Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Side 58
UMHVERFISMÁL
syn vistvænnar meðferðar úrgangs.
Mikillar vanþekkingar gætir enn hjá
flestum um kostnað við flokkun,
endurvinnslu og förgun úrgangs
sem m.a. endurspeglast í þeirri stað-
reynd að ekki hefur ennþá tekist að
koma skilagjaldi á í jafnmiklum
mæli og þörf er fyrir. Sérstaklega
þyrfti að vinna að kynningu meðal
forráðamanna fyrirtækja á því hver
raunverulegur kostnaður er við end-
urvinnslu og förgun úrgangs frá
starfsemi þeirra.
Sorpstöð Rangárvallasýslu bs.
hefur áhuga fyrir því að auka sem
mest flokkun og endurvinnslu úr-
gangs og verður stefnt að því í
framtíðinni. Nokkum tíma mun taka
að ná æskilegu stigi í þessum mála-
flokki meðan málefnið er kynnt og
komið á skilagjaldi þar sem það
reynist nauðsynlegt vegna mikils
kostnaðar við förgun.
Stjórn SR
Stjóm Sorpstöðvar Rangárvalla-
sýslu bs. skipa nú Guðmundur Ingi
Gunnlaugsson, sveitarstjóri Rangár-
vallahrepps, sem er formaður, ísólf-
ur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri
Hvolhrepps, sem er ritari, og Elvar
Eyvindsson, oddviti Austur-Land-
eyjahrepps, sem er meðstjómandi.
Fjárreiður og bókhald SR annast
Fannberg sf., Þrúðvangi 18 á Hellu.
Úttekt á stöðu sorphirðu
á Austurlandi
Gerð úttektar á stöðu sorphirðu á
Austurlandi er lokið og skýrsla um
sorphreinsun og sorpeyðingu á
Austurlandi er komin út. Uttektin
var unnin fyrir Samband sveitarfé-
laga í Austurlandskjördæmi, um-
hverfisráðuneytið og Samband ís-
lenskra sveitarfélaga. Verkfræði-
stofan Hönnun og ráðgjöf hf. á
Reyðarfirði var fengin til að vinna
úttektina undir umsjón verkefna-
stjómar. Hluta af skýrslunni vann
Guðrún S. Hilmisdóttir, verkfræð-
ingur á skrifstofu Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga.
I skýrslunni er lýst stöðu sorp-
hirðu hjá sveitarfélögunum á Aust-
urlandi og gerðar tillögur að úrbót-
um. Skýrslan er 146 blaðsíður að
stærð og er fáanleg á skrifstofu sam-
bandsins að Háaleitisbraut 11 í
Reykjavík.
Hegat hliöbúnaður
1
TTT
Verð aðeins kr. 65.000,- stgr. m/vsk.
ÖNNUR HEGAT-HLIÐ:
• Breidd 3,5 m
• Heit-galvanhúðað
• Staurar samtengdir
undir jarðvegsyfirborði
• Auðvelt í uppsetningu
• Fyrirferðalítið í flutningi
(u.þ.b. 200x100x20 sm)
• Hestahlið 1,8 m
• Gönguhlið 1,0 m
• Göngu-vængjahlið
• Prílur yfir girðingar
• Stór fyrirtækjahlið
• Ristahlið
• Járnstyrkt tréhlið 3,5 m
• Hliðslár 1,5 og 2,0 m
íslensk hönnun og gæðaframleiðsla.
Hagstætt verð og greiðsluskilmálar.
Leitið frekari upplýsinga og fáið
sendan upplýsingabækling.
Hegat, Ármúla 29, Reykjavík. Sími 588-2424. Fax 588-4642.
rrm
-leið að bœttu umhverfi
1 20