Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Blaðsíða 22
SKIPULAGS- OG BYGGINGARMÁL
Helztu breytingar á stofn- og tengibrautum til ársins 2010.
hverfin verður byggður í Borgarholti II. Flestar
breytingar á landnotkun innan núverandi byggðar
eru óverulegar.
Stofnbmutakerfi: Til að þjóna þessum nýju
byggðasvæðum þarf að gera tvær nýjar stofnbrautir,
Osabraut yfir Elliðaárósa og Sundabraut (hábrú eða
í göngum) yfir Kleppsvík. Aðrar breytingar á aðal-
gatnakerfum, sem unnið verður að á næstu árum, eru
þessar:
Á árinu 1992 verður hafizt handa við gerð Geirs-
götu á hafnarbakkanum í gömlu höfninni, og verður
því verki lokið 1993. Á árinu 1993 er áformað að
gera austurhluta Ósabrautar, en ekki er ákveðið,
hvort vesturhlutinn, þ.e. brú yfir Elliðaárósa, verður
gerður þar næst á eftir eða hvort breikkun Vestur-
landsvegar austur að Höfðabakka með umferðarbrú
á gatnamótum þar verður gerð á undan. Að því til-
skildu, að ekki hægi enn meir en þegar er orðið á
uppbyggingu nýbyggingahverfanna í austurborg-
inni, þarf að ljúka báðum þessum verkefnum ásamt
breikkun Miklubrautar innan fimm ára. Áætlað er að
ljúka tengingu Suðurlandsvegar við Vesturlandsveg
í Smálöndum og framlengingu Breiðholtsbrautar
austur að Rauðavatni á næstu þremur árum. Þá er
gert ráð fyrir að leggja Hlíðarfót og Fossvogsbraut
í göngum fyrir aldamót og hefja lagningu nýrrar
stofnbrautar yfir Kleppsvík út í Geldinganes.
Miðbœrinn — Miðhverfi: Áfram verður haldið
uppbyggingu samkvæmt deiliskipulagi miðbæjarins
frá 1986. Hinn 15. maí 1990 samþykkti borgarráð að
leggja hitalagnir í götur og gangstéttir í miðbænum
samhliða endurnýjun á öðrum lögnum í borgarhlut-
anum. Stefnt er að verklokum árið 1994. Ráðhús
borgarinnar, sem risið er við Tjömina, var vígt 14.
apríl sl. Haustið 1991 samþykkti borgarráð að efna
til lokaðrar samkeppni um útfærslu og skipulag
Ingólfstorgs og breytingu á Geysishúsunum í upp-
lýsingamiðstöð borgarinnar með hliðsjón af stað-
festu skipulagi miðbæjarins. Sú samkeppni stendur
nú yfir. Þá eru uppi hugmyndir um miðbæjarþjón-
ustu í húsaröðinni milli Tryggvagötu og Geirsgötu
og gleryfirbyggingar t.d. við Austurstræti og Vall-
arstræti. Áfram verður haldið fegrun Laugavegar og
tilraun gerð með léttar yfirbyggingar yfir gangstéttir
meðfram götunni.
Næstu bílageymsluhús verða byggð við Hverfís-
götu og Tryggvagötu. I Kringlunni eru ekki allar
lóðir fullbyggðar miðað við deiliskipulag. Upp-
bygging nýs miðhverfís við Vesturlandsveg, neðan
Hamrahlíðar, gæti hafizt í lok skipulagstímabilsins,
148