Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Side 14

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Side 14
FERÐAMÁL Gönguferö á Reykjaneshyrnu í Árneshreppi er viö flestra hæfi og fjallasýnin fögur. í sumar stendur til aö gera miklar úrbætur á gönguleiöum á Ströndum. Ljósm. Valgeir Benediktsson. Nýsköpun á Ströndum: Ferðaþjónusta og þjóðmenning Jón Jónsson, þjóðjrœðingur Jrá Steinadal Síðastliðin tvö ár hefur Héraðsnefnd Strandasýslu haft forgöngu um átaksverkefnið Ferðaþjónusta og þjóð- menning og fengið til þess vænan styrk frá Nýsköpunar- sjóði námsmanna. Markmið átaksins er hefðbundið - að auka vægi ferðaþjónustu í atvinnulífi sýslubúa og stuðla að bættri þjónustu við ferðamenn. Að ýmsu leyti er verkefnið þó frábrugðið öðru fram- taki í ferðaþjónustu. Það beinist fyrst og fremst að því að setja sögu svæðisins, þjóðsagnaarfinn og lífshætti íbúanna í aldanna rás í öndvegi við uppbyggingu afþrey- ingar og upplýsingaþjónustu í héraðinu. Jafnframt er leitast við að markaðssetja Strandir og byggja upp ímynd sýslunnar á sömu forsendum. I. Stefnumótun og hugmyndafræöi Vorið 1995 var verkefninu ýtt úr vör að frumkvæði Jóns Jónssonar, þjóðfræðings og meistaraprófsnema í sagnfræði. Um sumarið vann hann að hugmyndaskýrslu sem fjallaði um möguleika Strandamanna í ferðaþjón- ustu en Stefán Gíslason, framkvæmdastjóri héraðsnefnd- ar og sveitarstjóri Hólmavíkurhrepps, var umsjónarmað- ur með verkefninu. Afrakstur erfiðisins lá síðan fyrir í febrúar 1996 og var Ferðaþjónustu og þjóðmenningu - sextíu síðna skýrslu - þá dreift til sveitarstjómarmanna og ferðaþjóna á Ströndum. í henni er að finna ítarlega út- tekt á sögulegri sérstöðu svæðisins, dregnir eru fram at- hyglisverðir staðir og söguslóðir ásamt sérstæðu mann- lífi og náttúru, og gerð tillaga að hugmyndafræði og heildarskipulagi ferðaþjónustu í héraðinu. Þá eru settar fram fjölmargar hugmyndir um hvemig nýta megi sér- stöðuna og kappkostað að þær leiðir séu í takt við að- stæður - mannfæð og fremur takmörkuð fjárráð.

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.