Morgunblaðið - 17.12.2011, Blaðsíða 59
MENNING 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2011
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Hekla Dögg Jónsdóttir myndlistar-
maður hlaut í gær styrk að uppæð
kr. 500.000 úr Styrktarsjóði Rich-
ards Serra. Halldór Björn Runólfs-
son, formaður stjórnar sjóðsins og
forstöðumaður Listasafns Íslands,
afhenti styrkinn við athöfn í Lista-
safninu en auk hans sátu í stjórninni
listamennirnir Ásmundur Ásmunds-
son, fyrir Myndhöggvarafélagið, og
Ragnhildur Stefánsdóttir, fyrir hönd
SÍM. Styrkirnir eiga að vera við-
urkenning fyrir listamenn sem vinna
með þrívítt rými og skúlptúra.
Í ávarpi sínu lýsti Halldór Björn
listsköpun Heklu Daggar og sagði
hana hafa verið sístarfandi síðan hún
lauk námi. „Hún er ótrúlegur lista-
maður sem gerir allt sem þarf til að
verkin séu sem sterkust … Það er
alltaf sama eljan, sami dugnaður-
inn,“ sagði Halldór Björn og bætti
við að Hekla Dögg væri sérdeilis vel
að styrknum komin.
„Það er afskaplega ánægjulegt að
fá þennan styrk og kom mér mikið á
óvart. Það er líka ánægjulegt að það
sé aftur farið að veita styrki úr
Serra-sjóðnum,“ segir Hekla Dögg.
„Maður leyfir sér að kaupa dýrari
efni í verkin, gefur sér veiðileyfi á að
eyða meiru í myndlistina. Þetta hef-
ur slík áhrif.“ Hekla Dögg sýnir um
þessar mundir í Mexíkóborg og á
döfinni er þátttaka hennar í samsýn-
ingu í Alaska og einkasýning í Calg-
ary í Kanada.
Samkvæmt reglum Styrktarsjóðs
Richards Serra á að veita styrki á
tveggja ára fresti en nú hefur orðið
sex ára hlé. Aðspurður segir Halldór
Björn að bankahruninu sé að mestu
leyti um að kenna, því úthlutun
byggist á vöxtum. Í vörslu safnsins
séu fleiri sjóðir sem fóru illa.
Vegna þess hlés sem varð á út-
hlutunum úr sjóðnum, segir hann að
á næstu árum verði veitt örar. „Í
raun hefur verið veitt þriðja hvert ár
úr sjóðnum og lög hans ekki verið
virt, en til að færa þetta til betri veg-
ar er það ásetningur okkar að veita
strax aftur á næsta ári og árið þar á
eftir og reyna að jafna út þau
skakkaföll sem orðið hafa.“
Morgunblaðið/Einar Falur
Stjórn og styrkþegi Stjórnarmenn í Styrktarsjóði Richards Serra, þau Ásmundur, Ragnhildur og Halldór Björn,
skála fyrir styrkþeganum Heklu Dögg Jónsdóttur. Í baksýn er verk hennar, Fullkomið augnablik, frá árinu 2005.
Hekla Dögg Jónsdóttir hlaut styrk úr Styrktarsjóði
Richards Serra Veita á örar úr sjóðnum á næstu árum
Hekla hlaut Serra-styrk
Richard
Serra er einn
þekktasti
myndlistar-
maður sam-
tímans, víð-
kunnur fyrir
tröllvaxna
skúlptúra.
Þegar hið
mikla úti-
listaverk hans, Áfangar, var vígt
í Viðey fyrir tuttugu árum gaf
Serra verklaunin, 100.000 þýsk
mörk, og mæltist til þess að
stofnaður yrði sjóður til að
styrkja unga íslenska listamenn
sem ynnu í þrívíðum efnum á
sem fjölbreytilegastan hátt. Sjö
hafa hlotið styrkinn til þessa.
Gaf launin
fyrir Áfanga
SERRA-SJÓÐURINN
Richard Serra
Á mánudags- og þriðjudagskvöld,
19. og 20. des. kl. 20 verður dagskrá í
Gerðubergi sem kallast Korter í jól.
Þetta eru Jólajazztónleikar og ætla
þeir Valdimar söngvari, Leifur
Gunnarsson kontrabassaleikari og
Kristján Tryggvi Martinsson píanó-
leikari að fylla húsið af jólajazz-
tónum úr ýmsum áttum, eins og seg-
ir í tilkynningu.
Valdimar stofnaði hljómsveit sína,
Valdimar, árið 2009 ásmt Ásgeiri
Aðalsteinssyni gítarleikara.
Kristján Tryggvi hefur samið tón-
list og gefið út tvo hljómdiska með
píanótríói sínu K tríó. Leifur lauk
burtfararprófi í kontrabassaleik frá
Tónlistarskóla FÍH vorið 2009. Sam-
hliða náminu spilaði hann með Te-
pokanum og Tríói harmonikuleik-
arans Vadims Fyodorov.
Á kaffihúsinu verður boðið upp á
súkkulaði, kaffi og rjómapönnukök-
um að hætti hússins fyrir tónleikana.
Jóla-jazz í Gerðubergi
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Birting samkvæmt 6. grein
tilskipunar Evrópuþingsins nr.
2001/24/EC og ráðs um
endurskipulagningu og slit
lánastofnana.
(2011/C 159/10)
SKILYRÐI VEGNA ANGLO IRISH BANK
CORPORATION LIMITED OG IRISH
NATIONWIDE BUILDING SOCIETY
SAMKVÆMT 50. LIÐ STÖÐUGLEIKASÁTTMÁLA
LÁNASTOFNANA FRÁ 2010.
Þann 7.Apríl 2011 setti fjármálaráðherra Írlands („ráðherra“)
fram skilyrði („skilyrðin“) vegna bæði Anglo Irish Bank
Corporation Limited („Anglo“) og Irish Nationwide Building
Society („INBS“) samkvæmt 50. lið stöðugleikasáttmála
lánastofnana frá árinu 2010 („stöðugleikasáttmáli“):
1.Anglo skuli samkvæmt þeim:
1.1. fylgja lokaáætlun um stöðvun reksturs á ákveðnum
skrifstofum Anglo í Hinu sameinaða konungsríki Stóra-Bretlands
og Norður-Írlands og útibúum Anglo í Vín, Düsseldorf og Jersey;
1.2. fylgja lokaáætlun vegna ráðstöfunar þess hluta Anglo sem snýr
að auðstýringu;
1.3. fylgja lokaáætlun vegna öflunar eigna INBS og/eða samruna
Anglo og INBS; og
1.4. setja fram, í samvinnu við INBS og NTMA og, háð samþykki
NTMA, fylgja lokaáætlun um endurskipulagningu og
aðgerðaráætlun fyrir Anglo og INBS byggða á sameinaðri
endurskipulagningar- og aðgerðaráætlun fyrir Anglo og INBS sem
lögð var fyrir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins þann 31.
janúar 2011 (með fyrirvara um breytingar á nokkurri þeirri
áætlun samkvæmt vilja og samþykki framkvæmdastjórnar ESB); og
2. INBS skuli samkvæmt þeim:
2.1. fylgja lokaáætlun vegna öflunar Anglo á eignum INBS og/eða
samruna Anglo og INBS; og
2.2. setja fram, í samvinnu við Anglo og NTMA og, háð samþykki
NTMA, fylgja lokaáætlun um endurskipulagningu og
aðgerðaráætlun byggða á sameinaðri endurskipulagningar- og
aðgerðaráætlun fyrir Anglo og INBS sem lögð var fyrir
framkvæmdastjórn Evrópusambandsins þann 31. janúar 2011
(með fyrirvara um breytingar á nokkurri þeirri áætlun samkvæmt
vilja og samþykki framkvæmdastjórnar ESB),
(sameiginlega, lýsa „skilyrðin“);
3. því að framsetning þeirra er liður í endurskipulagningu
samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins nr. 2001/24/EC og
leiðtogaráðs hins 4. apríl 2001 (CIWUD tilskipunin) og reglum
Evrópubandalaganna frá 2011 varðandi endurskipulagningu og slit
lánastofnana (2011 reglurnar) og, því samkvæmt, gilda samkvæmt
CIWUD tilskipuninni, 2011 reglunum og stöðugleikasáttmálanum,
þar með talið en ekki takmarkað við lið 61 sáttmálans; og
4. því að skilyrði þessi taki gildi nú þegar.
Samkvæmt lið 63 í stöðugleikasáttmálans geta þeir einstaklingar
sem verða fyrir áhrifum vegna skilyrða þessa sótt um leyfi til
Hæstaréttar Írlands, Four Courts, Inns Quay, Dublin 7, Írlandi, til
að sækjast eftir endurskoðun dómstóla vegna ákvörðunar
samkvæmt stöðugleikasáttmálanum sem tengjast þessum
skilyrðum, innan 14 daga frá því ákvörðunin er tilkynnt
viðkomandi, eða viðkomandi fær vitneskju um ákvörðunina á
einhvern annan hátt.