Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Qupperneq 8
AFMÆLI
Seyðisfjarðarkirkja á nýársdag þegar ávarp bæjarstjóra var flutt. í baksviöi sést lýsing i fjallinu Bjólfi sem tendruö var kl. 12 á miö-
nætti aðfaranótt nýársdags og mun loga út afmælisáriö.
Seyðisfjörður 100 ára
Þorvaldur Jóhannsson bœjarstjóri
Seyðfirðingar minnast þess í ár að eitt liundrað ár eru
frá stofnun kaupstaðarins. Bæjarstjórinn, Þorvaldur Jó-
hannsson, minntist afmælisins á fyrsta degi ársins í
Seyðisfjarðarkirkju með ávarpi því sem hér fer á eftir:
Ágætu Seyðfirðingar, gleðilegt nýtt ár, gleðilegt af-
mælisár.
Á miðnætti sl. kvaddi okkur árið 1994 og við tók nýtt
ár, árið 1995. Við þökkum og gleðjumst yfir þeim
áföngum, stórum og smáum, sem náðust á nýliðnu ári,
en gleymum þá gjaman sem fyrst hverju því sem miður
hefur gengið, ef eitthvað er, eða á annan veg farið en til
var ætlast.
Nýbyrjað ár ber í skauti sér heilmiklar væntingar fyrir
okkur Seyðfirðinga og því hljótum við að taka á móti
því með opnum huga, bjartsýni og fullir eldmóði til að
takast á við ný, spennandi verkefni á afmælisári.
Kaupstaðurinn okkar, Seyðisfjörður, er 100 ára í dag.
Lögin um bæjarstjórn á Seyðisfirði frá 8. maí 1894
mæltu svo fyrir að landsvæði það, sem jarðimar Vest-
dalur, Fjörður og hjáleigumar Fjarðarsel og Oddi ná yfir,
skyldu verða lögsagnarumdæmi út af fyrir sig með
kaupstaðarréttindi.
Lögsagnammdæmið náði því yfir allan fjarðarbotninn
frá Grýtá að norðan og að Grjótgörðum að sunnan.
Þau skyldu öðlast gildi 1. janúar 1895. Fyrir á landinu