Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Síða 45

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Síða 45
STJÓRNSÝSLA ætti lögreglustjórans í Reykjavík fer þó með lögreglustjórn þar eftir sem áður. Helztu verkefni, sem sýslumaður annast sem lögreglu- stjóri, og verk lögreglustjórans í Reykjavík eru almenn löggæzla, en jafnframt hefur bætzt við störf þeirra ákæruvald í umferðar- og áfengislagabrotum og brotum, sem varða aðeins sektum og varðhaldi. Fyrirmæli um þetta eru nýmæli í lögum um meðferð opinberra mála. Að auki annast lögreglustjórar útgáfu ýmissa skjala, leyfisveit- ingar, svo sem útgáfu ökuskírteina og vegabréfa, veitingu skemmt- analeyfa, skotvopnaleyfa o.fl. Sýslumenn eru tollstjórar hver í sínu umdæmi utan Reykjavíkur, þar sem embætti tollstjórans í Reykjavík fer með tollstjórn. Auk almennrar tollstjórnar annast sýslumenn og tollstjórinn í Reykjavík innheimtu virðisauka- skatts og aðflutningsgjalda og lögskráningu skipshafna. Innheimta á tekjum ríkissjóðs, þ.á m. sköttum og tengdum gjöld- um, er í höndum sýslumanna, og á nokkrum stöðum annast þeir einnig innheimtu fyrir sveitarfé- lög. Þetta á þó ekki við í umdæm- um, þar sem innheimta opinberra gjalda er falin sameiginlegum gjaldheimtum ríkis og sveitarfé- laga. Umboð fyrir Tryggingastofnun ríkisins og umsjón sjúkratrygginga Sýslumenn eru umboðsmenn Tryggingastofnunar utan Reykja- víkur hver í sínu umdæmi og hafa umsjón með sjúkratryggingum utan Reykjavíkur. í Reykjavík eru bætur greiddar út hjá Trygginga- stofnun, en ekki hjá sýslumanni. Borgaralegar hjónavígslur og skilnaðarleyfi Sýslumaður annast borgaralegar hjónavígslur. Þetta á líka við um sýslumanninn í Reykjavík, en áður fóru borgaralegar hjónavígslur í Reykjavík fram hjá borgardóm- araembættinu. Sýslumenn sjá lika að öllu leyti um útgáfu á skilnaðarleyfum, bæði leyfum til skilnaðar að borði og sæng og lögskilnaðarleyfum. Ut- gáfa lögskilnaðarleyfa, sem var áður í höndum dómsmálaráðu- neytisins fyrir landið allt, færist þannig út í héruð til sýslumanna. Útgáfa leyfa til skilnaðar að borði og sæng í Reykjavík færist frá embætti borgardómara til sýslu- mannsins í Reykjavík. Málefni barna - umgengnis- réttur og meðlagsgreiðslur Sýslumaður leysir úr deilum, sem upp koma milli foreldra vegna umgengnisréttar við börn. Hægt er að kæra þá ákvörðun hans til dómsmálaráðuneytisins. Fram til þessa hefur eingöngu dómsmála- ráðuneytið úrskurðað í ágrein- ingsmálum út af umgengnisrétti. Sýslumaður leysir einnig úr ágreiningi, sem rís um meðlags- greiðslur með barni. Lögræðismál Sýslumenn eru yfirlögráðendur, hver í sínu umdæmi. Ymsar leyf- isveitingar vegna lögræðismálefna færðust til sýslumanna frá dóms- málaráðuneytinu 1. júlí. Þar má nefna leyfi vegna kaupa, sölu og veðsetningar á fasteignum ófjár- ráða manna o.fl. Þinglýsingar Sýslumaður er þinglýsinga- stjóri, og þinglýsing skjala og varðveizla þeirra fer fram á skrif- stofu hans. Dómstólar dæma í deilum, sem verða um störf þing- lýsingastjóra. Dánarbússkipti Sýslumenn sjá um margs konar skrásetningu og leyfisveitingar vegna dánarbússkipta, þar á meðal móttöku á dánartilkynningum, skráningu mannsláta og eftirlit með málefnum dánarbúa, þar til skipti hefjast eða leyfi er veitt ti! setu í óskiptu búi, en þeir veita jafnframt þessi leyfi. Við hvert sýslumannsembætti er haldin sér- stök dánarskrá, þar sem öll andlát í viðkomandi umdæmi eru færð inn, annaðhvort eftir tilkynningu eða samkvæmt upplýsingum frá þjóðskrá. Þar er jafnframt skráð framvinda dánarbússkipta, þ.e. hvort erfingjar ljúka einkaskiptum á tilsettum tíma, hvort maki sækir um leyfi til setu í óskiptu búi o.s.frv. Fjárnám og aðrar aðfarar- gerðir Sýslumaður framkvæmir fjár- nám og aðrar aðfarargerðir, svo sem innsetningar- og útburðar- gerðir. Eftir 1. júlí er enginn greinarmunur gerður á lögtökum og fjárnámum, heldur ganga báðar þessar gerðir þá undir heitinu fjár- nám. Ef ágreiningur kemur upp við fjárnám, annaðhvort um ákvörðun sýslumanns eða á milli þeirra, sem hlut eiga að máli, er hann lagður fyrir dómstóla. Þetta er í samræmi við þá meginstefnu, sem aðskiln- aðurinn hefur að leiðarljósi og áður er lýst; sýslumaður fram- kvæmir - dómstólar leysa úr ágreiningi. Nauðungarsala Sýslumenn framkvæma nauð- ungarsölu á eignum. Heitið nauð- ungarsala kemur í stað heitisins nauðungaruppboðs áður. Það kemur til af því, að samkvæmt nýjum lögum um nauðungarsölu eru eftir 1. júlí fleiri valkostir um að selja eign en á uppboði. Ef krafizt er nauðungarsölu á fasteign eða lausafé, er hægt að reyna sölu þeirra á almennum markaði með tilteknum skilyrðum, ef eigandi þeirra vill það frekar, áður en eign er seld á uppboði. Þannig getur fasteignasali haft milligöngu um RUSLASTAMPAR akta hf. Sími685005 171

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.