Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Síða 50

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Síða 50
FRÆÐSLUMÁL sem vinna að þessum málum um áframhaldandi þróun. Hér var ekki einungis könnuð þjónusta grunnskóla við fatlaða heldur kennsla fatlaðra, sérkennsla og kennsla við hæfi. Því verður gerð grein fyrir þessum þremur hugtök- um með skírskotun til laga. Spurt er hvort sérkennsla merki það sama og kennsla fatlaðra, hvemig er hugtak- ið fatlaður túlkað lagalega og hvem- ig er hugtakið sérkennsla skilgreint í lögum? I lögum um málefni fatlaðra nr. 59/1992, 2. gr., telst líkamleg eða andleg fötlun eiga við þroskahöml- un, geðfötlun, hreyfihömlun, sjón- og heyrnarskerðingu. Ennfremur getur fötlun verið afleiðing af langvarandi veikindum, svo og slys- um. Markmið laganna er að tryggja fötluðum jafnrétti og sambærileg lífskjör á við aðra þjóðfélagsþegna og skapa þeim skilyrði til að lifa eðlilegu lífi (1. gr.). I lögum um grunnskóla nr. 66/1995, 37. gr., segir m.a. að böm og unglingar, sem eiga erfitt með nám sökum sértækra námsörðug- leika, tilfinningalegra eða félags- legra örðugleika og/eða fötlunar, sbr. 2. gr. laga um málefni fatlaðra, eigi rétt á sérstökum stuðningi í námi. Af þessu má sjá að fleiri böm og unglingar eiga rétt á sérkennslu en þeir sem skilgreindir eru með fötl- un. Dæmi eru um nemendur sem eru fatlaðir en þurfa ekki á sér- kennslu að halda. Á hinn bóginn eru margir nemendur sem hafa sérþarfir í námi og skóla án þess að teljast fatlaðir. Aðrir hlutar heildarkönnun- arinnar fjalla um aðstæður fyrir og aðstoð við fólk með fötlun, en þessi hluti beinist að þróun og stöðu sér- kennslumála. í lögum um grunnskóla nr. 66/1995, 2. gr., segir m.a. að gmnn- skólinn skuli leitast við að haga störfum sínum í sem fyllstu sam- ræmi við eðli og þarfir nemenda og stuðla að alhliða þroska, heilbrigði og menntun hvers og eins. Þessi markmið eru mjög þýðingarmikil fyrir nemendur með sérþarfir þar sem þau tryggja lagalegan rétt allra nemenda - einnig nemenda með sérstakar námsþarfir - til að fá kennslu við hæfi bæði í sérkennslu- stundum, almennum kennslustund- um og öðm því sem fram fer á veg- um skólans. Þessi könnun athugaði því bæði þætti sem eiga við sér- kennslu og kennslu við hæfi. Könnunaraöferö, fram- kvæmd og takmarkanir Eins og komið hefur fram var þetta viðtalskönnun. Hún náði til upplýsinga fræðslustjóra sem varð- aði alla grunnskóla eins landshluta ásamt upplýsingum viðmælenda úr 12 grunnskólum. í úrtakinu voru bæði fámennir skólar og skólar í bæjarfélögum. Til þess að tryggja möguleika viðmælenda til að afla sér áreiðan- legra upplýsinga um þær staðreynd- ir sem spurt var um, og einnig til að ræða hugmyndir og tillögur við samstarfsaðila, var spurningum komið í hendur viðmælenda á und- an viðtalinu. Eftir viðtalið voru svörin skráð og send viðmælendum. Þeim var gefinn kostur á að leiðrétta túlkun spyrjandans, draga úr eða bæta við upplýsingum. Var þetta gert til að tryggja sem best að skoð- anir viðmælenda - en ekki túlkun spyrjanda á skoðunum þeirra - kæmu fram í könnuninni. Einnig var þetta gert til að ná fram eins ít- arlegum upplýsingum og kostur var. Mikilvægt er að hafa í huga að könnun sem þessi greinir einungis frá hluta af þróun og stöðu sér- kennslumála. Ég vil hér benda sér- staklega á nokkrar takmarkanir. Þessi könnun gerði að hluta til grein fyrir staðreyndum sem varða þróun og stöðu sérkennslumála í einum fjórðungi og í einstökum grunnskólum. Á þetta við um tölu- legar upplýsingar frá fræðsluskrif- stofu og frá grunnskólunum um tak- markanir og möguleika til kennslu við hæfi og sérkennslu. Að öðru leyti gerði þessi könnun einungis grein fyrir túlkunum, viðhorfum og mati fræðslustjóra, skólastjóra og nokkurra samstarfsaðila þeirra til þróunar, stöðu og framtíðarmögu- leika í sérkennslu. Hvort skoðanir sem hér er greint frá samsvara þeim raunveruleika sem nemendur með sérkennsluþarfir búa við og er túlk- að eins af þeim og aðstandendum þeirra gæti verið efni í aðra könnun. Stutt samantekt á heild- arniöurstööum í skýrslunni var greint frá niður- stöðum í þremur aðalköflum. Byrj- að var á að skýra frá upplýsingum um svokallaða ytri áhrifaþætti kennslu, eins og stærð skóla, fjölda nemenda, menntun og starfsálag kennara og fjölda nemenda sem fá sérkennslu. í næsta kafla var fjallað um túlk- un á lögum og reglugerðum sem varða ábyrgð á að úrskurða hvaða nemendur eigi rétt á sérkennslu. Einnig var greint frá einum af meg- ináhrifaþáttum innra skólastarfs, sem er skipulag kennslu við hæfi og sérkennslu. Sagt var frá ráðgjöf og samvinnu um sérkennslumál og hugmyndum um að bæta þessa þætti. Með þessum tveimur köflum var ætlunin að svara þremur fyrstu aðalspurningum könnunarinnar. í þriðja kaflanum var greint nánar frá hugmyndum viðmælenda um áframhaldandi þróun og samvinnu um þennan málaflokk. Niðurstöður voru bomar saman við sambærileg- ar athuganir, aðallega íslenskar. Af þeim upplýsingum, sem fram komu, eru eftirfarandi atriði sérstak- lega athyglisverð þegar huga á að áframhaldandi þróun: • Oöryggi, sem fram kom þegar spurt var um ábyrgð á að úrskurða um þörf á sérkennslu, bendir til að þörf sé fyrir nánari umfjöllun um þessi mál. Einnig mætti athuga hvort æskilegt væri að hafa skýrari ákvæði í lagatextum og reglugerð- um. • Dræm svör við spurningum um skipulagsþætti sérkennslumála í innra starfi grunnskólanna benda til þess að þörf sé á menntun, sam- 1 1 2

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.