Morgunblaðið - 17.12.2011, Blaðsíða 35
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Dómur Hæstaréttar frá 1. desember
sl. í máli Véla og verkfæra hf. gegn
Samkeppniseftirlitinu hefur vakið at-
hygli. Þótt málið sé ekki stórt hefur
það undið upp á sig.
Vélar og verkfæri hafa í áratugi
selt svokallað höfuðlyklakerfi sem er
ein tegund aðgangskerfa þar sem
sami lykill getur gengið að fleiri en
einni læsingu, að sögn Björns V
Sveinssonar, innkaupa- og markaðs-
stjóra hjá Vélum og verkfærum. Fyr-
ir nokkrum árum hafi fyrirtækið tek-
ið að veita ýmsum þjónustuaðilum
sínum heimild til að selja og þjónusta
þessi kerfi og það hafi leitt til auk-
innar samkeppni.
Upphaf málsins má rekja til þess
að Samkeppniseftirlitið gerði athuga-
semdir við samninga fyrirtækisins við
þjónustuaðilana, úrskurðaði að Vélar
og verkfæri hefði misnotað meinta
einokunarstöðu sína og gerði þeim að
greiða 15 milljón króna sekt.
Björn V. Sveinsson, innkaupa- og
markaðsstjóri hjá Vélum og verkfær-
um ehf., var ekki sáttur við þann úr-
skurð: „Við teljum fjarri lagi að samn-
ingar okkar við þjónustuaðila hafi
raskað samkeppni,“ segir Björn.
„Þetta er ekki nema 40 milljóna króna
markaður og þessi sekt því mjög há.
Samkeppniseftirlitið rannsakaði mál-
ið nánast ekkert, aðferðafræði þeirra
var meingölluð og skilningur á málum
sem reynt var að hafa til samanburð-
ar bersýnilega afar takmarkaður. Við
áfrýjuðum og áfrýjunarnefndin féllst
á að markaðsskilgreiningin væri röng
hjá Samkeppniseftirlitinu en þar með
var grundvallarforsendan fyrir öllum
ályktunum þess brostin.
Samt lækkaði nefndin aðeins sekt
fyrirtækisins í 10 milljónir króna en
lét hana ekki falla niður með öllu.
Fyrirtækið skaut málinu til dómstóla
og staðfesti Héraðsdómur Reykjavík-
ur úrskurð áfrýjunarnefndarinnar.
Var málinu þá skotið til Hæstaréttar
sem felldi úrskurð áfrýjunarnefndar-
innar úr gildi.“
Björn vill meina að í dómnum komi
fram að Hæstiréttur telji áfrýjunar-
nefndina ekki hafa rökstutt nýja
markaðsskilgreiningu með fullnægj-
andi hætti né gætt þeirrar skyldu
sinnar að rannsaka málið með ásætt-
anlegum hætti.
„Dómurinn hefur vakið talsverða
athygli lögfræðinga því með honum
er vikið frá þeirri framkvæmd að ef
íþyngjandi úrskurður æðra stjórn-
valds sé ómerktur falli jafnframt nið-
ur íþyngjandi úrskurður lægra
stjórnvaldsins,“ segir Björn. „Hafa
margir lögmenn undrast þessa úr-
lausn sem ekki er sérstaklega rök-
studd í dómnum.“
Björn segir viðbrögð Samkeppnis-
eftirlitsins við dómnum furðuleg:
„Eftirlitið sendi frá sér fréttatilkynn-
ingu samdægurs þar sem fullyrt er að
með dómnum standi fyrri úrskurður
þess og þar sé þriðjungi hærri sekt
staðfest. Þetta er alrangt, enda fjallar
Hæstiréttur alls ekki um þann úr-
skurð. Fremur má draga þá ályktun
að dómurinn sé ekki aðeins áfellis-
dómur yfir áfrýjunarnefndinni heldur
einnig yfir Samkeppniseftirlitinu
sjálfu og vinnubrögðum þess, enda
grundvallaðist úrskurður áfrýjunar-
nefndarinnar á vinnu eftirlitsins.
Okkur finnst það ansi bíræfið af op-
inberri stofnun að fara fram með slík-
um hætti þegar hún hefur hlotið jafn
alvarlegar ákúrur frá Hæstarétti.“
Léleg stjórnsýsla
Aðspurður hvort málið sé þá úr
sögunni segir Björn svo ekki vera.
„Þetta er fyrst og fremst dæmi um lé-
lega stjórnsýslu. Niðurstaðan er að
málið þarf nú væntanlega að fara aft-
ur fyrir áfrýjunarnefnd og jafnvel
dómstóla, allt á kostnað skattgreið-
enda ef að líkum lætur. Góðu frétt-
irnar eru hins vegar þær að með þess-
um dómi sýnir Hæstiréttur að
Samkeppniseftirlitið þarf að vanda
vinnubrögð sín betur,“ segir Björn.
Furðuleg viðbrögð SKE
Fulltrúar fyrirtækisins Véla og verkfæra óánægðir með
Samkeppniseftirlitið og áfrýjunarnefndina
Morgunblaðið/Golli
Málaferli Björn hjá Vélum og verkfærum er ósáttur við stjórnsýsluna.
FRÉTTIR 35Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2011
Marel hefur tekist vel upp við að
sækja inn á nýmarkaði og þannig
aukið áhættudreifingu fyrirtækisins,
að því er fram kemur í greiningu IFS.
Á það er bent að í gegnum tíðina
hefur tekjustreymi Marel fylgt fram-
leiðsluvísitölum. Þegar vísitölurnar
lækkuðu hvað mest í kjölfar hruns á
fjármálamörkuðum á haustmánuðum
2008 varð talsverður samdráttur í
tekjum Marel.
Á síðustu misserum hafa tekjur
Marel hins vegar í auknum mæli
byggst á sölu til fleiri landa – ekki síst
til nýmarkaðsríkja á borð við Rúss-
land, Úkraínu, Suður-Kóreu og Kína.
Þær breytingar ættu að koma félag-
inu til góðs.
Samfara miklum hagvexti í BRIK
löndunum – Brasilía, Rússland, Ind-
land og Kína – þá gera spár ráð fyrir
því að spurn eftir svína- og kjúklinga-
kjöti aukist umtalsvert. Marel er leið-
andi fyrirtæki í þróun og framleiðslu
á tækjabúnaði við meðferð og vinnslu
á matvælum.
Fram kemur í greiningu IFS að
rekstur Marel hafi gengið vel það sem
af er árinu og pantanabók fyrirtæk-
isins hefur stækkað jafnt og þétt
þrátt fyrir óvissu í efnahagsmálum í
heiminum. Í uppgjöri félagsins fyrir
þriðja ársfjórðung kom fram að and-
virði pantana nemur ríflega 200 millj-
ónum evra á árinu.
Að mati IFS er hins vegar ekki úti-
lokað að skuldakreppan á evrusvæð-
inu muni valda Marel skakkaföllum.
„Þar sem viðskiptavinir Marels eru
framleiðslufyrirtæki víðsvegar um
heim gæti efnahagslægð á evrusvæð-
inu og viðkvæm staða lánamarkaða
haft áhrif á pantanir frá svæðinu.“
hordur@mbl.is
Marel sækir
á nýmarkaði
Meiri áhættudreifing í tekjustreymi
Stjórn Fjármálaeftirlitsins hefur
samþykkt upplýsingastefnu fyrir
stofnunina. Í henni er bæði fjallað
um miðlun upplýsinga til aðila sem
Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit
með og til fjölmiðla og almennings.
Fram kemur að ein af þremur
meginstoðum í stefnu Fjármálaeft-
irlitsins sé fagleg umræða og
gagnsæi. Lögð sé áhersla á fagleg
samskipti við þá aðila sem Fjár-
málaeftirlitið hafi eftirlit með og
miðlun upplýsinga sem geti stuðl-
að að markaðsaðhaldi. Fjármála-
eftirlitið leitist jafnframt við að
auka almennan skilning á sam-
félagslegu hlutverki sínu og þekk-
ingu á þeirri starfsemi sem þar
fari fram.
Í upplýsingastefnunni segir að
gagnvart fjölmiðlum og almenn-
ingi sé þetta einkum gert með því,
að gera hlutverk Fjármálaeftirlits-
ins sýnilegt neytendum og eftirlits-
skyldum aðilum og öðrum áhuga-
sömum og að skýra frá aðgerðum
Fjármálaeftirlitsins til að vernda
notendur fjármálaþjónustu.
Stjórn FME vill stuðla
að auknu gagnsæi