Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Blaðsíða 42

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Blaðsíða 42
STJÓRNSÝSLA láta þau vera áfram hjá sýslu- mönnum, en eftir I. júh' eru þau ekki lengur dómsmál. Þar með er ekki lengur neitt til, sent heitir fó- geta-, uppboðs- eða skiptaréttur, enda vísar orðið „réttur“ til þess, að um dómstól sé að ræða. Rísi hins vegar ágreiningur milli aðila eða ef deilt er um störf sýslumanna, til dæmis við fjárnám eða nauðungarsölu, er honum vís- að til dómstólanna. Þannig eru þessi verkefni í raun brotin upp í tvo aðskilda hluta, sem skiptast á milli handhafa framkvæmdarvalds og dómsvalds. í löggjöf, sem sett hefur verið í kjölfar aðskilnaðarlaganna, er greint á milli þessara tveggja þátta. Helztu lög, sem hafa verið sett í þessu skyni, eru: - Lög um aðför nr. 90/1989 - Lög um kyrrsetningu, lögbann o.fl. nr 31/1990 - Lög um nauðungarsölu nr. 90/1991 - Lög um skipti á dánarbúum o.fl. nr. 20/1991 - Lög um gjaldþrotaskipti o.fl. nr. 21/1991 Verkefni fluttfrá ráðuneytum út í héruð til sýslumanna Unt leið og aðskilnaðarlögin og ný réttarfarslöggjöf öðluðust gildi I. júlí, urðu nokkrar tilfærslur á verkefnum, sem æðstu handhafar framkvæmdarvaldsins, ráðuneyt- in, fóru með áður. Ýmsar leyfis- veitingar, sem almenningur þurfti áður að leita eftir í Reykjavík, voru þannig færð út í héruð til sýslumannanna. Þar má til dæmis nefna verkefni, sem dómsmála- ráðuneytið hefur farið með fyrir landið allt; útgáfu lögskilnaðar- leyfa, úrskurði um umgengnisrétt foreldra og barna og meðlags- greiðslur og ýmsar leyfisveitingar í lögræðismálum. mörkum, með undantekningu hvað varðar mörk héraðsdómstól- anna í Reykjavík og á Reykjanesi, eins og lýst verður hér síðar. Stærsti héraðsdómstóllinn er héraðsdómur Reykjavíkur, en hann tók við verkefnum borgar- dómaraembættisins, borgarfógeta- embættisins, sakadóms og saka- dóms í ávana- og fíknefnamálum. Embættisheitin borgardómari, borgarfógeti og sakadómari eru þar með aflögð. Þeir dómarar, sem starfa við áðurgreinda dómstóla, flytjast flestir til héraðsdóms Reykjavíkur. Þar starfa alls 21 héraðsdóntari, þar með talinn dómstjóri, sem annast yfirstjórn héraðsdómstólsins. Héraðsdómur Vesturlands er í Borgarnesi, héraðsdóntur Vest- fjarða er á Isafirði, og héraðsdóm- ur Norðurlands vestra er á Sauð- árkróki. Við hvern þessara dómstóla situr einn héraðsdómari. Við héraðsdóm Norðurlands eystra á Akureyri starfa þrír hér- aðsdómarar, þar með talinn dóm- stjóri. Héraðsdómur Austurlands er á Egilsstöðum, og þar situr einn héraðsdómari. Héraðsdómur Suð- urlands er á Selfossi. Þar sitja þrír héraðsdómarar, að meðtöldum dómstjóra. Loks starfa sjö héraðs- dómarar að meðtöldum dómstjóra við héraðsdóm Reykjaness. Eina hlutverk héraðsdómstól- anna er að fara með dómstörf. Þar verður því dæmt í öllum einka- málum og sakamálum. Dómstól- arnir kveða einnig upp úrskurði um gjaldþrotaskipti og opinber skipti á dánarbúum og skipa sam- hliða því skiptastjóra til að annast framkvæmd skiptanna. Héraðs- dómstólarnir úrskurða í ágrein- ingsmálum vegna gjaldþrota- og dánarbússkipta, fjárnáms, nauð- ungarsölu o.fl. réttarskipulag var ekki talið geta tryggt hlutleysi dómara í héraði, ckki sízt vegna þess að sýslumenn og bæjarfógetar utan Reykjavíkur höfðu afskipti af sakamálum bæði sem lögreglustjórar og dómarar. Þar með gátu Islendingar ekki uppfyllt ákvæði Mannréttindasátt- mála Evrópu, sem þeir hafa skuldbundið sig til að fylgja, en þar segir, að rnenn skuli fá mál sín útkljáð fyrir óhlutdrægum dóm- stóli. Dómsyald fluttfrá sýslumönnum til héraðsdómstóla I aðskilnaði dómsvalds og um- boðsvalds felst fyrst og fremst, að dómsvald í einkamálum og saka- málum er flutt frá sýslumönnum og bæjarfógetum til héraðsdóm- stóla. Þannig er verkum fram- kvæmdarvalds og dómsvalds skipt á milli 27 sýslumanna í jafnmörg- um sljórnsýsluumdæmum og átta héraðsdómstóla í jafnmörgum dómumdæmum. Tvenn lög hafa verið sett um meðferð einka- og sakamála fyrir dómstólum, en það eru: - Lög um meðferð einkamála nr. 91/1991 - Lög um meðferð opinberra inála nr. 19/1991 Aðskilnaður felur í sér umtals- verðar breytingar á öðrum sviðum en á vettvangi dómsmála í einka- málum og sakamálum. Um leið og dómsvaldið var fært frá sýslu- mönnum og bæjarfógetum, þurfti að ákveða, hvort margvísleg önnur störf, sem þeir hafa annazt sem dómarar, ættu einnig að flytjast til dómstólanna eða hvort þau ættu að vera áfram hjá sýslumönnum sem framkvæmdarvaldsstörf. Dæmi um slík slörf eru framkvæmd fjár- náms, nauðungaruppboða og dán- arbússkipti. Þessi störf hafa sýslu- menn unnið sem dómarar fyrir fógetarétti, uppboðsrétti eða skiptarétti og jafnframt kveðið upp dómsúrskurði í ágreiningsmálum, sem þar hafa komið upp. Þar sem framkvæmd þessara starfa er rniklu eðlislíkari venjulegum framkvæmdarvalds- eða stjórn- sýslustörfum, þótti eðlilegast að Atta héraðsdómstólar fara með dómstörf Átta nýir héraðsdómstólar tóku til starfa 1. júlí, eins og áður er fram kontið. Einn dómstóll er í hverju kjördæmi landsins. Mörk dómumdæma fylgja kjördæma- 27 sýslumenn fara með stjórnsýslu í héraði Landinu er skipt í 27 stjórn- sýsluumdæmi samkvæmt aðskiln- aðarlögunum. I hverju þeirra situr einn sýslumaður, en stærsti hluti allrar stjórnsýslu ríkisins í héraði 168
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.