Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Blaðsíða 6
AFMÆLI
Sauöárkrókur. Ljósm. Pétur Ingi Björnsson.
Sauðárkrókur vaxandi bær
Steinunn Hjartardóttir, forseti bæjarstjórnar Sauðárkróks
Um þessar mundir er fagnað afmælisári á
Sauðárkróki.
Sauðkrækingar hafa ærna ástæðu til að
halda upp á afmæli því árin 1996 og 1997
marka mörg tímamót í sögu bæjarins.
Árið 1871 reisti fyrsti íbúinn, Ámi Ámason
klénsmiður, hús sitt á Sauðárkróki og eru því
125 ár frá fyrstu föstu búsetu þar, en 14 ámm
áður, árið 1857, fékk Sauðárkrókur verslunar-
leyfi og því eru liðin 140 ár frá því að Friðrik
sjöundi Danakonungur löggilti Sauðárkrók sem verslun-
arstað. Árið 1997 eru 90 ár frá því að Sauðárkrókur varð
sérstakt sveitarfélag og einnig eru 50 ár frá því að Sauð-
árkrókur fékk kaupstaðarréttindi.
Sauðárkrókur hefur vaxið stöðugt frá upphafi byggð-
ar, en mest frá því að bærinn fékk kaupstaðarréttindi.
Árið 1947 vom íbúar Sauðárkróks tæplega 990 en em
nú í kringum 2800. Má segja að Sauðárkrókur
sé einn fárra staða á landsbyggðinni þar sem
stöðug fólksfjölgun hefur verið untfram lands-
meðaltal.
Bæjarstjórn Sauðárkróks ákvað að skipa
sérstaka afmælisnefnd til að sjá urn hátíðahöld
í tilefni afmælanna og hófst dagskrá hátíða-
haldanna 20. júlí 1996 og er áætlað að þau
standi til 20. júlí á þessu ári.
Atvinnulíf
Atvinnulíf á Sauðárkróki er fjölbreytt og bærinn er
þjónustukjami fyrir sveitarfélögin í Skagafirði. Verslun
hefur verið mikil frá upphafi, en störfum við verslun hef-
ur þó fækkað mikið á síðustu ámm og eru það aðallega
breyttir verslunarhættir sem valda því. Stærsta verslunin
er Skagfirðingabúð, vöruhús Kaupfélags Skagfirðinga,
68