Morgunblaðið - 08.12.2011, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2011
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Jura kaffivélar
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Fjárlög ársins 2012 voru samþykkt á
Alþingi í gær með 31 atkvæði við-
staddra þingmanna stjórnarflokk-
anna gegn þremur atkvæðum þing-
manna Hreyfingarinnar. 23 þing-
menn Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks sátu hjá og sex voru
fjarverandi.
Fjárlögin voru afgreidd með 20,7
milljarða kr. halla. Tekjur ríkisins
verða 523 milljarðar en heildargjöld
544 milljarðar samkvæmt áætlun
fjárlaga 2012.
Steingrímur J. Sigfússon fjármála-
ráðherra sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi að hann væri
ánægður með niðurstöðu fjárlaga
2012 og benti á að fjárlagahallinn
væri nú sá minnsti í 4-5 ár.
„Þetta er liðlega 20 milljarða halli á
heildarjöfnuði, sem er um 1,16% af
landsframleiðslu. Þá erum við komin
langan veg frá 14-15% árið 2008 og
10% árið 2009,“ sagði Steingrímur.
Hann benti á að frumjöfnuður væri
jákvæður um 36 milljarða en hann
hefði verið neikvæður um 100 millj-
arða árið 2009. Það væri bati upp á
nærri 140 milljarða eða svipað og
kostnaður við heilbrigðis- og mennta-
mál. Steingrímur sagði það hafa verið
ánægjulegt að fá einnig í gær mæl-
ingu Hagstofunnar um 4,7% hagvöxt
á þriðja ársfjórðungi og 3,7% hagvöxt
að meðaltali fyrstu níu mánuði ársins.
gudni@mbl.is
Fjárlögin 2012
samþykkt í gær
Fjárlagahallinn 20,7 milljarðar kr.
Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik fór á kostum í gærkvöldi og
vann þýska landsliðið 26:20 í riðlakeppni heimsmeistaramótsins í Brasilíu.
Stelpurnar byrjuðu illa og voru sjö mörkum undir, 11:4, eftir 18 mínútna
leik, en gyrtu sig í brók, voru marki yfir í hléi, 13:12, og sigruðu örugglega.
Hér skorar Stella Sigurðardóttir eitt þriggja marka sinna. » Íþróttir
Ljósmynd/Egill Örn Þórarinsson
Frækinn sigur Íslands
Heimsmeistarakeppni kvenna í handbolta
Hæstiréttur hefur fellt úr gildi úr-
skurð Héraðsdóms Reykjavíkur um
að vísa skuli frá máli þrotabús Mile-
stone gegn Karli Wernerssyni. Hér-
aðsdómur taldi að frestur til þess
að höfða málið hefði verið liðinn en
Hæstiréttur sagði það álitaefni sem
taka ætti afstöðu til við efnis-
meðferð málsins.
Þrotabúið fór fram á það fyrir
dómi að rift yrði greiðslum Mile-
stone til Karls að fjárhæð rúmlega
504 milljónum króna, en samkvæmt
rannsókn Ernst & Young fyrir
skiptastjóra fékk Karl fjölmörg lán
frá félaginu á síðustu tveimur ár-
unum fyrir gjaldþrot þess.
Frávísun felld úr
gildi í máli Karls
Samkvæmt taln-
ingum Ferða-
málastofu fóru
22.969 erlendir
ferðamenn frá
landinu um
Leifsstöð í ný-
liðnum nóv-
embermánuði.
Eru þetta 1.700
fleiri en í nóvember á síðasta ári en
nóvembermánuður í ár er sá þriðji
fjölmennasti frá því talningar hóf-
ust. Veruleg aukning er frá því í
fyrra frá Norður-Ameríku, eða
41,7%, og frá Bretlandi 20,4%.
23 þúsund ferða-
menn í nóvember
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt 25 ára gamlan karlmann í
átta mánaða fangelsi fyrir að stela
ítrekað úr verslunum og fyrir-
tækjum í maí og júní á þessu ári.
Maðurinn hefur áður hlotið skil-
orðsbundna dóma fyrir þjófnað, lík-
amsárás og fleiri brot og því þótti
dómara ekki tilefni til að skilorðs-
binda refsinguna nú.
Dæmdur í fangelsi
fyrir þjófnað
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar sam-
þykkti í gær tillögu um samning við
skilanefnd þýska DEPFA-bankans
um endurfjármögnun lána. Guð-
mundur Rúnar Árnason bæjarstjóri
lagði tillöguna fram. Afgreiðsla
samningsins fór fram fyrir luktum
dyrum og var hann samþykktur með
sex atkvæða meirihluta Samfylking-
ar og VG en fimm bæjarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins voru á móti.
Valdimar Svavarsson, oddviti
Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn,
lagði fram bókun sjálfstæðismanna
þar sem þeir gagnrýndu harðlega
verklagið við endurfjármögnun lána
sveitarfélagsins, þann mikla trúnað
sem ríkti um kjör og önnur ákvæði
samningsins og að afgreiðsla hans
skyldi fara fram fyrir luktum dyrum.
Í bókuninni segir m.a.:
„Með fyrirhuguðum samningi við
skilanefnd Depfa-banka er fjárhags-
vanda sveitarfélagsins velt áfram til
óvissrar framtíðar og tækifæri til að
ná betri niðurstöðu fer forgörðum.
Greiðslubyrði sveitarfélagsins verð-
ur gríðarleg á næstu árum og aðrir
skilmálar í samningnum binda hend-
ur bæjarins til vaxtar og þróunar á
komandi árum. Augljóst er að meiri-
hluti Samfylkingar og Vinstri
grænna er að fresta því að taka á
fjárhagsvandanum fram yfir næstu
kosningar og reynir þannig að
bjarga pólitísku lífi sínu.“
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir,
bæjarfulltrúi VG, lagði fram bókun
meirihlutans þar sem segir m.a. að
endurfjármögnun á skuldum muni
treysta stöðu bæjarfélagsins.
„Samkomulagið er bæjarfélaginu
hagstætt í alla staði og um leið er það
traustsyfirlýsing frá lánardrottnum
um stjórnun og rekstur bæjarfélags-
ins. Samkomulagið er ekki síst ótví-
ræður vitnisburður um þann árang-
ur sem náðst hefur í fjárhagslegri
stjórnun bæjarfélagsins eftir þau
áföll sem dundu yfir við efnahags-
hrunið fyrir liðlega 3 árum,“
sagði m.a. í bókuninni. Þá
kom einnig þar fram að
viðsemjendur bæjarins
hefðu sett fram „ófrávíkj-
anlega kröfu um trúnað
um ákvæði samkomulags-
ins. Hins vegar hefði nú-
verandi meirihluti gjarnan
viljað upplýsa um öll
ákvæði þess.“
Lánamál fyrir luktum dyrum
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti í gær samning um endurfjármögnun
lána við skilanefnd þýska DEPFA-bankans Sjálfstæðismenn voru á móti
Morgunblaðið/RAX
Hafnarfjörður Búið er að semja um endurfjármögnun lána við DEPFA.
Meirihluti stjórnskipunar- og eft-
irlitsnefndar Alþingis segir að kanna
þurfi betur lagaleg álitaefni sem
tengist fyrirhugaðri hljóðritun á rík-
isstjórnarfundum. Nefndin veltir því
m.a. fyrir sér hvort breyta þurfi lög-
um um ráðherraábyrgð vegna hljóð-
ritunarinnar.
Kveðið er á um það í nýjum lög-
um, sem samþykkt voru á Alþingi í
haust, að ríkisstjórnarfundir verði
hljóðritaðir. Átti þetta að hefjast um
áramótin en nefndarmeirihlutinn
leggur til að gildistöku lagaákvæð-
isins verði frestað til 1. nóvember á
næsta ári.
Vill nefndin að sá tími sem þá gef-
ist verði nýttur til að kanna betur
þau lagalegu álitaefni sem uppi séu í
tengslum við hljóðritun ríkisstjórn-
arfunda og ekki síst hvaða reglur
skuli gilda um aðgang að slíkri hljóð-
ritun. Jafnframt verði tíminn nýttur
til að rannsaka betur hvaða áhrif
hljóðritun kunni að hafa á starfsskil-
yrði ríkisstjórnar almennt og eðli
umræðna í ríkisstjórn.
Hljóðrituð ríkisstjórn álitaefni
Steingrímur J.
Sigfússon fjár-
málaráðherra
segir það mik-
ilvægt að ná
okkur sem fyrst
út úr halla-
rekstri rík-
issjóðs og í
jöfnuð. Hann
segir að sá árangur sem hefur
náðst verði skoðaður af mats-
fyrirtækjum, erlendum fjár-
málamörkuðum og fjárfestum.
Halli hverfi
FJÁRMÁLARÁÐHERRA
Steingrímur J.
Sigfússon
Fjárhagsáætlun Hafnarfjarð-
arkaupstaðar fyrir árið 2012 var
lögð fram á fundi bæjarstjórnar
í gær.
Samkvæmt henni verður
rekstrarniðurstaða A- og B-
hluta jákvæð um 157 milljónir.
Heildareignir eru áætlaðar vera
um 44,8 milljarðar í árslok
2012. Skuldir og skuldbindingar
eru áætlaðar 37 milljarðar og
eigið fé 7,5 milljarðar. Lóðir að
verðmæti 11 milljarðar eru ekki
bókfærðar en verðmæti þeirra
sagt vega á móti langtíma-
lánum, samkvæmt frétt Hafn-
arfjarðarbæjar.
Gert er ráð fyrir fjárfest-
ingum upp á 190 milljónir á
næsta ári. Ekki er gert ráð
fyrir neinni lóðasölu á næsta
ári. Þá er ætlunin að greiða
niður lán um 1,4 milljarða á
næsta ári.
1,4 milljarðar
í afborganir
FJÁRHAGSÁÆTLUN
HAFNARFJARÐAR 2012
Guðmundur R. Árnason