Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Blaðsíða 31

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Blaðsíða 31
NÁTTÚRUHAM FARI R Hugleiðingar um björgunarmál Snorri Hermannsson, Hjálparsveit skáta á Isajirði Er við leiðum hugann að stórslys- um eða náttúruhamförum verðum við að hafa eitt í huga til að ná þeim árangri, sem krafist er af okkur sem almannavamanefnd eða björgunar- sveitarmönnum, en það er gott en einfalt skipulag. Þannig náum við fyrst því sem stefnt er að: góðum ár- angri. Þegar ég lít til baka vegna snjó- flóðanna sem féllu á Isafirði 5. apríl 1994, 16. janúar 1995 í Súðavík og 26. október 1995 á Flateyri. þrjú stór snjóflóð, þá kemur fram í hug- ann hvort hægt sé að draga lærdóm af þessum náttúruhamförum og hvemig. Geta sveitarstjómir nýtt sér þá reynslu sem fékkst í þessum snjóflóðum? Svarið er alveg tví- mælalaust JA. Með eflingu vama og almannavarnanefnda í hverju um- dæmi. Það er hverri sveitarstjórn verðugt verkefni að efla sína al- mannavamanefnd. Það skipulag al- mannavarna sem komið var á upp úr 1970 hefur verið að þróast fram til dagsins í dag og er í sífelldri end- urskoðun. Skipulagið var nýunnið fyrir Vestmannaeyjakaupstað þegar eldgosið varð í janúar 1973 og var það frumraun á skipulagið, sem stóðst í öllum meginatriðum mjög vel. Skipulag almannavama var notað í umræddum snjóflóðum og reynd- ist vel þegar á heildina er litið en alltaf koma fram atriði sem betur mætti huga að og fara eftir í skipu- lagi almannavama. Því tel ég nauð- synlegt að hver sveitarstjórn efli sína almannavamanefnd með þekk- ingu á því hvernig bregðast skuli við þeim náttúrahamfömm eða öðr- um stórslysum sem hugsanlega gætu átt sér stað í umdæmi nefndar- innar. Þá verða almannavamanefnd- ir að kanna hvaða varúðarráðstafan- ir þurfi að framkvæma til að forðast þá vá, sem vofir yfir í umdæmi þeirra. Einmitt þessa þætti þurfa sveitarstjómir í samráði við sýslu- mannsembættin að rækta vel til þess að hægt sé að vinna eins skipulega og kostur er eftir grunnskipulagi Al- mannavarna ríkisins því almanna- vamanefndir era undir stjóm sveit- arstjórna á hverjum stað og sýslu- menn era framkvæmdastjórar. Ekki er nauðsynlegt að farið sé út í að skipuleggja smáatriði, því engin slys eru nákvæmlega eins, en þá tekur skynsemin við stjóm og oft er nauðsynlegt að nema staðar, hugsa og framkvæma síðan. Vandinn er ekki að vita hvað á að gera heldur hvað þú átt ekki að gera. Skipulag björgunarstarfa Hvemig vil ég sjá skipulag björg- unarstarfa framkvæmt? Eg vil að sá samningur, sem var undirritaður 18. nóvember 1995 af Landsbjörg og Slysavarnafélagi Islands við Al- mannavarnir rfkisins um hlutverk landsstjórnar og svæðisstjórna björgunarsveita í skipulagi al- mannavarna, verði kynntur al- mannavarnanefndum og komi til framkvæmda um land allt. Það verður að vera að frumkvæði Al- mannavarna ríkisins með aðstoð sveitarstjórna að kynna almanna- vamanefndum þennan samning hið fyrsta, en nefndirnar eru einmitt undir stjóm sveitarfélaga með bæj- ar- eða sveitarstjóra sem formann. Eins og getið er um í 8. kafla sam- komulagsins komi fulltrúi úr svæð- isstjórn björgunarsveita á viðkom- andi stað strax til starfa á hættutím- um með almannavarnanefnd, enn- fremur svæðisstjórn, sem væri tengiliður með sína þekkingu á bún- aði og getu björgunarsveita. Jafn- framt að svæðisstjórn aðstoði við að koma upp vettvangsstjómstöð undir stjóm vettvangsstjóra sem almanna- vamanefnd hefur skipað sem sinn yfirmann á staðnum og aðstoði hann við stjóm á vettvangi. Það yrði mik- ill styrkur fyrir vettvangsstjórann. Tel ég að þetta þurfi að gerast til að ná sem fullkomnustum árangri þeg- ar vá ber að dyram. Vonandi beram við gæfu til að koma þessu skipu- lagi í framkvæmd. Það sem þarf að breytast við út- köll almannavamanefnda, þar sem hjálpar er þörf strax, er að björgun- arsveitir fái heimild almannavama- nefnda á hverjum stað um sig, þegar starfa á undir þeirra stjórn, til að hefja strax undirbúning fram- kvæmda á björgunaraðgerðum. Björgunarsveitum verði að vera heimilt að koma sér á staðinn með þann útbúnað sem þörf er talin á, eftir þeim leiðum er þær meti að færar séu, en bíði ekki eftir að ákveðið stjómkerfi fari í gang. Það
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.