Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Síða 31
ATVINNUMÁL
Aherzlur fulltrúa sambandsins í
samstarfsnefndinni um atvinnumál
Á fundi stjórnar sambandsins,
sem haldinn var á Akranesi 12. júní
sl., var samþykkt, aö fulltrúar sam-
bandsins legðu fram eftirfarandi
greinargerð og tillögur til umræöu
í samstarfsnefndinni um atvinnu-
mál. Var það gert á fyrsta fundi
nefndarinnar, sem haldinn var
mánudaginn 22. júní:
Yfirlit
Efnahagsþróun frá seinni hluta
áttunda áratugarins fram á þann
tíunda var íslandi í hag. Aukning í
landsframleiöslu var tiltölulega
mikil, og er landsframleiðsla á
mann nú meðal þess, sem bezt
gerist í heiminum. Á sl. þremur
árum hefur tekizt að draga veru-
lega úr verðbólgu og beizla hana.
Á sama tíma hefur atvinnuleysi
verið með þvl minnsta, sem þekkist
í Evrópu. Lykilinn að þessum ár-
angri hefur veriö aö finna í sjávar-
útvegi og fiskvinnslu, álframleiðslu
og ferðaþjónustu.
Undanfarin ár hefur þó stöðnun
ríkt í efnahagskerfi þjóöarinnar, og
fátt bendir til, að ísland geti treyst
á tvær af uppsprettum íslenzkrar
velmegunar öllu lengur. Sjaldan
hefur Islendingum verið jafn aug-
Ijóst og nú, að sjávarfang er tak-
markað. Nýtingarmöguleikar ál-
versins eru nú þegar í hámarki, og
frekari álversframkvæmdum er
frestað um óákveðinn tíma, enda
lækkandi álverð á heimsmarkaði.
Þá má vera Ijóst, að miðað við þann
stutta tíma, sem ísland hefur hingað
til boðizt feröamönnum, eru mögu-
leikar á fjölgun þeirra takmarkaðir.
Samdráttur í landsfram-
leióslu frá 1988
Frá árinu 1988 er um að ræða
samdrátt í landsframleiðslu. At-
vinnuleysi hefur vaxið ört á undan-
förnum mánuðum.
ísland stendur því óhjákvæmi-
lega á tímamótum. Viö stöndum
frammi fyrir erfiðu vali um atvinnu-
stefnu. Hvernig er skynsamlegast
aö nýta fjármagn og mannafla
þannig, að tekjumöguleikar lands-
ins verði hámarkaðir?
Ef einblínt er á núverandi at-
vinnuvegi, blasa eftirtaldar stað-
reyndir við: Til þess að bæta upp
stöðnun I efnahagslífi síðustu
þriggja ára og viðhalda núverandi
lífsgæðum eftir 8 ár, þ. e. áriö
2000, þarf að öllum líkindum að
hafa tekizt að nær þrefalda tekjur
sjávarútvegs og fiskvinnslu - eða
auka iðnaðarframleiðsluna nífalt -
Tölvudisklingar
á heildsöluverði
í Ijósi nokkuð hárrar smásöluálagningar á tölvudisk
lingum almennt á íslandi, þá höfum við ákveðið að selja
aðeins beint til notenda á HEILDSÖLUVERÐI, í verslun
okkar að Skipholti 31, Reykjavík. Notendur á lands-
byggðinni geta pantað án póstkröfukostnaðar
nil . ísíma 91-680450.
Okkarverð er
sem hérsegir: MeðVSK Venjul. smásala
MD2D 5 1/4" kr. 56,- stk. 86,- stk.
MD2HD 5 1/4” kr. 88,- stk. 136,- stk.
MF2DD 3 W kr. 89,- stk. 139,- stk.
MF2HD 3 1/2” kr. 149,- stk. 233,- stk.
FUJI tölvudisklingar er hágæðavara, sem býðst nú á
miklu betra verði, en disklingar í lægri gæðaflokkum.
Nýttu þér HEILDSÖLUVERÐ okkar!
Skipholti 31 Fax: 91-680455
157