö hefja, svo fljótt sem auðið er, gerö nýrrar reglugerðar, sem m.a. mun taka mið af nýjum aðstæðum, t.d. á sviöi staðlamála. Þá er ekki síður nauösynlegt, að reglugeröin fjalli heildstætt um mannvirkjagerö og umhverfisáhrif. ERLEND SAMSKIPTI Alþjóðleg ráð- stefna í Reykjavík 2.-4. september um notkun jarð- gufu í iðnaði Alþjóöleg ráöstefna um notkun jarðgufu í iönaöi verður haldin í Reykjavík dagana 2.-4. septem- ber nk. Jarðvarmi hefur til þessa aöallega verið nýttur til húshitunar, ylræktunar og raforkuframleiðslu, en minna hefur veriö um beina notkun hans í iönaöi. Markmiö ráðstefnunnar er að hvetja til auk- innar notkunar á jarövarma í iönaði og til aukinna rannsókna á því sviði. Aö ráðstefnunni standa Félag íslenzkra iönrekenda, Orkustofn- un, iðnaöarráöuneytiö, Markaös- skrifstofa iðnaðarráðuneytisins og Landsvirkjunar, Landsvirkjun, lön- tæknistofnun íslands, Hitaveita Reykjavíkur og Háskóli íslands. Nánari upplýsingar um ráö- stefnuna veitir Ólafur Kjartansson hjá Félagi íslenzkra iðnrekenda, Hallveigarstíg 1 í Reykjavík, í síma 91-27577. 151
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.