Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Blaðsíða 49

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Blaðsíða 49
STAÐLAR Nýr staðall - IST 35 SAMNIN GSSKILMÁL ARUM HÖNNUN OG RÁÐGJÖF Dr. Hafsteinn Pálsson, verkfræðingur, Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins Inngangur Hinn 1. maí sl. öðlaðist gildi nýr staðall, ÍST 35 Samningsskilmálar um hönnun og ráðgjöf. Vonir eru bundnar við, að með tilkomu staö- alsins fari í vöxt, að ráðgjafar og þeir, sem kaupa ráðgjöf af þeim, geri samninga um þá vinnu, sem fyrirhugað er, að ráðgjafi láti verk- kaupa í té. Sérstök áherzla var lögð á þaö við gerð staðalsins, aö ákvæði væru sem almennust og að þau gætu átt við ráðgjöf í sem víðustu samhengi. Fram að þessu hafa einungis verið til staðar samningsskilmálar, sem samdir hafa verið einhliða af einstökum hagsmunaaðilum, og má þar nefna Almenna samnings- skilmála um tækniráðgjöf (AST) frá Félagi ráðgjafarverkfræöinga. Jafnframt hefur við stærri verk ver- ið notaö alþjóðlegt skjal, sem hefur að geyma reglur og eyðublaö fyrir samning milli verkkaupa og ráö- gjafarverkfræðings vegna hönn- unar og eftirlits með framkvæmd- um. Notkun ofangreindra samn- ingsskilmála hefur veriö frekar tak- mörkuð, og er það væntanlega vegna þess, aö þeir eru samdir af einum hagsmunaaöila án samráðs við aðra. Tilkoma staðalsins á aö gerbreyta þessu, þar sem helztu hagsmunaaöilar úr hópi ráögjafa og verkkaupa unnu sameiginlega að gerð staöalsins. 1200 stunda vinna í nefnd- arstarfi Nefnd á vegum Byggingar- staðlaráðs vann að gerð staðals- ins. Nefndina skipuðu þeir Kari Ómar Jónsson, verkfræðingur, fulltrúi Félags ráðgjafarverkfræð- inga, Hrafnkell Thorlacius, arkitekt, fulltrúi Arkitektafélags íslands, Stefán Hermannsson, aöstoðar- borgarverkfræðingur, fulltrúi Sam- bands íslenzkra sveitarfélaga, og Þórður Bogason, lögfræðingur, fulltrúi Fjárlaga- og hagsýslustofn- unar. Magnús Sædal Svavarsson, tæknifræðingur hjá borgarverk- fræðingi, starfaði með nefndinni frá ársbyrjun 1990. Auk þess unnu með nefndinni dr. Hafsteinn Páls- son, verkfræðingur hjá Byggingar- staðlaráöi, og Guðrún Rögnvald- ardóttir, verkfræðingur hjá Staðlaráði. Arnljótur Björnsson, prófessor, yfirfór kaflann um ábyrgð og gaf mikilvægar ráð- leggingar. Vinna við gerð staðalsins hófst í september 1989. Alls voru haldnir 48 bókaðir fundir auk fjölda undir- búningsfunda. Drög að frumvarpi voru send tvisvar í lokaða gagnrýni hjá 10-15 völdum aðilum, meöan á vinnunni stóð, og aö auki var fundað með nokkrum þeirra til að kynna drögin. Jafnframt voru drögin kynnt á fundi Samtaka tæknimanna sveitarfélaga. Gerð staöals krefst mikillar vinnu. Varlega áætlað má telja, að nefndarmenn hafi unnið a.m.k. 1200 klst. vegna staðalsins. Ef meta ætti þessa vinnu til fjár, þá er stærðargráðan um 5 millj. kr. Tví- mælalaust verður þessi vinna að teljast myndarlegt framlag við- komandi hagsmunaaðila til verks- ins. Að auki lagði skrifstofa borgarverkfræðingsembættisins í Reykjavík til fundaaöstöðu ásamt meðlæti fyrir nefndina. Heimildir og fyrirmyndir í upphafi starfsins voru eftirtalin gögn skoðuð: - Sænska skjalið ABK 76. „Al- mánna bestámmelser for konsult- uppdrag inom arkitekt- och ingenjörsverksamhet". - Alþjóðlega skjalið IGRA 1979, íslenzk þýðing. Alþjóðlegt eyðu- blaö fyrir samning milli verkkaupa og ráðgjafarverkfræðings og Al- mennar alþjóðlegar reglur um samning milli verkkaupa og ráð- gjafarverkfræðings vegna hönn- unar og eftirlits með framkvæmd- um. - Almennir samningsskilmálar frá Félagi ráðgjafarverkfræðinga (AST). - Drög að sérskilmálum við al- menna samningsskilmála um tækniráðgjöf frá Fjárlaga- og hag- sýslustofnun. - Norski staöallinn NS 3403. „Alminnelige kontraktsbestemm- elser om arkitekters og ingeniörers utförelse av prosjektering og rád- givning". - Danski bæklingurinn ABR 75. „Almindelige bestemmelser for teknisk rádgivning og bistand". - Finnski staðallinn RT 13-10214 S. „Almánna avtalsvillkor för konsultverksamhet KSE 1983". Síðar voru einnig skoðuð eftir- farandi gögn: 175 L
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.