Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Blaðsíða 12
HÖFN
100 ÁRA
Höfn 100 ára
A þessu ári er þess minnst að eitt
hundrað ár eru liðin frá upphafi
byggðar á Höfn í Homafirði. Arið
1897 var verslun Ottós Tuliníusar
flutt frá Papósi í Lóni til Hafnar og
markar það upphafið að byggðinni.
Afmælishaldið á Höfn hófst um sl.
áramót, m.a. með veglegri áramóta-
brennu og flugeldasýningu á
gamlárskvöld og hátíðarmessu í
Hafnarkirkju á nýársdag.
Hinn 22. mars var hátíðarfundur í
bæjarstjórn Hornafjarðarbæjar sem
m.a. samþykkti tillöguna Ungt fólk í
öndvegi - átak til aldamóta.
Aldarafmælisins verður minnst á
ýmsan hátt allt árið og eitthvað
verður í boði fyrir alla, tónleikar,
sýningar, ráðstefnur, íþróttaviðburð-
AFMÆLI
ir og skemmtanir; dagskrá í hverjum
mánuði. Þannig efndi atvinnumála-
nefnd bæjarins til spástefnu í Mána-
garði 10. maí þar sem sérfræðingar
á ýmsum sviðum fluttu í fyrirlestr-
um hugleiðingar um framtíðina.
Aðalhátíðarhöldin fara fram dag-
ana 4.-6. júlí á sama tíma og
humarhátíð hefur verið haldin á
Höfn undanfarin ár. Forsetahjónin
heimsækja staðinn, vinabæjamót
norrænna vinabæja Hornafjarðar
verður haldið og fjölbreytt dagskrá
verður frá morgni til kvölds.
Gefin er út vönduð dagskrá fyrir
tvo mánuði í senn. Þeir sem óska
eftir að fá hana senda geta hringt á
Sýslusafn Austur-Skaftafellssýslu í
síma 478-1850 (Eiríkur) eða á bæj-
arskrifstofur Hornafjarðar í síma
478-1500 (Haukur).
Gísli Sverrir Ámason, forseti bæj-
arstjómar Homafjarðar, er formaður
afmælisnefndar bæjarins.
Selfoss 50 ára
Hinn 1. janúar 1947 sl. öðluðust
gildi lög nr. 52/1946 um samein-
ingu Selfossbyggðar í eitt hreppsfé-
lag. Til hins nýja sveitarfélags, Sel-
fosshrepps, voru lagðir hlutar úr
Sandvíkurhreppi, Hraungerðis-
hreppi og Ölfushreppi. Hluti Sand-
víkurhrepps var með sömu lögum
lagður til Eyrarbakkahrepps.
Fimmtíu ára afmælis sveitarfé-
lagsins er því minnst í ár með marg-
víslegum hátíðarhöldum. Þau hófust
með því að ljós vom tendmð á Ölf-
usárbrú 23. apríl. Daginn eftir var
skrúðganga frá Sandvíkurskóla,
skátamessa og skátaskemmtun.
Árvaka Selfoss, menningarvaka,
var haldin 25.-31. maí. Félagar úr
Myndlistarfélagi Ámessýslu héldu
sýningu, kvikmynd um Selfoss var
sýnd og Skólalúðrasveit Suðurlands
hélt tónleika. Þá voru Björgvinstón-
leikar í Selfosskirkju, þar sem fram
komu Karlakór Selfoss og Skag-
firska söngsveitin. Samkór Selfoss,
Jórukórinn og Kór eldri borgara
7 4
héldu söngskemmtanir og Leikfélag
Selfoss efndi til ljóðakvölds í leik-
húsinu við Sigtún. Kvöldvaka með
ýmsum atriðum var í Hótel Selfossi
29. maí, haldinn var unglingadans-
leikur 30. maí og hjólreiðadagur
fjölskyldunnar 31. maí.
Hinn 4. júní var skógræktardagur
og 17. júní var vígt nýtt útisvæði við
Sundhöll Selfoss. Jónsmessuhátíð
var 20. og 21. júní á vegum félags á
Selfossi, sem heitir Sumar á Sel-
fossi. Harmóníkudansleikur var í
Tryggvaskála, öllum bæjarbúum var
boðið í morgunkaffi í samkomu-
tjaldinu í Tryggvagarði, auk þess
sem leiktæki fyrir böm vora um all-
an miðbæinn og tilboð í verslunum.
Sömu daga var á Selfossi haldið
landsmót lúðrasveita og íþróttahátíð
Héraðssambandsins Skarphéðins og
27. júní Aldursflokkamót íslands í
sundi.
Sérstök hátíðarvika verður 5.-13.
júlí með ýmsum atburðum alla dag-
ana, og verður fyrri helgin, 5.-6.
júlí, tileinkuð börnum og ungling-
um. Bæjarstjórnin heldur hátíðar-
fund, forseti Islands kemur í heim-
sókn 12. júlí og haldin grillveisla og
13. júlí verður hátíðarmessa í Sel-
fosskirkju. I byrjun vikunnar verður
opnuð afmælissýning Listasafns Ár-
nesinga og dagana 14.-18. júlí verð-
ur verkefni í unglingavinnunni sem
nefnist Unglingurinn og umhverfið.
I lok vikunnar, 18.-20. júlí, verð-
ur dagskrá með yfirskriftinni Sumar
á Selfossi. Mótast hún af kameval-