Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Qupperneq 17

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Qupperneq 17
AFMÆLI Afmælistertan var risastór - og á henni mynd af Brautarholtsskóla. fræðslumálastjóra 29. febrúar 1936. Enn var þá eftir að mála húsið að utan og ganga frá einni stofu og var sá kostnaður áætlaður 1.250,00 krónur. Ríkissjóðsstyrkurinn varð helmingur áfall- ins byggingarkostnaðar í árslok 1935 - að frádregnu landverði - eða krónur 22.955,87, samkvæmt bréfi Asgeirs Asgeirssonar fræðslumálastjóra, dags. 26. 4. 1936. Einhver viðbót kom síðar fyrir málningu. Ríkissjóðsstyrkurinn átti að koma á nokkrum árum og raunar kom síðasta greiðsl- an ekki fyrr en 1939. Þetta voru krepputímar og peningar varla til. Faðir minn segir frá því í viðtali við Guð- mund Daníelsson í bókinni Þjóð í önn - að bygging þessa skólahúss haft verið erfiðasta hlutverk hans í lífinu - og hefði Jón Jónsson, sparisjóðsstjóri Skeiðahrepps, ekki hlaupið undir bagga, meðan húsið var í smíðum, hefði verkið stöðvast. Og þótt hann hefði rík- isábyrgð í höndunum var honum neitað um 8 þúsund króna lán í öllum bönkum. En lánið fékkst loks hjá Brunabótafélagi íslands - og var þá hægt að ljúka bygg- ingunni. Þá náðust samningar við Kaupfélag Amesinga um kaup á öllu efni - út á ríkisframlagið. Miklu munaði um vinnuframlög hreppsbúa og fram- lög í peningum. Bændur gáfu 686 dagsverk - og allt upp í 40 dagsverk, þeir sem mest gáfu. Ungmennafélag- ar gáfu 102 dagsverk - sem metin voru á krónur 661,70 og félagið lagði auk þess fram 2.126,84 krónur í pening- um. Kvenfélagið lagði fram 1000 krónur. Á Skeiðum voru þá margir góðir smiðir, en mest unnu við bygginguna þeir Jón á Blesastöðum, Eiríkur í Gestir gæða sér á kræsingum. Vorsabæ og bræðurnir Bjarni og Þorgeir á Hlemmi- skeiði. Byggingarmeistari var Kristinn Vigfússon á Selfossi og múrari Jón Bjamason á Eyrarbakka. Dagkaup fullorðinna var þá metið á krónur 6,50, heimasmiða 8,00 krónur og unglinga 5,00 krónur en vinnudagur var þá 10 stundir. Byggingarmeistarinn fékk 14,50 krónur á dag og múrarinn 12,50 krónur. Það er athyglisvert nú til dags að ekki var borguð ein króna í sjóðagjöld eða opinber gjöld af húsbyggingunni. Húsið teiknaði Guðjón Samúelsson, húsameistari rík- isins, og þegar það var risið þótti það glæsilegasta skóla- og samkomuhús á Suðurlandi. Blómlegt starf í Brautarholti Öll aðstaða til kennslu gjörbreyttist til batn- aðar með tilkomu nýja skólans og börnin fengu þar skjól í heimavist. Ráðskona var ráðin að skólanum og mötuneyti sett upp. Unglingafræðsla komst á í nokkra vetur. Allt félagslíf tók fjörkipp og íþróttir. Skeiðamenn voru svo heppnir á þeim tíma að leikfimikennari, Jón Bjamason á Hlemmi- skeiði, var búsettur í sveitinni og fékk ung- mennafélagið hann til að kenna leikfimi. Æfði hann pilta í nokkur ár og árið 1940 sendi ungmennafélagið flokk pilta á landsmót UMFI í Haukadal. Vakti sú sýning landsat- hygli. Þá sýndi einnig hópur pilta frá ung- mennafélaginu fimleika á landsmótinu á Hvanneyri 1943 og piltar frá félaginu tóku þátt í mikilli fimleikasýningu á lýðveldishá- tíðinni á Þingvöllum 1944. Frjálsar íþróttir voru einnig stundaðar og 79
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.