Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Qupperneq 9

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Qupperneq 9
AFMÆLI sína skólagöngu en 6.-10. bekkur stunda nám í gagn- fræðaskólanum. Báðir þessir skólar eru nú þegar of litlir fyrir þá starfsemi sem í þeim á að fara fram og á næstu mánuðum verða bæjaryfirvöld að ákveða hvemig mál skólanna verða leyst. Tveir leikskólar em á Sauðárkróki í mjög nýlegum og vistlegum húsum. Tekist hefur að koma til móts við ósk- ir foreldra um vistun og em ekki biðlistar við leikskól- ana. í tónlistarskólanum stendur til boða kennsla á flest hljóðfæri og oftast hefur verið starfrækt söngdeild við skólann. íþ róttastarf Öflugt íþrótta- og æskulýðsstarf er á vegum Sauðár- krókskaupsstaðar og ungmennafélagsins Tindastóls auk annarra félagasamtaka. Gert hefur verið átak í að koma íþróttamannvirkjum í sem best horf og á árinu verður glæsilegt íþróttahús fullbyggt. Fyrir liggur að endurbæta þarf sundlaug og aðstöðu fyrir frjálsar íþróttir. Bærinn hefur átt hlut að uppbyggingu golfvallar svo og aðstöðu fyrir hestamenn. Einnig er unnið að skíðasvæði í vestur- hlíðum Tindastóls. Samstarf Sauðárkróksbær er aðili að héraðsnefnd Skagfirðinga og þeir málaflokkar sem undir þetta samstarf falla eru bamavemdarmál, Bmnavamir Skagafjarðar, ferðamál, safnastjóm og fleira. Árið 1992 var hafist handa við að breyta húsnæði sem keypt var af Kaupfélagi Skagfirðinga og var áður mat- vömverslun og því breytt í stjómsýsluhús. Að breyting- unum stóðu Sauðárkróksbær, héraðsnefnd Skagfirðinga og Byggðastofnun. Nú þykir hús þetta hið fallegasta, en í því hafa aðsetur, auk héraðsnefndar og Byggðastofn- unar, Félagsmálastofnun Sauðárkróks, Héraðsdómur Norðurlands vestra, Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra, Vinnueftirlit ríkisins, Verkakvennafélagið Aldan, Rauði krossinn og fleiri. Nú em í gangi viðræður allra sveitarfélaga í Skaga- firði, nema Akrahrepps, um sameiningu í eitt sveitarfé- lag og er stefnt að fjölda kynningarfunda á næstu vikum og síðar í haust atkvæðagreiðslu um sameiningu. Gangi það eftir verða almennar sveitarstjómarkosningar í nýju sameinuðu sveitarfélagi vorið 1998. Á afmælisárí Nú á afmælisárinu hefur verið lögð rækt við að draga fram sögu staðarins og sérkenni. Bæjarstjórn tók ákvörðum um að koma á fót bæjarsafni, en tvö stór söfn gamalla muna em í eigu bæjarins, safn Andrésar Val- bergs og Kristjáns Runólfssonar. Keypt var stórt hús, sem nú er verið að breyta í safnahús, og stendur til að opna húsið nú í sumar í tilefni afmælisins. Afmælisnefndin, sem hafði forgöngu um mikla hátíð í Úr Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Ljósm. Oddný Finn bogadóttir. upphafi afmælisársins, hefur verið ötul við að skipu- leggja fjölbreytta dagskrá, þar sem allir geta fundið eitt- hvað við sitt hæft. I tilefni afmælanna var ákveðið að taka saman Sauðár- króksannál, frá þeim tíma er Sauðárkrókur varð kaup- staður og til dagsins í dag. Áætlað er að annállinn komi út í haust. Endurvakinn var Ræðuklúbbur Sauðárkróks, en hann var við lýði 1894—1902. Nýlega fannst fundargerðabók þessa klúbbs og var hún gefin út í tilefni afmælisins. Ræðuklúbburinn hefur svo staðið fyrir fundum um margvísleg málefni, s.s. um húsfriðun, um Danina á Sauðárkróki, Guðrúnu frá Lundi, nýtingu jarðvarma og um Sauðárkrók og samvinnuhreyfinguna, svo nokkuð sé talið. Fram til 20. júlí næstkomandi verður síðan dagskrá á vegum Ræðuklúbbsins og afmælisnefndar, sem endar með lokahátíð helgina 19. til 20 júlí. Fjölmargir brottfluttir Sauðkrækingar hafa gert sér ferð hingað til þess að fagna með bæjarbúum og vinum sínum í tilefni af þessum merkisafmælum bæjarins. 7 1
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.