Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Page 27

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Page 27
FÉLAGSMÁL Reynsla undanfarinna tveggja ára Þegar litið er til gagnrýni sveitarfélaganna sem áður er vitnað í hefur sýnt sig nú, að tveimur árum liðnum, að vamaðarorð þeirra áttu rétt á sér a.m.k. að nokkru leyti: 1. Sveitarfélögin hafa alfarið borið kostnað af umsjón með og afgreiðslu bótanna og er sá kostnaður t.d. í Reykjavík um 6,5 milljónir króna árið 1996. Akvörðun fjármálaráðuneytis um að taka staðgreiðslu af bótunum hefur aukið þessi umsvif og þar með kostnað. 2. Ríkisvaldið (fjármálaráðuneytið) lagði drög að því strax við gerð fjárlaga fyrir árið 1996 að hætta þátttöku í húsaleigubótakerfmu við árslok 1996. 3. A fjárlögum fyrir árið 1995 er gert ráð fyrir að ríkið leggi 400 milljónir króna til húsaleigubóta. Fyrir árið 1996 er upphæðin lækkuð niður í 200 milljónir og í við- ræðum sem nú standa yfir virðist sú tala vera orðin „heilög“ tala í fjármálaráðuneytinu. 4. í kjölfar samþykktar laga um húsaleigubætur var skattlagning leigutekna lækkuð þannig að leiga undir 25 þúsund varð skattfrjáls. Var þetta gert til þess að hvetja leigusala til að gefa upp rétta leigufjárhæð og gera leigu- samninga við leigjendur. Eins og margir efasemdamenn gagnvart ríkisvaldinu spáðu hefur þessari skipan verið breytt á nýjan leik og nú tekinn upp 10% fjármagns- skattur á allar fjármagnstekjur, m.a. húsaleigutekjur. Reyndar hafa fulltrúar fjármálaráðuneytis fullyrt að út- koman verði sú sama fyrir leigusala þegar upp er staðið. En óstöðugleiki sem þessi hefur í för með sér að tiltrú einstaklinga og sveitarfélaga gagnvart ríkisvaldinu minnkar og í Reykjavík er hægt að merkja nú þegar aukna andstöðu leigusala að veita leigjendum leigu- samning og auk þess merki um hækkun húsaleigu. Björtu hlióarnar Það sem aftur á móti hefur gengið vel (andstætt spá margra sveitarfélaga) er samstarf ríkis og sveitarfélaga við framkvæmd laganna og endurgreiðslu ríkis til sveit- arfélaga. Verkefnið hefur gengið snurðulaust og ekki verið flókið í þeim skilningi. Enn fremur er það mat þeirra sent komið hafa að þessu máli hjá sveitarfélögunum að verkefnið eigi vel heima hjá sveitarfélögunum og falli að öðrum stuðn- ingsúrræðum sem þau veita íbúum sínum. Afgreiðslan hefur gengið mjög vel og úrræðið hefur nýst tekjulitlum íbúum sveitarfélaganna. Rétt er að benda á að það er mun stærri hópur en áður fékk fjár- hagsaðstoð vegna hárrar húsaleigu í samræmi við lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Markmið húsaleigubótalaganna var líka að ná til breiðari hóps en fellur undir reglur um fjárhagsaðstoð og það hefur geng- ið eftir. Til þess að nefna dæmi voru þeir sem fengu húsaleigubætur og einnig fjárhagsaðstoð einungis 17,4% þess hóps sem fékk fjárhagsaðstoð í Reykjavík árið 1995. Mikilvægt hefur verið að hægt hefur verið að greiða bætumar í takt við húsaleiguna sem ekki hefði verið gert ef bætumar hefðu farið um skattakerfið (eins og vaxta- bætur). Endurskoóun laga nr. 100/1994 um húsa- leigubætur Félagsmálaráðherra skipaði 17. maí 1996 starfshóp til þess að gera tillögur um framtíð húsaleigubóta. f starfs- hópnum eiga sæti Lára Björnsdóttir, félagsmálastjóri Reykjavíkur, Karl Bjömsson, bæjarstjóri á Selfossi, f.h. Sambands íslenskra sveitarfélaga, Arnar Jónsson, f.h. fjármálaráðuneytis, og þau Aslaug Friðriksdóttir og Ingi Valur Jóhannsson, f.h. félagsmálaráðuneytis. Starfshópurinn átti að skila niðurstöðum fyrir árslok 1996. í septembermánuði 1996 var fyrirséð að starfshóp- urinn myndi ekki ljúka störfum á tilsettum tíma en jafn- framt var ljóst að einhverja ákvörðun varð að taka um húsaleigubótakerfið á þeim tíma svo málið færi ekki í uppnám með tilheyrandi óþægindum fyrir viðkomandi sveitarfélög og húsaleigubótaþega. Fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga í nefndinni rituðu þá stjóm sambandsins bréf þar sem kynnt var bók- un þeirra á fundi starfshópsins þann 12. september 1996 þess efnis að framlengja skyldi gildandi reglur um húsa- leigubótakerfið óbreyttar um eitt ár svo starfshópnum gæfist tími til að ljúka störfum sínum á viðunandi hátt. I framhaldi þessa og eftir viðræður formanns og fram- kvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga við fé- lagsmálaráðherra og fjármálaráðherra var eftirfarandi samþykkt gerð á fundi stjórnar sambandsins þann 30. október 1996: „Fyrir liggur að húsaleigubótakerfið verður óbreytt á næsta ári og endurskoðunamefnd laga um húsaleigubæt- ur hefur verið falið að móta tillögur að nýju kerfi fyrir árslok 1997. Stjómin leggur þunga áherslu á að endurskoðunar- nefndin hraði störfum og telur að til greina komi að sveitarfélögin taki að fullu að sér greiðslu húsaleigubóta að því gefnu að tillaga um nýtt fyrirkomulag verði ásætt- anleg frá sjónarhóli sveitarfélaganna og að fullt sam- komulag náist um fjárhagshlið málsins milli ríkis og sveitarfélaga.“ I minnisblaði félagsmálaráðherra til formanns starfs- hópsins, dags. 1. nóvember 1996, sem lagt var fram á fundi starfshópsins sama dag, kemur eftirfarandi fram: „Samkomulag félagsmálaráðherra og fjármálaráðherra annars vegar og formanns og framkvæmdastjóra Sam- bands íslenskra sveitarfélaga hins vegar felur það í sér að þessir aðilar stefna sameiginlega að því að sveitarfélögin yfirtaki alfarið greiðslu húsaleigubótanna um áramótin 1997/1998. Að sjálfsögðu þarf nefndin að taka mið af þessu í störfum sínum. Þar sem ætlunin er að sveitarfélögin taki alfarið að sér þetta verkefni er eðlilegt að sjónarmið fulltrúa sveitarfé- laganna í nefndinni hafi mikið vægi. 89

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.