Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Qupperneq 64
KYNNING SVEITARSTJÓRNARMANNA
Þórunn Gestsdóttir
aðstoðarmaður bæjar-
stjóra í Isafjarðarbæ
Þórunn Gests-
dóttir var ráðin
til starfa sem
upplýsinga- og
ferðamálafulltrúi
ísafjarðarbæjar
frá 1. mars 1996
og frá og með 1.
júní sama ár hjá Isafjarðarbæ hinum
nýja. Frá desember 1996 var hún
ráðin aðstoðarmaður bæjarstjóra til
loka yfirstandandi kjörtímabils.
Þórunn er fædd í Reykjavík 29.
ágúst 1941 og eru foreldrar hennar
Hjördís Guðmundsdóttir og Gestur
Benediktsson veitingaþjónn.
Hún lauk próft frá Kvennaskólan-
um í Reykjavík 1958, frá Leiðsögu-
mannaskólanum 1970 og prófi frá
Markaðsskóla fslands 1989.
Þórunn starfaði hjá Landsbanka
íslands 1958-1959, var flugfreyja
hjá Loftleiðuin 1960-1962, leið-
sögumaður 1975-1976, blaðamaður
á Vísi og DV 1980-1986, ritstjóri
Vikunnar 1986-1988 og vann að
dagskrárgerð hjá Ríkisútvarpinu. Sl.
átta ár hefur hún starfað við útgáfu-
og ritstjórastarf við ferðatímaritið
Farvís-Afangar.
Þórunn var varaborgarfulltrúi í
Reykjavík fyrir Sjálfstæðisflokkinn
1978-1990, átti um skeið sæti í
ferðamálanefnd og í stjórn sjúkra-
stofnana, sat í umhverfismálaráði
1986-1994 og var formaður jafn-
réttisnefndar sömu ár.
Þórunn var formaður Landssam-
bands sjálfstæðiskvenna 1985-1989
og átti sömu ár sæti í miðstjórn
Sjálfstæðisflokksins. Hún hefur
starfað í Lionshreyfingunni sem
svæðisstjóri, kynningarstjóri og rit-
stjóri Lion um fimm ára skeið. Hún
er formaður í fræðsluráði ferðaþjón-
ustunnar og á sæti í útvarpsráði.
Þórunn á fimm uppkomin böm.
Þórir Sveinsson
fjármálastjóri
Isafjarðarbæjar
l og frá l.j júní
1996 fjármálastjóri ísafjarðarbæjar.
Þórir er fæddur í Reykjavík 21.
febrúar 1953 og eru foreldrar hans
Thea Þórðardóttir húsfreyja og
Sveinn Eiríksson málari.
Þórir lauk verslunarskólaprófi frá
Verslunarskóla Islands 1972, stúd-
entsprófi frá hagfræðisviði frá sama
skóla 1974 og viðskiptafræðiprófi á
fjármálasviði frá Háskóla Islands
1978.
Hann starfaði hjá Skipaútgerð rík-
isins samhliða námi á árinu 1977,
sem viðskiptafræðingur hjá fyrir-
tækinu 1978-1983, framkvæmda-
stjóri markaðs- og flutningasviðs
þess 1983-1991 og forstöðumaður
markaðs- og áætlanasviðs 1991 þar
til hann tók við starfi fjármálastjóra
Isafjarðarkaupstaðar.
Þórir hefur gegnt margvíslegum
félagsstörfum jafnt með námi sem
eftir nám. Hann var ritstjóri Versl-
unarskólablaðsins 1972 og á há-
skólaárunum formaður NESU á Is-
landi, samtaka norrænna viðskipta-
fræðinema, í stjórn Bridgefélags
Kópavogs sem gjaldkeri og formað-
ur á árunum 1978-1982, í stjórn
Húseigendafélagsins frá 1990 sem
gjaldkeri, í stjóm og sem formaður
Sjóstangaveiðifélags Isafjarðar frá
1993. Landsformaður Landssam-
bands sjóstangaveiðifélaga 1995 og
í stjóm þeirra samtaka síðan.
Hann hefur setið í varastjóm og
tekið þátt í starfi Launanefndar
EGLA
-röð ogregla
Margir litir margar stærðir.
Þessi vinsælu bréfabindi fást í öllum
helstu bókaverslunum landsins.
Múlalundur
Vinnustofa SÍBS
Símar: 628450 688420 688459
Fax 28819
1 26