Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Side 40
FRÁ LAN DSHLUTASAMTÖKUNUM
30. aðalfundur SSA
29. og 30. ágúst 1996
Björn Hafþór Guðmundsson fi'amkvœmdastjóri
Þrítugasti aðalfundur Sambands sveitarfélaga í Aust-
urlandskjördæmi (SSA) var haldinn í Egilsbúð í Nes-
kaupstað 29. og 30. ágúst 1996.
Samhliða venjulegum aðalfundarstörfum var haldið
upp á 30 ára afmæli SSA, en sambandið var einmitt
stofnað í Neskaupstað og bar fundurinn nokkur merki
þess, svo sem hvað varðaði efnisval helstu mála er þar
voru til umfjöllunar.
Aðalfundinn sátu 56 fulltrúar frá 25 af 27 aðildar-
sveitarfélögunum og voru aðstæður til fundarhalda allar
eins og best verður á kosið og nægt gistirými, einkurn á
heimavist Verkmenntaskóla Austurlands.
Fyrri daginn var farin kynnisferð í nýja íþróttahúsið í
Neskaupstað og jafnframt skoðað verknámshús Verk-
menntaskóla Austurlands, en öll sveitarfélögin í fjórð-
ungnum komu honum á laggimar á sínum tíma.
Afmælishóf
Að kvöldi fyrri fundardags var haldið sérstakt afmæl-
ishóf og voru heiðursgestir í því Guðmundur Magnús-
son, fyrrverandi fræðslustjóri Austurlands, og kona
hans, Anna A. Frímannsdóttir. Veisluna sátu ennfremur
margir fyrrverandi formenn sambandsins og tveir af
þremur fyrrverandi framkvæmdastjórum þess, Ingi-
mundur Magnússon og Sigurður Hjaltason.
í hófinu flutti Smári Geirsson, forseti bæjarstjómar
Neskaupstaðar, samantekt úr sögu SSA og er það birt
aftan við þessa frásögn. Kór aldraðra í Neskaupstað
söng undir stjóm Agústs Armanns Þorlákssonar og allir
fyrrverandi formenn og framkvæmdastjórar voru kallað-
ir upp ásamt mökum og þeim færður virðingarvottur
fyrir störf að sveitarstjómarmálum í fjórðungnum. Vil-
hjálmur Hjálmarsson flutti ávarp fyrir hönd fyrrverandi
formanna og Ingimundur Magnússon sagði frá eftir-
minnilegum mönnum og málefnum. Veislustjóri var
Guðmundur Bjarnason bæjarstjóri og flutti hann nt.a.
tvær vísur eftir framkvæmdastjóra SSA. Kveikjan að
hinni fyrri var sú að Guðmundur og Smári Geirsson
tóku upp þann sið sl. vor að fara upp fyrir allar aldir að
skokka í norðfirskri náttúm. Tók Guðmundur fljótlega
eftir því að kríununt á staðnum virtist sérlega illa við
Smára og tóku þær gjarnan langt aðflug áður en þær
komu bmnandi í stefnu beint á koll hans. Varð Smára
helst til bjargar að beygja sig í keng og einu sinni of
mikið með þeim afleiðingum að hann valt um koll og
brákaði rifbein. Taldi Guðmundur að oft hefði verið gerð
vísa af minna tilefni:
Kríumar kommana hata,
í kollinn á Smára þær rata
og beygja í keng
þennan blessaða dreng;
skyldu þær kjósa krata?
Þetta fannst Smára ekki góð vísa og heimtaði aðra um
Guðmund, lífvörð sinn. Kvaðst hann sem forseti bæjar-
stjórnar ekki hafa nema einn vesælan lífvörð, er gæti
ekki einu sinni bægt frá sér kríustóði, meðan Bandaríkja-
forseti hefði a.m.k. 20 þegar hann færi út að skokka á fá-
fömum stígum í heimalandi sínu eða hvar svo sem hann
kysi annars staðar í ferðum sínum um heiminn.
Eigi er Clinton varða vant
þá vill hann stígi þræða.
En Smára aðeins gætir grannt
Gvendur fuglahræða.
Þessa vísu mun Smári hafa talið sýnu betri en hina
fyrri.
Aöalfundarstörfin
Aðalfundurinn hófst kl. 10 og voru fundarstjórar
Smári Geirsson og Steinunn L. Aðalsteinsdóttir, bæjar-
fulltrúi þar. Fundarritarar voru Þórður Kr. Jóhannsson,
Guðmundur Steingrímsson og Hermann V. Guðmunds-
son.
Formaður SSA. Broddi B. Bjamason, bæjarfulltrúi í
Egilsstaðabæ, setti fundinn og fór síðan nokkrum orðum
um tildrögin að stofnun samtakanna. Að því búnu var
lögð fram starfsskýrsla stjómar og ársreikningar SSA.
Ávörp gesta
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga, flutti SSA ámaðaróskir í tilefni af
afmælinu. Einnig ræddi hann flutning gmnnskólans og
fjármál sveitarfélaganna.
Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, formaður Sambands
sunnlenskra sveitarfélaga, mælti fyrir hönd landshluta-
samtaka sveitarfélaga og færði SSA borðfánastöng að
gjöf í tilefni 30 ára afmælisins.
1 02