Morgunblaðið - 17.12.2011, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 17.12.2011, Blaðsíða 60
60 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2011 Breski blaðamaðurinn OwenMatthews rekur hér söguþriggja kynslóða í Rúss-landi á nýliðinni öld, en fléttar inn í frásögnina eigin reynslu og tilfinningum með grípandi hætti. Niðurstaðan er hrífandi bók sem grípur mann föstum tökum frá upp- hafi. Og þýðingin virðist hafa tekist vel, andblærinn er sannfærandi. Sögusviðið er auðvitað hrikalegt: Keisaratíminn í upphafi og svo bylt- ingin 1917, sem margir vilja fremur kalla valdarán bolsévikka, grimmd- aræði Stalíns, kalda stríðið. Og loks hrunið 1991, átökin hryllilegu í Tsjetsjeníu. Matthews segir að al- menningur hafi fylgst meira eða minna skilningsvana með því hvern- ig þetta kjarnorkuvædda hrófatild- ur, Sovétríkin, sem virtust vera svo ósigrandi vígi, varð að engu. Margir drógu sig inn í skel en héldu áfram að strita sem fyrr, í von um að fá að hjara. Sem sumir gerðu ekki. Fá lönd kynntust jafn miklum hremmingum og Rússland á 20. öld og örlög einstaklinganna draga dám af þeirri sögu. Gömul sendibréf og skjöl KGB um forfeðurna duga Matthews til að endurskapa löngu liðna rómantík, ástir, dauða og von- brigði. En alltaf hvílir yfir þessu öllu harmur, sársauki, jafnvel þegar sól- in skín og vonir vakna. Matthews er í essinu sínu þegar hann dregur upp myndir af Moskvu að vetrarlagi. „Í Moskvu skellur veturinn á eins og sleggjuhögg sem kremur birtu og liti og mer lífsmarkið úr borginni. Hann leggst yfir himininn eins og myglaðir vængir, myndar hjúp um borgina og einangrar hana frá um- heiminum.“ (bls. 149). Höfundurinn, sem á föður frá Wa- les og elst upp í Bretlandi, reisir rússnesk-fæddri móður sinni minn- isvarða með þessari merkilegu bók og ekki síður afanum sem hann aldr- ei hitti, Boris Bibikov, einu af fórn- arlömbum Stalíns. Maður með blátt blóð í æðum en samt sem áður ein- beittur liðsmaður alræðisherranna sem vildu reisa paradís á jörðu og notuðu þjóðina í púkk. Harmur Breski rithöfundurinn Owen Matthews. Líf Rússa er í besta falli rúlletta Stalínsbörn Ástir, stríð og barátta þriggja kynslóða bbbb Eftir Owen Matthews. Urður gefur út. 300 bls. Þýðandi: Elín Guðmundsdóttir. KRISTJÁN JÓNSSON BÆKUR um endrum og sinnum. Höfundur gætir þess svo að halda lesandanum á tánum með því að gefa eitt og annað til kynna varðandi framhald framvindunnar gegnum mergjaðar draumfarir söguhetjunnar. Það segir sitt um gæði bókarinnar að synir undirritaðs – annar þeirra forfallinn fótbolta- kappi sem þegar hefur leikið á einu móti í Eyjum og hinn tiltölulega mildur í knatttrúnni – hlustuðu báðir með sama áhuganum á upp- lestur sögunnar. Vitaskuld mun bókin gagnast boltapjökkum frábærlega, og er þeim hálfgerð skyldulesning, en sagan er margslungnari en svo að þeir einir geti haft gaman af. Hér er einfaldlega hörkufín barnabók sem á erindi til allra krakka, og það sem meira er, fullorðnum mun ekki leiðast að lesa hana fyrir ungviðið. Í bókarlok lofar höfundur framhaldi á næsta ári og er það vel, hann er hér í góðum gír og meira af svo góðu er vel þegið. Áhverju sumri fyllist Heimaey í hálfaviku af knáum fótboltapeyjum í 6.flokki og það er einmitt slík Eyja-ferð sem er umgjörð bókar Gunnars Helgasonar, Víti í Vestmannaeyjum. Eins og þátttaka söguhetjunnar og liðs hans sé ekki nógu taugatrekkjandi ein og sér, þá vofir yfir hættan á að Katla taki að gjósa þá og þegar. Úr verður spennandi og skemmtileg saga sem sannast sagna kemur á óvart. Gunnar Helgason er löngu landsfrægur skemmtikraftur sem víða hefur komið við. Víti í Vestmannaeyjum er held- ur ekki frumraun hans á ritvellinum heldur sú fimmta í röðinni sem hann sendir frá sér. Það verður að segjast að hér skrifar hann af nokkurri vigt. Stíllinn er strákslegur og fer efninu vel, og það sem meira er, sagan er þrusufín. Að rekja boltaspark eitt og sér hefði dugað fyrir eldheita knattspyrnuáhugamenn í yngri kantinum, en Gunnar fléttar inn áðurnefnda gosógn ásamt hliðarsögu af heimilisofbeldi sem er býsna vel heppnuð. Þar fléttast inn lögregluþjónn sem ekki er allur þar sem hann er séður og þegar sú saga nær hámarki er spennustigið einfaldlega himinhátt. Það er ekki hlaupið að því að flétta jafn dramatískt og alvarlegt mál inn í almennt frekar hressa frásögn, en Gunnar gerir það feikivel. Sagan heldur taktinum gegnumsneitt og kímnin er aldrei langt undan þó vissulega harðni á daln- Boltaspark Bók Gunnars Helgasonar „er ein- faldlega hörkufín barnabók“. Víti í Vestmannaeyjum bbbbn Eftir Gunnar Helgason. Mál og menning gefur út. 264 bls. innb. JÓN AGNAR ÓLASON BÆKUR Tár, gos og takkaskór  Benedikt Jóhannesson sendir frá sér sitt fyrsta smásagnasafn sem nefnist Kattarglottið Hugdetta Benedikt Jóhannesson fjallar m.a. um menn sem lenda í óþægilegri aðstöðu. Kattarglottið og fleiri sögur nefnist smá- sagnasafn eftir Benedikt Jóhannesson sem nýverið kom út. „Elsta sagan í þessu safni er 13 ára gömul, en langflestar eru frá síð- ustu árum,“ segir Benedikt en í safninu eru fjórtán smásögur. „Sögurnar eru ólíkar, en eiga það margar sam- eiginlegt að fjalla um menn sem eru lentir í einhvers konar vand- ræðum eða óþægilegri aðstöðu og eru að reyna að krafla sig út úr því hver með sínum hætti. Þannig verður einn fyrir því að henda tannstöngli á almanna- færi sem hann ætlar að taka upp aftur en finnur ekki og líður fyrir það miklar sálarkvalir. Annar lendir í því að hann ætlar að skíra barn og finnur að hann kann í raun ekki til verka þrátt fyrir að hafa lært til prests mörgum árum fyrr,“ segir Benedikt og tekur fram að hann sé ekki bundinn af raunveruleikanum í sögum sínum. „Í sumum sögunum gerast hlutir sem gerast ekki á hverjum degi í lífi venjulegs fólks. Þannig fær einn blaðamaður t.d. við- tal við sjálfan guð almáttugan,“ segir Bene- dikt og tekur fram að í þremur sögum bók- arinnar notist hann við atburði sem gerðust í alvörunni, en velji svo að sveigja út frá raunveruleikanum eða búa til nýjan raun- veruleika. Útgáfan nokkurs konar skyndiákvörðun Að sögn Benedikts var það nokkurs kon- ar skyndiákvörðun hjá honum að gefa út smásögurnar. „Ég ákvað að gefa út þessa bók núna síðsumars, en þá var ég kominn með um tíu sögur af þessum fjórtán sem í bókinni eru og ákvað þá að bæta nokkrum sögum í safnið. Það má því segja að menn fái þarna mjög gott yfirlit yfir smásagnafer- ilinn minn, því þarna birtast nánast allar sögurnar sem ég hef skrifað.“ silja@mbl.is Snýr upp á raunveruleikann Þann 4. janúar kemur út glæsilegt sérblað um menntun, skóla og námskeið sem mun fylgja Morgunblaðinu þann dag MEÐAL EFNIS: Háskólanám. Verklegt nám og iðnnám. Endurmenntun. Símenntun. Listanám. Sérhæft nám. Námsráðgjöf og góð ráð við námið. Kennsluefni. Tómstundanámskeið og almenn námskeið. Nám erlendis. Lánamöguleikar til náms. Ásamt fullt af öðru spennandi efni. –– Meira fyrir lesendur PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, miðvikudaginn 21. des. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is Sími: 569-1105 Í blaðinu verður fjallað um menntun og þá fjölbreyttu flóru sem í boði er fyrir þá sem vilja auðga líf sitt og möguleika með því að afla sér nýrrar þekkingar og stefa því á nám og námskeiða. Skólar & námskeið SÉRBLAÐ Skólar & námske ið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.