Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Síða 7
RÍKISSTJÓRN
Ráöherraskipti. Páll Pétursson tekur viö
lyklinum aö félagsmálaráöuneytinu úr
hendi Rannveigar Guömundsdóttur, frá-
farandi félagsmálaráöherra. Ljósm. Mbl.
Kristinn Ingvarsson.
Hann var fulltrúi í Norðurlandaráði 1980 til 1991, for-
maður íslandsdeildar þess 1983-1985 og forseti Norður-
landaráðs 1985 og 1990. Hann átti sæti í samstarfsnefnd
með Færeyingum og Grænlendingum 1981 um sameig-
inleg hagsmunamál, hefur verið í Evrópustefnunefnd frá
1988 og í þingmannanefnd EFTA frá 1991.
Páll átti sæti í rannsóknaráði ríkisins 1978-1980, í
flugráði 1983-1992 og hefur verið í stjóm Landsvirkj-
unar frá 1987.
Fyrri kona Páls var Helga Ólafsdóttir sem lést árið
1988. Þau eignuðust þrjú böm. Síðari kona hans er Sig-
rún Magnúsdóttir borgarfulltrúi.
/
Arni Gunnarsson aðstoðarmaður
félagsmálaráðherra
Páll Pétursson félagsmálaráðherra hefur ráðið Ama
Gunnarsson blaðamann aðstoðarmann sinn.
Ámi er fæddur á Akureyri 15. apríl 1967 og em for-
eldrar hans Helga Hugrún Árnadóttir húsfreyja og
Gunnar Oddsson, bóndi í Flatatungu í Akrahreppi í
Skagafirði.
Hann lauk gagnfræðaprófi frá Varmahlíðarskóla og
síðan stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið
1987. Stundaði nám í sagnfræði við Háskóla íslands
1989-1992 og í sagnfræði og þýsku í Bielefeld í Þýska-
landi 1992-1993. "
Árni starfaði til sveita og stundaði almenn verka-
manna- og afgreiðslustörf með námi. Hann var ritstjóri
héraðsblaðsins Einherja á Norðurlandi vestra og starfs-
maður Kjördæmissambands framsóknarmanna á Norð-
urlandi vestra árin 1987-1988, blaðamaður á Tímanum
1988-1990, frétta-
maður á fréttastofu
Bylgjunnar og Stöðv-
ar 2 1991, blaðamað-
ur á Tímanum
1991-1992, afleys-
ingafréttamaður á
Ríkisútvarpinu á Ak-
ureyri 1992 og hefur
verið blaðamaður á
Tímanum frá árinu
1993. Hann hefur
einnig stundað leið-
sögustörf, auglýsinga-
gerð, greinaskrif og
önnur ritstörf.
Kona hans er Þor-
björg Elenora Jónsdóttir, fædd 1970, nemandi í Kennara-
háskóla Islands. Þau er bamlaus.