Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Síða 62

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Síða 62
STJÓRNSÝSLA Stjórnsýsla ísafjarðarbæjar Lýsing á hugmyndum um skipulag Þröstur Sigurðsson viðskiptafræðingur, ráðgjafi hjá Rekstri og Ráðgjöfehf í kjölfar sameiningar sex sveitar- félaga á Vestfjörðum var sett upp skipurit hins sameinaða sveitarfé- lags ásamt því að unnar voru starfs- lýsingar fyrir alla starfsmenn, gerð erindisbréf fyrir nefndir og sam- þykkt um stjóm og fundarsköp ísa- fjarðarbæjar. Hér fer á eftir lýsing á stjómkerf- inu eins og hún birtist íbúum Isa- fjarðar lítið breytt. Segja má að stjómsýsla sveitarfé- laga greinist í tvö kerfi, sent eru embættismannakerfi og nefndakerfi. Nefndakerfið hefur með stefnu- mörkun og ákvarðanatöku um stærri mál að gera, en embættismannakerf- ið sér um að framkvæma vilja nefndakerfisins og afgreiðir mál í anda þeirrar stefnu sem nefndakerf- ið hefur markað. Samhæfingu milli þessara kerfa annast bæjarstjórn. Bæjarstjórn tekur við tillögum frá hinum ýmsu nefndum bæjarins og ýmist samþykkir þær eða synjar. Hafi bæjarstjórn samþykkt tillögu undirnefndar þarf bæjarstjóri að taka samþykktina og koma henni í framkvæmd. Það gerir hann með því að bera ofangreindum forstöðu- mönnum einstakra sviða boð þess efnis að samþykktina eigi að fram- kvæma. Viðkomandi forstöðumaður kemur samþykktinni þá í fram- kværnd, ýmist framkvæmir hann hana sjálfur eða felur starfsmönnum sínum framkvæmdina og hefur eftirlit með henni sjálfur. Mikilvægt er fyrir stjórnsýslu sveitarfélaga að skil milli embættis- mannakerfisins og nefndakerfisins séu skýr. Til að skýra betur þessi skil hafa verið dregin upp annars vegar skipurit fyrir embættismanna- kerfið og hins vegar skipulag nefndakerfisins. Stjórnsýslu ísafjarðarbæjar er skipt upp í sex svið, sem eru stjóm- sýslusvið, fjármála- og áætlanasvið, félagsþjónustusvið, fræðslu- og menningarmálasvið, umhverfissvið og hafnannálasvið. Þessi skipting á bæði við urn embættismannakerfið og nefndakerfið. Starfsmönnum er raðað niður á hvert svið í embættis- mannakerfinu og nefndum bæjarins á samsvarandi hátt undir viðeigandi svið í nefndakerfinu. Sem dæmi má segja að undir fræðslu- og menning- armálanefnd heyra skólastjórar í embættismannakerfinu og fræðslu- nefnd í nefndakerfinu. Fræðslu- nefnd fer m.a. með stefnumörkun í málefnum grunnskólanna, en skóla- stjóramir annast framkvæmd þeirrar stefnumörkunar þegar hún hefur verið staðfest af bæjarstjóra og þeim falin frantkvæmdin af skóla- og menningarfulltrúa. I erindisbréfum nefnda kemur fram hver stjórnskipuleg staða nefndarinnar er, hver starfar með henni, hvernig hún er skipuð og hvaða hlutverki hún gegnir. Þar em einnig ákvæði um starfshætti nefnd- arinnar, hvernig málum er fylgt eftir, um réttindi og skyldur nefnd- armanna, starfsmannamál og loks er getið þeirra laga og reglugerða sem nefndafólki ber að hafa að leiðar- ljósi í stöifum sínum. Segja má að erindisbréf nefnda séu að nokkru leyti sambærileg við starfslýsingar starfsmanna. I erindisbréfunum kemur fram að stefnumörkun sé meginhlutverk nefndarinnar, en í minna mæli af- greiðsla einstakra mála. Nefndin setur forstöðumönnum þeirra stofn- ana sem undir hana heyra starfsregl- ur um afgreiðslu samsvarandi mála. Þetta felur í sér að embættismönn- um er falin afgreiðsla þeirra mála sem segja má að séu hefðbundin eða smærri mál. Nýstárleg mál, stefnumarkandi mál og mál sem varða verulegar fjárupphæðir eru þá til afgreiðslu í nefndum og má í mörgum tilfellum líta svo á að af- greiðsla nefndar á slíku máli feli í sér stefnumörkun og um leið leið- beiningar til starfsmanna um það hvemig afgreiða á sams konar mál í framtíðinni. Þannig má flýta fyrir afgreiðslu þeirra mála sem upp koma og „viðskiptavinur" bæjarins fær betri þjónustu. Auk erindisbréfanna starfa bæjar- stjórn og nefndir samkvæmt sér- stökum samþykktum um stjóm og fundarsköp Isafjarðarbæjar. Mikilvægt er að boðleiðir séu réttar. Þannig er hlutverk nefnda- fulltrúa að gera tillögur til bæjar- stjórnar um stefnumörkun og af- greiðslu þeirra mála sem staifsmenn 1 24

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.