Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Qupperneq 44
ATVINNUMÁL
Markaðs- og atvinnumálaskrifstofa
Keflavíkur-Nj arðvíkur-Hafna
Guðmundur Pétursson, formaður markaðs- og atvinnumálanefndar
Keflavíkur-Njarðvíkur-Hafna
Föstudaginn 3. febrúar var form-
lega opnuð Markaðs- og atvinnu-
málaskrifstofa nýja sveitarfélagsins
Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna.
En eins og kunnugt er þá voru þessi
sveitarfélög sameinuð síðastliðið
sumar.
Fyrir sveitarstjómarkosningarnar
síðustu voru allir stjómmálaflokkar
sem buðu fram sammála því að
opna skrifstofu með starfsmanni og
stuðla þar með að uppbyggingu og
nýsköpun í atvinnumálum. Mark-
aðs- og atvinnumálanefnd hélt sinn
fyrsta fund 27. júlí sl. sumar og hef-
ur síðan unnið markvisst að stofn-
setningu þessarar skrifstofu. Nefnd-
in hefur þegar lagt fram ákveðnar
hugmyndir að stefnumótun og fram-
tíðarmarkmiðum í atvinnumálum
fyrir nýja sveitarfélagið.
Skrifstofa með jafn víðtæku
starfssviði er nýmæli hér á landi, en
hér sameinast aðilar vinnumarkað-
arins og sveitarfélagið í baráttu fyrir
betri framtíð.
Helstu málaflokkar skrifstofunnar
eru:
1. Stjórnarnefnd vinnumiðlunar
sk\\ 9. gr. laga nr. 18/1985
í því felst m.a. skráning atvinnu-
lausra, þjónusta fyrir fólk í atvinnu-
leit, upplýsingamiðlun, að vera
gagnabanki o.fl. Eins og er fer þessi
starfsemi fram eins og áður á bæjar-
skrifstofunum í Keflavík, en
ákvörðun um framtíðarhúsnæði fyr-
ir skrifstofuna þar sem öll starfsem-
in verður á einum stað verður tekin
innan skamms.
2. Uppbygging og nýsköpun í
atvinnumálum
Skrifstofan á að aðstoða og stuðla
að uppbyggingu nýrra atvinnutæki-
færa, veita ráðgjöf og þjónustu, ann-
ast tengingu milli skóla og atvinnu-
lífs, halda ráðstefnur, annast kynn-
ingarmál og fræðslu.
3. Markaðssetning svœðisins
Hér er um að ræða kynningarstarf
og upplýsingaþjónustu, samvinnu
við ráðuneyti, Utflutningsráð, Sam-
tök iðnaðarins og aðra sem vinna að
markaðsmálum, upplýsingamiðlun
til fjölmiðla, ferðamál, skráningu
fyrirtækja og fleira.
4. Núverandi atvinnutœkifœri
Skoða þarf þau atvinnutækifæri
sem fyrir eru á öllum sviðum í sam-
vinnu við alla aðila. Finna þarf leið
til að tryggja að við getum haldið
því sem fyrir er og skoða hvort ekki
séu einhver sóknarfæri þar. Oft vill
gleymast í tali um nýsköpun að
einnig þarf að huga að því sem fyrir
er og sjá hvort betur megi gera.
Markmiðin eru skýr og nú er
spurning hvernig til tekst. Með
stofnun skrifstofunnar var stigið
stórt skref í að sameina undir eina
yfirstjóm það sem fyrir var og gera
kerfið skilvirkara en verið hefur.
Boðleiðirnar verða styttri og
einfaldari, þannig að þegar fram líð-
ur og þessi skrifstofa hefur náð fót-
Friöjón Einarsson, framkvæmdastjóri Markaös- og atvinnumálaskrifstofu Keflavíkur
Njarövíkur-Hafna, til vinstri, og Guömundur Pétursson, formaöur markaös- og atvinnu-
málanefndar, á nýju skrifstofunni. Ljósm. Víkurfréttir/Hilmar Bragi.
1 06