Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Blaðsíða 63

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Blaðsíða 63
ERLEND SAMSKIPTI Hafnarfjaröarbær tók fimmtiu manna hóp um „börn, vinnu og umhverfi" upp á sína arma. Hér er hlýtt á fyrirlestur íÁlfafelli. Ljósm. Ingvar Viktorsson. ina. Skýrslu um könnunina var dreift til skóla, bóka- safna og vföar, en frumgögnin eru geymd í mennta- málaráöuneytinu. Auk undirbúningsnefndar mótaði níu manna fag- hópur dagskrána í meginatriðum voriö 1990. Því næst voru skipaðir hópstjórar fyrir 12 þemahópa, sem mót- uðu nánar dagskrá hvers hóps, völdu fyrirlesara, skipulögðu vettvangsferðir og stjórnuöu hver sínum hópi, allt í samstarfi við verkefnisstjóra og undirbún- ingsnefnd. Allsherjarfundir og þemahópar Tveir allsherjarfundir voru haldnir í stóra salnum í Háskólabíói. Þar fluttu menntamálaráðherra og um- hverfisráöherra ávörp, flutt voru tvö aðalerindi, annað um umhverfiskennslu og hitt um þýðingu vatns fyrir lífríki jarðar. Pallborðsumræöur voru um framhald nor- ræns samstarfs um umhverfismennt, og norrænu um- hverfisári var formlega slitið meö athöfn, þar sem for- seti (slands, Vigdís Finnbogadóttir, kom fram. Hún var formaður framkvæmdastjórnar norræns umhverfisárs og jafnframt verndari ráöstefnunnar Miljö 91. Dag- skráin í Háskólabíói var brotin upp með söngatriðum 70 leikskólabarna, Hamrahlíðarkórsins, karlakórsins Fóstbræðra og norska trúbadúrsins Lars Hauge, sem fékk fundarmenn til að taka undir með sér. Meirihluta tímans voru ráðstefnugestir í 12 þema- hópum, 50-120 manns í hverjum. Af viðfangsefnum hópanna kemur fram, hvaða málaflokkum talið var mikilvægast að gera skil, en þeir voru þessir: 1. Lofthjúpur jarðar og verndun hans 2. Hafið, verndun þess og nýting 3. Ferskt vatn, nýting þess og verndun 4. Náttúra, manngert umhverfi og landnýting í strjálbýli 5. Manngert umhverfi, náttúra og skipulag í þéttbýli 6. Orkulindir, orkuvinnsla og umhverfisáhrif 7. Umhverfi og heimilishald í nútíma þjóðfélagi 8. Útivist, ferðamál og umhverfismennt 9. Útikennsla, umhverfisfræðsla 10. Umhverfismenntun í list- og verkgreinum 11. Börnin, vinnan og umhverfið 12. Tölvusamskipti og umhverfismennt Flestir þemahópanna héldu fundi sína í húsakynnum Háskóla íslands, en einnig voru fundir í Norræna hús- inu, Safnaðarheimili Nessóknar, í Hafnarfirði og víðar. Allir hóparnir fóru í vettvangsferðir, sumir innan borg- armarkanna, en aðrir um Reykjanessvæðið og Suður- land. í ferðunum kynntist fólk náttúru landsins, ýmsum stofnunum, sem gegna mikilvægu hlutverki f umhverf- ismálum, og eru margar þeirra reknar af sveitarfélög- um. Vettvangsferðirnar voru farnar til að jarðtengja viðfangsefnin, þ.e. að kynnast manngerðu og einkum náttúrlegu umhverfi frá ólíkum hliðum og hvernig nýta megi það til fræðslu. Ferðirnar tókust vel, enda var mikil vinna lögð í að skipuleggja þær, og frábært veður spillti ekki fyrir. Öll erindi og öll kynning á ráðstefnunni var flutt á dönsku, norsku eða sænsku, enda þótt meirihluti fyr- irlesara væri íslendingar. Flestir íslendinganna sömdu 189
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.