Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Page 56

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Page 56
TÆKNIMÁL með hitastýrðum loka, sem heldur ákveðnu hitastigi á því vatni, sem kemur frá snjóbræðslukerfinu. Önnur aöferð er að nota hita- veituvatn beint inn á kerfin. Þá er dæla, sem heldur uppi hringrás í kerfinu, en hitastýrður loki bætir nýju hitaveituvatni inn á kerfið, eftir því sem vatnið í því kólnar. Þriðja aðferðin er að nota lokaö hringrásarkerfi með frostlagar- blöndu. Þá er frostlagarblandan hituð í millihitara með hitaveitu- vatni og heitri blöndunni síðan dælt um snjóbræðslukerfiö. Frost- lagarkerfið er dýrast f stofnkostn- aði, en á móti kemur öryggið með að ekki frjósi í lögnunum og möguleiki á sparnaði í rekstri með aö keyra tímabundið á lægra hita- stigi, t.d. þegar ekki er hætta á snjókomu. Hitaveita Reykjavíkur hefur sett fram kröfur um, að ávallt skuli vera frostlagarkerfi, þar sem snjóbræðslulagnir eru steyptar inn, t.d. í tröppur. Umdeilanlegt er, hvort þetta sé raunhæf krafa og athugandi, hvort ekki sé hag- kvæmara að nota rafmagnshitun, t.d. þar sem lítil trappa er tengd stóru kerfi. Einnig mætti nefna snjóbræðslu með rafmagni. Þá eru settir raf- magnsþræðir í sandlagiö undir hellur, f malbikið eða þeir steyptir inn í stéttir. Til þessa hefur raf- magn verið það dýrt hér á landi, að þessi aðferð hefur aöeins verið notuð í litlum mæli og þá aðallega við anddyri stofnana og til að bræða snjó í þakrennum og í kringum þakniðurföll. Þá er yfirleitt notaður tímaliði, og kerfið er gangsett í hvert sinn, sem snjóar. Ef raforkuverð lækkar hér á landi, má búast við, að algengara verði að nota rafmagn við snjóbræðslu á þeim svæðum, sem ekki njóta hitaveitu. Við útlagningu skal þess gætt, að undirlagið, sem pípurnar eru lagðar á, sé vel þjappað, sé slétt og í réttri og jafnri hæð undir end- anlegu yfirborði. Sé ekki gætt að þessu, er hætta á, að kerfiö bræði ekki jafnt af sér og að það myndist svæði, sem eru lengur að bræða af sér en önnur. Eða þá, að kerfið verði óþarflega dýrt í rekstri. Hér á landi hefur skapazt sú venja að leggja pfpurnar 10 cm undir endanlegu yfirborði og að hafa 25 cm á milli pípnanna. Ef lagnir eru of djúpt, minnka afköst kerfisins, og ef lagnir eru of grunnt, myndast rákir fyrir ofan lagnirnar, sem bræða af sér, en snjórinn liggur á milli í görðum. Reynslan hefur kennt okkur, að það er ekki sama, hvernig sandur er settur yfir lagnirnar. Einkorna grófur sandur einangrar of vel og veldur því, aö hitinn kemst ekki að yfirborðinu. Auk þess þjappast hann ekki og er því óhæfur undir malbik. Rannsóknastofnun byggingar- iðnaðarins er nú að athuga sand úr ýmsum námum á suðvestur- horni landsins með tilliti til ein- angrunargildis hans og þjöppun- areiginleika í kringum lagnir. Ef snjóbræðslukerfið er undir mal- biki, veröur að vera hægt að þjappa sandinn, svo hægt sé að keyra malbikunarvél og vörubíla á honum. Við útlögn verður að vera þrýstingur á lögnunum, svo að þær leggist ekki saman undan þunga útlagningarvéla og vöru- bíla. Við rekstur kerfanna verður aö hafa í huga, að það er varmaforð- inn í jörðinni, sem bræðir snjóinn. Yfirborðið veröur að vera heitt, þegar snjórinn fellur, og því er of seint að setja kerfin í gang, þegar snjórinn er fallinn. Það tekur lang- an tíma að hita upp yfirborðiö, ef það hefur náð aö kólna niður, og því verða kerfin að vera í gangi allan veturinn og mega ekki kólna niður, nema menn geti aukið hit- ann í þeim um það bil sólarhring, áður en von er á snjókomu. Ekki mega menn gleyma niður- föllunum til að taka við bráðna snjónum. Jaöar á bílastæði meö snjóbræðslu verður að halla að svæðinu, því sums staðar er illfært inn á bílastæði vegna klaka- stykkja, sem myndast, þegar vatn rennur af bræddu svæði í snjóinn við hliðina og frýs þar. í lokin mætti minnast á þann möguleika að setja snjóbræðslu- lagnir undir grasflatir og beð við hús okkar og hýbýli og fá þannig grasið grænt bæði fyrr á vorin og lengur á haustin og lengja þannig sumarið. Eða er það ekki svo, að viö finnum, aö vorið sé komið, þegar grasiö er farið að grænka? Ennfremur mætti lengja vaxtar- tíma plantna og auka vaxtarhraöa þeirra með jarðvegshitun. Nú munu íslendingar vera komnir (fremstu röð hvað varðar útbreiðslu snjóbræðslukerfa, og miðað við þróun á undanförnum árum, má áætla, að útbreiðsla þeirra verði enn meiri á komandi árum. Myndin sýnir, er veriö er aö leggja sand yfir snjóbræöslulagnir viö Kísiliðjuna viö Mývatn. Ljósm. Siguröur Grétar Guömundsson. 182

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.