Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Qupperneq 25
SKIPULAGS- OG BYGGINGARMÁL
Ný byggingarreglugerS
Ný byggingarreglugerö öölaöist
gildi hinn 1. iúlí sl. og er nr.
177/1992.
Umhverfisráöuneytið var stofnaö
hinn 23. febrúar 1990, en bygg-
ingar- og skipulagsmál voru form-
lega flutt úr félagsmálaráöuneyti
hinn 1. janúar 1991. Þannig fer
umhverfisráðuneytið nú meö lög-
gildingu hönnuöa samkvæmt
byggingarlögum sem og úrskurði,
telji einhver rétti sínum hallaö meö
ályktun byggingarnefndar eöa
sveitarstjórnar. I samræmi viö
skipulagslög er þaö nú umhverfis-
ráðherra, sem staðfestir skipulag í
staö félagsmálaráðherra áöur.
Umhverfisráöuneytiö flutti í apríl
1992 í Vonarstræti 4, eins og frá
var skýrt í síðasta tölublaöi. Meö
þennan málaflokk í ráöuneytinu fer
Hrafn Hallgrímsson, arkitekt.
í fyrrasumar hófst athugun á
byggingarreglugeröinni hjá Skipu-
lagi ríkisins vegna fyrirhugaðrar
endurprentunar. Kom fljótt í Ijós, aö
raunar þarf byggingarreglugeröin
verulegrar endurskoöunar viö til
þess aö gagnast betur hönnuöum,
byggingareftirliti og byggingariðn-
aöi. Frá því var þó horfið, meöal
annars vegna undirbúnings nýrrar
löggjafar um skipulags- og bygg-
ingarmál, sem nú stendur yfir.
Vegna ýmissa oröalagsbreytinga
var talið rétt að endurprenta reglu-
geröina í Stjórnartíöindum í heild
sinni. Hefur hún nú verið birt aö
nýju meö gildistöku frá 1. júlf 1992,
eins og áöur segir.
Helztu breytingar, sem geröar
hafa verið frá fyrri reglugerð, eru
eftirfarandi:
- Leiðréttar hafa verið tilvitnanir
í lög, reglugerðir og staöla, sem
breytt hefur veriö frá síðustu útgáfu
reglugeröarinnar, og geröar breyt-
ingar, sem leiddu af flutningi
málaflokksins frá félagsmálaráöu-
neytinu til umhverfisráöuneytisins.
- ítarlegar er kveðiö á um þau
hönnunargögn, sem skila ber til
byggingarfulltrúa, svo sem upp-
drætti aö brunavörnum bygginga,
um séruppdrætti aðalhönnuða í
mælikvaröa 1:50 eöa stærri, sem
háðir eru samþykki byggingarfull-
trúa, og ákvæöi um útreikninga
burðarþolshönnuða. Með breyt-
ingunum er stefnt aö því, að tryggt
sé, aö nauösynleg hönnunargögn
liggi ávallt fyrir, áöur en bygging-
arframkvæmdir hefjast.
- Þá hafa verið gerðar ýmsar
breytingar meö tilliti til reynslu
undanfarinna ára. Má þar nefna
meðal annars, aö nú er krafizt
vottorða frá Rannsóknastofnun
byggingariönaöarins um styrk-
leika- og gæöakröfur allra verk-
smiðjuframleiddra húsa og bygg-
ingarhluta. Ákvæöi eru um
fyrirkomulag almennra tjald- og
hjólhýsasvæöa og um stöðuleyfi
hjólhýsa svo og eftirlit. Þá eru sett
ákvæði um öryggisráðstafanir viö
sundlaugar, heita potta eöa úti-
laugar. Einnig er breytt ákvæöum
um stærö á lyftum til samræmis viö
staöla. Til aö auðvelda eftirlit og
tryggja gæöi vegna viðgerða og
endurbóta eru sett sérstök ákvæði,
er varöa klæðningu bygginga
vegna steypuskemmda, og um
steypu- og sprunguviðgerðir.
Skipulag ríkisins hefur gefiö út í
sérriti gildandi skipulagslög,
byggingarlög, skipulagsreglugerö
og hina nýju byggingarreglugerö
ásamt greinargerö, þar sem nánar
er greint frá þeim breytingum, sem
geröar hafa veriö.
Byggingarreglugerð þarf nánast
aö vera í sífelldri endurskoöun, og
Ijóst er, aö talsverðra endurbóta er
þörf á þessari reglugerö. Nýtt
frumvarp til skipulags- og bygg-
ingarlaga var lagt fram á Alþingi f
vor og er nú til umfjöllunar í um-
hverfisnefnd þingsins, til umsagn-
ar hjá stjórn sambandsins og hjá
fleirum. Samhliöa nýjum bygging-
arlögum er taliö nauösynlegt, aö
gagngerendurskoöun reglugeröar
fari fram. Ráðgert er því aö hefja,
svo fljótt sem auðið er, gerö nýrrar
reglugerðar, sem m.a. mun taka
mið af nýjum aðstæðum, t.d. á
sviöi staðlamála. Þá er ekki síður
nauösynlegt, að reglugeröin fjalli
heildstætt um mannvirkjagerö og
umhverfisáhrif.
ERLEND SAMSKIPTI
Alþjóðleg ráð-
stefna í Reykjavík
2.-4. september
um notkun jarð-
gufu í iðnaði
Alþjóöleg ráöstefna um notkun
jarðgufu í iönaöi verður haldin í
Reykjavík dagana 2.-4. septem-
ber nk. Jarðvarmi hefur til þessa
aöallega verið nýttur til húshitunar,
ylræktunar og raforkuframleiðslu,
en minna hefur veriö um beina
notkun hans í iönaöi. Markmiö
ráðstefnunnar er að hvetja til auk-
innar notkunar á jarövarma í iönaði
og til aukinna rannsókna á því
sviði.
Aö ráðstefnunni standa Félag
íslenzkra iönrekenda, Orkustofn-
un, iðnaöarráöuneytiö, Markaös-
skrifstofa iðnaðarráðuneytisins og
Landsvirkjunar, Landsvirkjun, lön-
tæknistofnun íslands, Hitaveita
Reykjavíkur og Háskóli íslands.
Nánari upplýsingar um ráö-
stefnuna veitir Ólafur Kjartansson
hjá Félagi íslenzkra iðnrekenda,
Hallveigarstíg 1 í Reykjavík, í síma
91-27577.
151