Morgunblaðið - 17.12.2011, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.12.2011, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 1 7. D E S E M B E R 2 0 1 1  Stofnað 1913  296. tölublað  99. árgangur  HEFUR MIKINN ÁHUGA Á SUSHIGERÐ DALVÍKINGURINN SÓTTUR HEIM EIN STÖÐ Á HVERJA 2.800 ÍBÚA SUNNUDAGSMOGGINN LÍKAMSRÆKT 32RÓSA GUÐBJARTS 10 Reuters Á veiðum Spænskar útgerðir fara illa.  Ákvörðun þings Evrópusam- bandsins í vikunni um að fram- lengja ekki samning við Marokkó um veiðar í lögsögu hernámssvæð- isins V-Sahara er mikill skellur fyr- ir spænskar útgerðir. Þær hafa ver- ið með fjölda togara á svæðinu en nú hafa Marokkómenn rekið þá á brott. Nokkur íslensk sjávarútvegsfyr- irtæki, þ.á m. Sæblóm og Samherji, hafa í gegnum dótturfyrirtæki veitt árlega tugþúsundir tonna af makríl og sardínu við V-Sahara og Mar- okkó, óbeinlínis í skjóli afar um- deildra umsvifa ESB. Sæblóm, sem varð reyndar gjaldþrota fyrr á árinu var með um 90.000 tonna kvóta og rak umfangsmikla fisk- vinnslu í stærstu borg V-Sahara, Laayoune. Ekki náðist í ráðamenn umræddra íslenskra fyrirtækja í gær. »38 Miðin við Vestur- Sahara lokastTillaga Bjarna » Bjarni Benediktsson lagði fram þingsályktunartillögu um að Alþingi afturkallaði ákæru sína á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. » Samkomulag er um að til- lagan verði tekin á dagskrá Al- þingis fyrir 20. janúar 2012. Sigrún Rósa Björnsdóttir sigrunrosa@mbl.is Þingsályktunartillaga Bjarna Bene- diktssonar, formanns Sjálfstæðis- flokksins, um niðurfellingu máls- höfðunar Alþingis á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráð- herra, verður tekin fyrir ekki síðar en 20. janúar nk., sem hluti af sam- komulagi við forseta Alþings um frestun þingfunda í dag. Bjarni segist miðað við aðstæður sáttur við að komist hafi verið að samkomulagi um að tillagan verði tekin fyrir strax í fyrstu þingviku næsta árs. „Allar hugmyndir um að halda málinu frá þinginu og frá um- ræðu voru frá upphafi fullkomlega óraunhæfar,“ segir Bjarni. Það sé grundvallaratriði að tillagan fáist rædd, og segist hann enn telja að hún njóti stuðnings meirihluta á þinginu. „Það er mjög áríðandi að saksóknari Alþingis fái úr því skorið hvort hann nýtur stuðnings meiri- hluta þingsins til þess að halda mál- sókninni áfram.“ Björn Valur Gíslason, formaður þingflokks Vinstri grænna, segir að ekki hafi verið tilkynnt að von væri á máli af slíkri stærðargráðu frá Sjálf- stæðisflokknum. Það hafi komið seint og óvænt inn í þingið eftir að komist hafi verið að samkomulagi um nánast öll önnur mál. „Það skýrir að stórum hluta þessi hörðu viðbrögð og ófrávíkjanlega kröfu okkar um að málið fari ekki á dagskrá á þessu ári og við því var orðið.“ MGeta fellt niður »4 Tillagan rædd á nýju ári  Samþykkt var að taka fyrir þingsályktunartillögu formanns Sjálfstæðisflokks  Segir mikilvægt fyrir saksóknara að vita hvort meirihluti sé fyrir málsókninni Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Þrítug íslensk kona, Sunnefa Burgess, sem fór til hjálparstarfa í Dar es Salaam í Tansaníu fyrr á árinu lenti í óskemmtilegri lífsreynslu þegar tveir vopnaðir leigubílstjórar tóku sig saman og tóku Sunnefu og vinkonur hennar úr hjálparstarfinu í gíslingu í þrjár klukkustundir. Þær sluppu ómeidd- ar, en peningum, símum og myndavélum fátækari. Sunnefu og vinkonum hennar úr hjálparstarfinu var rænt er þær voru á leið heim úr ferðalagi. „Við vorum að prútta við tvo leigubílstjóra og sömdum við annan þeirra. Við fórum inn í bílinn, hinn bíl- stjórinn kom líka og sagðist þurfa að túlka fyrir hinn. Okkur fór að finnast þetta skrýtið og sögð- umst vilja fara út úr bílnum. Þeir óku þá inn í húsa- sund, slökktu ljósin á bílnum og sögðust tilheyra sómalísku mafíunni.“ Fékk engin verkefni Raunar fór flest í ferð Sunnefu á nokkuð annan veg en hún bjóst við því þegar út var komið voru þar engin verkefni. Upphaflega stóð til að Sunnefa starfaði við hjálparstörf í sex vikur, meðal annars við fræðslu um HIV fyrir unglinga og á munaðar- leysingjaheimili. Þegar henni varð ljóst hvernig staðið var að hjálparstarfinu tók hún málin í eigin hendur ásamt öðrum sjálfboðaliðum og hóf að skipuleggja hjálparstarf fyrir sjálfboðaliða sem væntanlegir voru á vegum sömu samtakanna innan skamms. „Mig langaði til að segja frá þessu til að koma í veg fyrir að aðrir lentu í því sama,“ segir Sunnefa. MGæti hugsað mér að fara »14 Rænt og haldið í Tansaníu  Íslensk kona sem fór til hjálparstarfa í sumar lenti í klóm vopnaðra ræningja  Sögðust tilheyra sómalísku mafíunni og óku á milli hraðbanka í þrjá klukkutíma Nokkrir Fjallabræður tóku sig saman í gærkvöldi til aðstoðar tónlistar- manninum Erni Elíasi Guðmundsyni, Mugison, en í gær komu sex þúsund eintök af plötu hans, Haglél, til landsins. Sátu þeir saman, sungu og föndr- uðu umslög til þess að hægt yrði að koma plötunum sem fyrst í verslanir. Annars er það að frétta af Mugison að hann hlaut flestar tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna þetta árið, alls sex, en þær voru kynntar í gær. Mugison er tilnefndur í flokkunum plata ársins, lagahöfundur ársins, textahöfundur ársins, lag ársins, söngvari ársins og flytjandi ársins. »63 Fjallabræður föndra fyrir Mugison Morgunblaðið/Árni Sæberg  Eldfjallavöktun Íslands, eða State Volcano Observatory, er nýr þáttur í starfsemi Veðurstofu Íslands. Alþjóðaflugmálastofnunin IACO hefur lagt um 500 milljónir króna til uppbyggingar ratsjárkerfis til vöktunar á eldgosum. Fyrir var ein föst ratsjá en annarri verður bætt við. Einnig fær Veðurstofan tvær færanlegar ratsjár í þessu skyni. Veðurstofan tekur mikinn þátt í alþjóðasamstarfi stofnana á sviði veðurfræði og veðurrannsókna. Veðurgögn héðan úr Norður- Atlantshafi þykja mikilvæg. »26 Eldfjallavöktun Íslands vaktar gosin dagar til jóla 7 Hurðaskellir kemur í kvöld www.jolamjolk.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.