Morgunblaðið - 17.12.2011, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 17.12.2011, Blaðsíða 51
MINNINGAR 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2011 Hún Klara mín er farin, farin í ferðina löngu svo fyrirvara- laust, ég trúi því varla að hún sé ekki hér. Klara Klængsdóttir ✝ Klara Klængs-dóttir fæddist í Reykjavík 24. ágúst 1920. Hún lést á Hlaðhömr- um 30. nóvember 2011. Útför Klöru Klængsdóttur var gerð frá Lágafells- kirkju 13. desem- ber 2011. Hún sem sat alltaf í horninu sínu við gluggann í dag- stofunni á Hlað- hömrum, las morg- unblöðin eða prjónaði, svo kunni hún svo mikið af alls konar ljóðum og vísum og mikið hafði hún gaman af söng. Það var svo mikið líf í kringum Klöru, það komu allir og settust í kringum hana og röbbuðu sam- an, sungu jafnvel og hlógu og höfðu gaman, svo létt og skemmtilegt. Nú situr enginn við gluggann og fylgist með hverjir koma og hverjir fara, allt er orðið hljótt í dagstofunni. Staðurinn er ekki sá sami, það vantar svo mikið, það vantar Klöru. Ég bið góðan Guð að blessa aðstandendur Klöru með kæru þakklæti fyrir allt. Hvíl í friði, elsku Klara mín, Guð blessi þig og hafðu þökk fyrir allt og allt. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson) Þín einlæg vinkona, Margét Jakobína Ólafsdóttir. Þótt ég lesi golfrönsku og skollaþýsku og sitji hokinn yfir handritum ber mig iðulega að sama brunni: inn í sjö ára bekk til Klöru þegar Gagn og gaman og Talnadæmin töldust til heimsbókmenntanna og framtíðin var eins og ónotuð teikniblokk. Í nestistímanum sagði hún okkur ævintýri um prinsa og prinsessur, álfa og tröll sem við kyngdum niður með kæfubrauði og volgri mjólk úr flösku. Þegar skólabjallan hringdi í síðasta sinn kvaddi hún okkur á hlaðinu við Brúarland; það var sólskin á vori lífsins og hún sagði: góða ferð, skólabörnin mín öll. Bjarki Bjarnason. Elsku besti langafi minn. Nú er víst komið að kveðjustund og með sorg í hjarta kveð ég þig fallegi afi minn. Ég veit að þótt þú sért farinn frá okkur taka á móti þér svo margir sem elska þig. Þegar ég sit og hugsa um allar minningarnar sem ég á um þig og ömmu, þá er svo margt sem kemur upp í hugann. Öll árin sem við Sigurgeir Ingvarsson ✝ Sigurgeir Gunn-ar Ingvarsson fæddist á Minna- Hofi, Rangárvöllum 18. júlí 1914 og lést á Ljósheimum, Sel- fossi 28. nóvember 2011. Útför Sigurgeirs Ingvarssonar fór fram frá Selfoss- kirkju laugardaginn 10. desember 2011. mamma bjuggum í Múla þar sem ég þurfti aðeins að hlaupa upp hring- stigann til að koma í heimsókn. Þar stóð- uð þið amma með opna arma og tókuð alltaf svo vel á móti mér. Einnig eyddi ég ófáum stundum með ykkur í búðinni á meðan mamma var að vinna. Og í hvert skipti sem ég kom var alltaf nóg að gera en samt var ávallt tími til að sinna litlu skotti sem hafði óbilandi áhuga á öllu því sem gera þurfti, hvort sem það var að mæla efni, búa til tölur eða fá að stimpla verðið inn í búð- arkassann. Og alltaf varst þú tilbú- inn að kenna mér og leyfa mér að hjálpa þér. Ég var svo heppin að fá að fylgj- ast með samskiptum ykkar ömmu og get ég með sanni sagt að ég horfi mikið upp til ykkar í mínu hjónabandi. Það var yndislegt að sjá hversu hamingjusöm og glöð þið voruð og sást það langar leiðir hversu ástfangin af hvort öðru þið voruð. Mín von er sú að við hjónin upplifum slíka ástarsögu eins og hjónaband ykkar var í mínum aug- um. Á hverju ári er haldin grill- veisla þar sem fjölskyldan safnast saman og eigum við þá góðar stundir en sumarið eftir að þú lok- aðir búðinni var haldin grillveisla sem er mér mjög minnisstæð þar sem við komum saman í garðinum í Múla. Við frænkurnar komumst í gamlan kassa af fötum sem eitt sinn voru til sölu hjá þér og héldum tískusýningu fyrir ykkur. Þú brost- ir út að eyrum og klappaðir hátt og mikið fyrir okkur, tókst svo þétt- ingsfast utan um okkur og kysstir á kinn og sagðir hversu ríkur þú værir að eiga svona myndarlegar afastelpur. Þú varst alltaf svo duglegur að ferðast til útlanda og í hvert skipti sem þið amma komuð heim úr sól- inni komuð þið alltaf færandi hendi. Það var alltaf svo spennandi og gaman að fá pakka frá útlöndum. Í eitt skiptið vorum við mamma svo heppnar að fá að koma með ykkur til Mallorka og er ég svo glöð að hafa fengið að upplifa það með þér. Þar varð ég rosa hrifin af því að spila billjard og þú varst duglegur að gefa mér peseta, eftir að mamma vildi ekki láta mig fá fleiri, svo ég gæti nú spilað sem mest. Það var yndislegt sumarið sem þú komst í heimsókn til Noregs og áttum við frábærar stundir saman fjölskyldan á Hole. Ég veit að mömmu þótti svo vænt um það sumar rétt eins og mér. Ég er heppnari en margir að hafa átt langömmu og langafa og þakka ég fyrir hvert ár sem þú varst hér hjá okkur. Lánsöm var ég að hafa þig viðstaddan er ég gifti mig síðasta vor og met ég það mik- ils. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. (Kahlil Gibran) Gæfusöm hef ég verið að fá að þekkja þig og mun ég ávallt eiga góðar minningar um þig. Ég kveð þig með ást og hlýju í hjarta mínu. Íris Hödd. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Ég varð svo dapur þegar mamma sagði mér að þú værir dáinn. Það var alltaf svo gaman að koma heim til ykkar ömmu, þú varst allaf svo skemmtilegur og góður við mig. Ég fékk alltaf að sofa á milli ykkar ömmu í rúminu og þar leið mér svo vel. Svo varstu alltaf að grínast í mér og stríða mér og ég fór alltaf að hlæja því mér fannst þú svo fynd- inn. Ég skal passa ömmu fyrir þig, því ég veit hún saknar þín. Birgir Steinn. Okkur systkinin langar að minnast stjúpa okkar Gunnars Sigurgeirssonar með örfáum orð- um. Gunni lést laugardaginn 3. desember sl. eftir 11 mánaða bar- áttu við illvígan sjúkdóm. Bar- áttu sem oft leit út fyrir að hann myndi vinna en seint í haust var ljóst að fullnaðarsigur yrði ekki unninn. Gunni tókst á við veikindi Gunnar Sigurgeirsson ✝ Gunnar Sig-urgeirsson, Hjallavegi 9, fædd- ist í Reykjavík 3. júní 1942. Hann lést á Landspít- alanum við Hring- braut 3. desember 2011. Útför Gunnars var gerð frá Kirkju óháða safnaðarins 12. desember 2011. sín af æðruleysi og stillingu. Kynni okkar ná aftur til ársins 1991 þegar mamma og Gunni hófu búskap fyrst á Egilsgötunni og svo allt til dagsins í dag á Hjallaveginum. Gunni vann alla sína starfsævi við múr- verk, en frístundun- um fannst honum best að verja heima við lestur góðra bóka. Á sumrin dró Svarf- aðardalurinn, sveitin hans, í tengslum við þær ferðir var farið víðar og landið skoðað. Hann var hæglátur maður, skynsamur og vel heima. Á sínum yngri árum hafði hann stundað íþróttir, að- allega handbolta, og það lýsir honum kannski best að það er ekki fyrr en eftir hans dag að við vitum að hann var framúrskar- andi íþróttamaður. Það er með trega sem kveðjum í dag en með þakklæti fyrir samfylgdina. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Arna Björk og Bjarni Magnús. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, "Senda inn minningargrein", valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Minningargreinar ✝ Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HALLDÓRU GUÐMUNDSDÓTTUR, Brautarholti. Fyrir hönd aðstandenda, Gyða Lúðvíksdóttir, Guðmundur Steinar Lúðvíksson. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir og tengda- móðir, SOFFÍA GUÐMUNDSDÓTTIR tónlistarkennari, sem lést fimmtudaginn 8. desember, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni mánudaginn 19. desember kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að láta líknarfélög njóta þess. Jón Hafsteinn Jónsson, Guðmundur Karl Jónsson, Olga Björg Jónsdóttir, Nanna Ingibjörg Jónsdóttir, Jón Ingvar Jónsson, Brigitte M. Jónsson. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, sambýlis- kona, amma og langamma, VILBORG GUÐSTEINSDÓTTIR, Sóleyjarima 9, Reykjavík, sem lést miðvikudaginn 7. desember, verður jarðsungin frá Háteigskirkju þriðjudaginn 20. desember kl. 11.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarstofnanir. Erlín Óskarsdóttir, Ástráður Guðmundsson, Ásta Óskarsdóttir, Finnur Óskarsson, Sólveig Kristjánsdóttir, Þórunn Óskarsdóttir, Stefán Guðmundsson, Ólöf og Óskar Gunnarsbörn, Óskar Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, stjúp- faðir, tengdafaðir og afi, KARL JENSEN SIGURÐSSON frá Djúpavík á Ströndum, lést föstudaginn 9. desember. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 20. desember kl. 11.00. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er vinsamlega bent á Krabbameinsfélagið. Nanna Hansdóttir, Annþór Kristján Karlsson, Þórunn Anna Karlsdóttir, Friðrik Jensen Karlsson, Arnfríður Wíum Sigurðardóttir, tengdabörn og barnabörn. ✝ Kær bróðir og frændi okkar, ERLINGUR GUNNARSSON, áður Snæfelli, Borgarvegi 19, Njarðvík, lést á dvalarheimilinu Felli, Reykjavík föstu- daginn 2. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Þakkir færum við þeim sem sýndu honum umhyggju og tryggð á lífsins vegi. Starfsfólkinu á Felli þökkum við sérstaklega fyrir umönnun Erlings og alúð alla. Bryndís Gunnarsdóttir Rondeau, Dórothea Herdís Jóhannsdóttir, Oddný Halldórsdóttir. ✝ Vinur minn, faðir, afi, bróðir okkar og mágur, HALLUR BERGSSON húsasmiður frá Reyðarfirði, til heimilis á Ránargötu, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju mánudaginn 19. desember kl. 15.00. Tcvetanka Peeva, Lína Peeva, Sunna Björg Sigfríðardóttir, Vaka Agnarsdóttir, Þorkell Bergsson, Ásta Ingólfsdóttir, Birna Bergsdóttir, Björgvin Bergsson, Hafdís Sigurðardóttir. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar dóttur okkar, ÍRISAR LINNEU TRYGGVADÓTTUR, Häradsvägen 3, Bollebygd, Svíþjóð. Sérstakar þakkir til sr. Ágústs Einarssonar sóknarprests íslensku kirkjunnar í Svíþjóð. Fyrir hönd annarra aðstandenda, Tryggvi Leifur Óttarsson, Kristina Andersson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.