Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Qupperneq 8

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Qupperneq 8
FRÉTTIR FRÁ SVEITARSTJÓRNUM forstöðumaður Borgarskipulags. Er nú ekki að orðlengja það, að hafizt var handa og hönnuðir ráðnir. • Arkitektar voru þegar ráðnir þeir, sem til fyrstu verðlaunanna unnu, þau Margrét Harðardóttir og Steve Christer, og hafa þau síðan starfað að verkefninu ásamt samstarfsmönnum sínum undir nafninu Studio Granda. • Almenna verkfræðistofan hf. sá um burðarþol, loft- ræsingu og lagnir. • Rafhönnun hf. annaðist raflagnir. • Mat sf. sá um hönnunarstjórn og byggingarstjórn. • J. Roger Preston Ltd., brezkt ráðgjafarfyrirtæki, var fengið til þess að gera forhönnun á öllum lagnakerfum hússins og vera sérstaklega til ráðuneytis við útfærsl- una. • Línuhönnun hf. var höfð sérstaklega til ráðuneytis í ýmsu því, er varðar steinsteypu og þéttingar. • Verkfræðistofan Önn hf. hefur annazt útreikninga á hljómburði og hljóðeinangrun. Verkið hófst síðan á byggingarstað með verksamningi 2A, sem gerður var við Istak hf. að undangengnu lokuðu útboði og undirritaður var 28. marz 1988. Verkið fólst í gerð fyllingar í Tjörnina, niðurrekstri á stálþili og greftri í hússtæði. Jafnframt var um það samið, að gera skyldi verksamning 2B um uppsteypu kjallara á grundvelli tilboðs ístaks hf., eftir að lokið var forhönnun nokkurra kosta. Verkið hefur síðan verið unnið á grundvelli þriggja verksamninga við Istak hf. Verksamningur 4A, sem undirritaður var 1. febrúar 1990, tók við, er ráðhúsið var fokhelt og fól í sér, að samið var við ístak hf. um aðalverktak, þ.e. rekstur vinnustað- arins auk stjórnunar og samræmingar framkvæmda á byggingarstað undir eftirliti byggingarstjóra. Jafnframt var svo ráð fyrir gert, að allir helztu verkþættir yrðu boðnir út sameiginlega af verkkaupa og aðalverktaka. Undir ákvæðum verksamningsins hafa verið gerðir alls um 75 verksamningar við undirverktaka og efnissala, auk þess sem verkefnisstjórnin hefur á sama tíma gert um 60 verksamninga vegna efnis og búnaðarkaupa. Þessi dæmi gefa nokkra hugmynd um umfang verks- ins. Vel heppnað ráðhús á meðal annars að sýna ókomnum kynslóðum það bezta í byggingarlist, tækni og hand- verki samtíðarinnar. Þetta hefur að mínu mati tekizt mætavel í Ráðhúsi Reykjavíkur. Hér hafa verið leyst ýmis flókin verkefni, svo sem að byggja hús undir vatni, gera steinsteypu þannig úr garði, að hún haldi vatni og að verja húsið því, að það fljóti upp. Hér hefur verið náð áður óþekktum árangri við gerð sjónsteypu, svo að nokkur atriði séu nefnd af mörgum. Ráðhúsið hýsir líkan af landinu okkar, sem líJcana- smiðir borgarinnar hafa unnið að á undanfömum sjö árum. Þar lofa verkin einnig meistarana. Verkefnisstjórnin þakkar öllum þeim, sem hér hafa unnið. Ég hef þann heiður að afhenda hæstvirtum forseta borgarstjórnar, hr. Magnúsi L. Sveinssyni, Ráðhús Reykjavíkurborgar til afnota. Táknrænn hlutur fylgir, viðarskjöldur úr jatobaviði með ágreyptri áletrun og mynd úr silfri, í tilefni dagsins. Hamingjuóskir með hið nýja Ráðhús Reykjavíkur Skrifstofuhúsgögnin í Ráðhúsinu eru framleidd af GKS hf. og hönnuð af Pétri B. Lútherssyni, húsgagnaarkitekt. Gamla Kompaniið / Kristjón Siggeirsson • Hesthólsi 2 - 4 • 110 Reykjavik • Simi 91- 072110 • Fax 91- 671688 134
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.